blaðið - 28.03.2007, Page 18
18 • FERMINGAR 2007
MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2007 blaöiö
heilsa
börn
konan
ferðalög
fólk
tónlist
bíó
menning
lífið
íþróttir
Auglýsingasíminn er
510 3744
Fólk fari ekki svangt
úr fermingarveislum
Rúnar Gíslason, einn af Kokk-
unum, er sannarlega enginn ný-
græðingur í því að fæða fólk sem
sækir fermingarveislur, en ófáir
hafa sótt í veisluþjónustu Kokkanna
þegar veisla er framundan. „Þar til
gerð fermingarhlaðborð okkar eru
langvinsælust, ég myndi segja að
yfir helmingur viðskiptavina kysi í
aðalrétt villikryddað lambalæri eða
kalkúnabringu ásamt einhverju ljúf-
meti í forrétt.”
Aðspurður hvort matarboð séu
að ryðja sér til rúms í sambandi
við fermingar á kostnað kökuboða,
segir Rúnar að enn sé nokkuð jöfn
skipting á því hvort boðið er upp á
mat eða tertur í veislunum. „Við sér-
hæfum okkur í matarhlaðborðum
og reynum alltaf að koma til móts
við viðskiptavininn, okkur er ekk-
ert heilagt i matarsamsetningunni.”
Ýmislegt góðgæti má finna á
matseðli Kokkanna þar á meðal
tapasrétti, heimabakað brauð, pest-
óveislur og rammíslenskar flat-
kökur með hangikjöti. í seinni tíð
hafa fermingarveislur orðið mjög
einfaldar fyrir fjölskyldur, það er
nánast hægt að panta allt sem við-
kemur veislunni; þjóna, mat, borð-
búnað, dúka og allt saman.
„Hjá okkur er þetta mjög einfalt;
við matreiðum þann mat sem við-
skiptavinir óska eftir og úr veisl-
unum fer enginn svangur.”
Rúnar gaf Blaðinu þrjár vinsælar
fermingaruppskriftir sem ættu að
slá í gegn meðal veislugesta.
Kalt sveppasalat með nýju
íslensku bok choy
Upplagt í hádeginu eða sem
meðlæti.
• 2 stk bok choy-blöð/stönglar
• 6 sveppir
• 'á hvítlauksrif
• 'A rauðlaukur
• kóríander
• steinselja
© edik
© olía
• salt og pipar
Aðferð:
Sjóðið sveppina í saltvatni og
þerrið. Setjið skvettu af ediki og
bætið út í steinselju, hvítlauk, rauð-
lauk og kóríander. Saltið og piprið
Miðjarðarhafskjúklingaréttur
©4 kjúklingabringur
© 8 kjúklingaleggir
• 'á kúrbítur
• 'á rauð paprika
• ‘Águlpaprika
• 'á græn paprika
© í rauðlaukur
• 3 greinar timjan
© 12 sveppir
• 3 msk. hveiti
• 2 tsk. tómatpuré
• 300 ml hvítvín
ÍlllÍSÍMlllÍli^lílÍiSliÍlilÍi
fjiarstýnðirjBensínlOQlRafma qnsbííaaíímiklTTúnvali,
.
V D
vdo.is VDO Verkstæðið ehf. - Borgartúni 36 - s:588-9747
• 600 ml vatn
• 5 ogsmjör
• salt ogsvartur pipar
Aðferð:
Grófskerið allt grænmetið. Setjið
olíu í stóran pott og hitið vel. Setjið
leggina fyrst út í og steikið vel. Svo
eru sveppirnir settir út í og steiktir
vel. Setjið restina af grænmetinu
út í ásamt timjan. Saltið og piprið.
Næst er tómatpuréið sett út í og
Iátið krauma veí, því næst hveitið og
það látið brúnast með í u.þ.b. hálfa
mínútu áður en hvítvínið er sett út í.
Látið það aðeins sjóða niður áður en
vatninu er hellt út í. Forsteikið bring-
urnar á sérpönnu. Þegar sósan er
búin að blandast vel og sjóða í u.þ.b.
10 mínútur, setjið þá bringurnar
út í pottinn og sjóðið áfram í 10-15
mínútur og smakkið til með salti
og pipar. Setjið smjörið út í restina
þegar u.þ.b. 5 mínútur eru eftir af
suðutímanum.
Gott að hafa grjón með þessum
rétti.
Marineraður geitaostur
• 1 tsk. fennelfræ
• 1 tsk. rósapipar
• 250 gferskurgeitaostur, t.d.
Soignon
8> 2 hvítlauksgeirar, afhýddir en
heilir
• 2 litlirgrænir chili, marðir
• 2 rósmaríngreinar, marðar
© 2 lárviðarlauf
extra virgin ólífuolía þar til
rennuryfir ostinn
Aðferð:
Hitið varlega fennelfræin og rósa-
piparinn á pönnu þar til lyktarefnin
fara að losna, án þess að brenna
það. Kælið algjörlega. Búið til litlar
kúlur úr ostinum og setjið í skál
eða krukku. Setjið fennelfræin og
rósapiparinn út í og síðan restina af
hráefninu. Hellið olíunniyfirþar til
allur osturinn er á kafi.
Skólavöröustíg 3
Sími: 551 0036
Rúnar Gfslason Það þarf
enginn að fara svangur úr
fermingarveislunni.