blaðið - 28.03.2007, Page 19
blaöið MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2007
FERMINGAR 2007 • 19
Litir og föndur:
Spennandi vörur í
boði fyrir ferminguna
Verslanir Lita og föndurs, Smiðju-
vegi 4, Kópavogi, og Skólavörðustíg
12, Reykjavík, hafa tekið við einka-
umboði á Stenboden-perlum af
Völusteini, einnig Cameo-taulita-
pennum og fjölmörgu öðru sem
verslunin Völusteinn, sem nú er
hætt, var með.
Viðskiptavinir Lita og Föndurs
hafa aðgang að skurðartækjum til
að gera falleg og persónuleg kort,
gestabækur og skreytingar fyrir öll
tækifæri, ásamt allri þeirri þjón-
ustu sem Völusteinn bauð áður
upp á. Veisluleiga Völusteins hefur
einnig sameinast Litum og föndri
og er nú staðsett á Smiðjuveg-
inum. í veisluleigunni eru leigðir
út fallegir brúðkaupstertustandar,
kirkjuborðar, brúðarstyttur, brúð-
arbogar, borðskreytingar, hringa-
púðar, margskonar kertastjakar,
kertasúlur, stórir blómavasar og
margt annað til að gera veisluna
glæsilega.
Verslunin sér einnig um að
gera kertaskreytingar, útsaumaða
hringapúða, skírnarslaufur og
skreytingar við öll tækifæri. Að
auki hefur bæst við úrvalið glæsi-
leg brúðarlína frá Victoria Lynn.
Skreytingarefni og þjónustu er
einnig hægt að nálgast að Skóla-
vörðustíg 12, Reykjavík.
Áhugasömum er bent á að kynna
sér heimasíðu verslunarinnar www.
litirogfondur.is.
Hættan er liós
Án efa hafa margir tekið eftir
sameiginlegri auglýsingaherferð
landlæknisembættisins, Geisla-
varna ríkisins, Krabbameinsfélags-
ins og Félags íslenskra húðlækna
gegn ljósabekkjum í tengslum við
fermingar. Tilgangurinn er sá að
minna á skaðsemi ljósabekkjanna
sem getur verið margvísleg. Al-
þjóða krabbameinsrannsóknar-
stofnunin gaf út yfirlýsingu fyrir
tæpum tveimur áratugum þar sem
fullyrt var að útfjólubláir geislar
gætu valdið sortuæxlum og öðrum
húðkrabbameinum. Otfjólubláu
geislana er bæði að finna í ljósa-
bekkjum og í sólargeislum. Báðar
gerðir geislanna valda ótímabærri
öldrun húðarinnar með hrukku-
myndun, æðasliti og litabreyt-
ingum en þó er aukning sortuæxla
aðaláhyggjuefni sérfræðinga og
meginástæða auglýsingaherferð-
arinnar. Stutt og áköf sólböð með
löngum millibilum virðast hafa
áhrif á aukna myndun sortuæxla
sem geta reynst lífshættuleg ef
þau greinast of seint. Ef æxlin eru
greind snemma á ferlinum auk-
ast líkurnar á því að hægt sé eyða
þeim til muna.
Einnig eykst hætta á húðkrabba-
meini með endurteknum sólbruna
á húð manneskju undir 18 ára aldri,
þannig að ef farið er í tíðar utan
landsferðir er sólaráburður mjög
nauðsynlegur. Ljósabekkir auka
hættu á sortuæxlum auk þess sem
þeir gera húðina ellilegri og þar af
leiðandi er ekki mælt með notkun
þeirra, sérlega ekki fyrir unga og
viðkvæma húð.
Veislu/jjónusta Ylóatúns
NOATUN
Veislujyónustan t lloatáni SmáUilincl
l?ý()iCí upp á glæsilegt ú'ival
affjölbleyttum léttuin
til a() fulllcomna veislulooí^'u).
Ici nauta
TrrfT T
NlOAITUN
Pantanasimi: Jón Kristinn meistarakokkur Nóatúns í síma 8227083