blaðið - 29.03.2007, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 29. MARS 2007
blaðið
VEÐRIÐ I DAG
Þykknarupp
Vaxandi suövestanátt, 8-13 m/s norð-
vestanlands, en hægari annars staðar.
Lægir og þykknar upp vestanlands, en
Pjartviðri austantil. Hiti 1 til 8 stig.
Á FÖRNUM VEGI
ÁAÐSETJAÞAKÁ
AUGLÝSINGAKOSTNAÐ
STJÓRNMÁLAFLOKKA?
Selma Jóhannsdóttir
Já, mér finnst það.
Sigurður Ágústsson
Mér finnst að setja ætti
10 milljóna hámark.
Elín Sigurðardóttir
Já, 15-20 milljóna hámark.
Rögnvaldur Skúli Árnason
Nei, mér finnst það ekki.
Eysteinn ívarsson
Já, en hámarksuþþhæðin má
vera mjög há.
ÁMORGUN
Milt veður
Vaxandi sunnanátt, 13-18 m/s
og rigning vestantil nálægt
hádegi, en hægari og þurrt
austantil. Hiti 4 til 8 stig.
VÍÐAUMHEIM Í
Algarve 17
Amsterdam 17
Barcelona 11
Berlín 16
Chicago 11
Dublin 9
Frankfurt 17
Glasgow 10
Hamborg 17
Helsinki 15
Kaupmannahöfn 14
London 17
Madrid 11
Montreal 0
New York 12
Orlando 17
Osló 15
Palma 20
París 18
Stokkhólmur 14
Þórshöfn 6
Kína:
Hundur át
hluta limsins
Dómstóll í Kína hefur dæmt
konuna Yao Fengfang í þriggja
ára skilorðsbundið fangelsi
fyrir að hafa skorið liminn af
eiginmanni sínum og hent út
um gluggann. Eiginmaðurinn
Li Gengbao vaknaði upp við
mikinn sársauka og keyrði
beinustu leið á sjúkrahús, en
læknum reyndist ekki unnt að
sauma liminn aftur á þar sem
hundur nágrannans hafði étið
hluta hans.
Eiginkonan segist hafa skorið
liminn af þar sem hún grunaði
Li um framhjáhald eftir að hafa
séð bíl hans fyrir utan heimili
fyrrverandi eiginkonu hans. Li
bað dómarann um að eigin-
konan fengi vægan dóm þannig
að hún gæti hlúð að honum það
sem eftir er.
Kína:
Hæsti maður
heims kvænist
Bao Xishun, hávaxnasti
maður heims, gekk að eiga Xia
Shujian sem er 25 árum yngri og
68 sentimetrum lágvaxnari en
hann í síðustu viku. Hinn 55 ára
gamli Bao hafði lengi leitað sér
að lífsförunauti með einkamála-
auglýsingum sem birtust víðs
vegar um heim, en kynntist svo
Xia á síðasta ári. Xia er ættuð frá
borginni Chifeng í norðurhluta
Kína, sem jafnframt er heima-
bær Bao. Bao er 2,36 metrar á
hæð og komst í heimsfréttirnar
á síðasta ári þegar hann náði að-
skotahlutum úr plasti úr maga
tveggja höfrunga með höndum
sínum í sædýrasafni í Kína.
Grunur um ólögmætt samráð
Uppsagnir leigubílstjóra BSH
og Aðalbíla eru komnar inn á
borð Samkeppniseftirlitsins.
Uppsagnir leigubílstjóra á borði Samkeppniseftirlitsins:
Grunaðir um
ólögmætt samráð
■ Gátu ekki starfað undir nýjum eigendum ■ Hópuppsögnin til einföldunar
Eftir Magnús Geir Eyjólfsson
magnus@bladid.net
Samkeppniseftirlitið kannar hvort
leigubílstjórar á BSH og Aðalbílum
hafi haft með sér ólögmætt samráð
og brotið þannig gegn 10. grein sam-
keppnislaga. Tilefnið eru uppsagnir
30 bifreiðastjóra á stöðvarplássum
sínum á leigubifreiðastöðvum BSH
í Hafnarfirði og Aðalbílum í Kefla-
vík þann 16. mars síðastliðinn.
Leigubílstjórarnir sögðu upp
störfum eftir að fyrirtækið NL
keypti Ný-ung ehf. sem þeir störf-
uðu hjá. Voru þeir ekki sáttir við
nýtt eignarhald á fyrirtækinu og
töldu sig ekki geta starfað undir
nýjum eigendum. I bréfi sem Sam-
keppniseftirlitið hefur sent leigubíl-
stjórunum er meðal annars óskað
eftir gögnum um samskipti leigu-
bílstjóra BSH/Aðalbíla við forsvars-
menn Hreyfils. Einkum er leitað
gagna sem tengjast tilboðum sem
Hreyfill hefur gert leigubílstjór-
unum eða tilboðum sem þeir hafa
gert fyrirtækinu.
Eins og hnífstunga í bakið
Ingólfur Möller Jónsson, for-
maður bílstjórafélagsins Fylkis á
Suðurnesjum, segir að ekki sé um
samráð að ræða. Hann segir að bíl-
stjórarnir hafi verið kallaðir á fund
Samkeppniseftirlitsins til að skýra
mál sitt og er fullviss um að málið
fái farsælan endi. Hann segir hins
vegar að uppsagnirnar hafi verið
fullkomlega eðlilegar. „Það var
eins og hnífstunga í bakið þegar
við vorum komnir undir stjórn
nýrra aðila. Það vildi enginn starfa
með þessum nýju eigendum. Við
vorum ekki sáttir hvernig staðið
var að þeim málum og áttum
saman fund um hvað við ættum að
gera í framhaldinu. Þetta var engin
hópuppsögn heldur var ákveðið
til einföldunar að skrifa uppsagn-
irnar á eitt blað í staðinn fyrir að
hver og einn byggi til sér uppsögn,"
segir Ingólfur.
Höfðu samband að fyrra bragði
Vignir Þröstur Hjálmarsson, deild-
arstjóri hjá Hreyfli, segir að Hreyfill
hafi haft samband við Samkeppn-
iseftirlitið að fyrra bragði. „Leigu-
bílstjórarnir höfðu samband við
okkur og föluðust eftir vinnu. Við
ræddum við þá eins og okkur ber að
gera. Það var engin ákvörðun tekin
öðruvísi en að leitað yrði upplýsinga
hjá Samkeppniseftirliti hvort það
væri leyfilegt," segir Vignir Þröstur.
Hann segir að vegna stærðar
Hreyfils á markaðnum megi fyrir-
tækið ekki falast eftir bílstjórum
frá öðrum leigubílastöðvum en
aftur á móti megi bílstjórar leita
eftir störfum hjá fyrirtækinu. Hins
vegar gæti reynst erfitt að taka við
öllum bílstjórunum á einu bretti
þar sem það er bæði dýrt og tíma-
frekt að koma upp tölvubúnaði í
alla bílana.
Uppsögn leigubílstjóranna tekur
gildi þann 1. apríl nk. og hætta þeir
störfum hjá NL mánuði síðar. Þeir
hafa enn ekki ákveðið hvert fram-
haldið verður en það skýrist hugs-
anlega á fundi þeirra í kvöld. Ekki
náðist í Samkeppniseftirlitið við
gerð fréttarinnar í gær.
Vél: Benz 3,0 L CRD.
Eyðsla: 10,2 í blönduðum akstri.
Allur fáanlegur búnaður í Evrópu innifalinn í
verSi. Þrír litir til á lager. Svartur, silfur og
dökkgrár.
Sýningarbíll á staönum. Verft: 5.790 þús.
www.sparibill.is
Skúlagötu 17
Sími: 577 3344
Alcan lofar að fjarlægja raflínur við Vallahverfið:
Grafa línur stækki álverið
Línumannvirki við Vallahverfið
í Hafnarfirði verða fjarlægð ásamt
stórum hluta spennistöðvarinnar
við Hamranes samkvæmt nýju sam-
komulagi milli Landsnets og Alcan.
Aðrar loftlínur sem nú standa ofan
við byggðina verða settar í jörðu við
Kaldárselsveg. I fréttatilkynningu
frá Alcan segir að Hafnarfjarðarbær
muni ekki bera kostnaðinn af breyt-
ingunum, en þær séu þó háðar því
að af stækkun álversins í Straums-
vík verði.
Hrannar Pétursson, upplýsingaf-
ulltrúi Alcan á íslandi, neitar því
að um sé að ræða mútur til Hafn-
firðinga. „Ef verksmiðjan stækkar
ekki mun líftími hennar styttast
verulega og óvíst verður með fram-
haldið. Óskynsamlegt er að fara út
í jafn mikla fjárfestingu og þetta
nema ljóst sé að fyrirtækið verði
hérna áfram. Hins vegar er alveg
viðbúið að andstæðingar stækkunar
reyni að snúa þessu upp í eitthvert
mútumál."