blaðið - 29.03.2007, Blaðsíða 4

blaðið - 29.03.2007, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 29. MARS 2007 blaðið ' INNLENT EYJAFJORÐUR Flugvél nauðlenti Flugmaður eins hreyfils flugvélar neyddist til að nauðlenda á Eyjafjarðarbraut við Melgerðismela þegar hreyfill vélarinnar stöðvaðist. Lendingin gekk að óskum. Skoðun leiddi í Ijós að lokast hafði fyrir eldsneytisflæði til hreyfilsins. Gæsluvarðhald framlengt Gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um að hafa nauðgað konu á Hótel Sögu var framlengt til níunda maí, að kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Krafist var framlengingar með tilliti til almannahagsmuna í Ijósi þess hve alvarlegt brotið var. Maðurinn hefur ekki játað verknaðinn. Vörubíll á hliðina Vörubíll með fullan farm af möl valt í Heiðmörk í gærmorgun. Bílstjórinn var einn í bílnum og var hann fluttur á slysadeild lítillega slasaður. Ekki var talið að nein olía hefði lekið úr bílnum, en til öryggis var farið með vél á svæðið sem gróf uþp efsta lag jarðvegsins. Draga Wilson Muuga: Ríkið borgar 15 milljónir Tekist hefur samkomulag milli íslenska ríkisins og eigenda Wilson Muuga um að gerð verði tilraun til að ná skipinu af strandstað. Áætlaður kostnað- ur er um 40 milljónir króna og greiðir ríkið 15 milljónir af kostnaðinum. Andvirði skips- flaksins verður skipt á milli eigenda skipsins og ríkissjóðs. Vonir eru bundnar við að hægt verði að draga skipið af strandstað og verður tilraun gerð á stórstraumsflóði 16. til 18. maí. Eigendur skipsins munu stjórna aðgerðinni, en fulltrúar Umhverfisstofnun- ar hafa eftirlit með henni. Verslunarmannahelgi Oft er glatt á hjalla, eins og hjá þessu unga fólki. Aðrirgeta ekki skemmt sér eins vel og eru til vandræða. Tilefnislaus árás með járnstöng um verslunarmannahelgi: Fær skilorðsbundinn dóm ■ Braut tennur og sprengdi vör ■ Hefur ítrekaö veriö dæmdur Samskip í Rotterdam: Höfuðstöðvar við höfnina Samskip hafa flutt alla starf- semi félagsins í Rotterdam í nýja skrifstofubyggingu við gömlu höfnina. Þar verða höfuðstöðvar fyrir starfsemi félagsins erlendis en yfirstjórn félagsins og fslands- starfsemin verða eftir sem áður með höfuðstöðvar í Reykjavík. Eftir Hiyn Orra Stefánsson hlynur@bladid.net Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 19 ára gamlan karlmann í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkams- árás á þjóðhátíð i Vestmannaeyjum árið 2005. Lamdi hann mann í andlitið með járnstöng með þeim afleiðingum að tvær tennur brotn- uðu i munni hans og sauma þurfti fyrir skurð i vör hans. Þá var hann dæmdur til að greiða manninum 390 þúsund krónur í skaðabætur. Hann var einnig ákærður fyrir að lemja annan mann ( höfuðið með sömu járnstöng, en var sýknaður af þeim ákærulið þar sem dómurinn taldi sökina ekki fullkomlega sannaða. Fram kom við málsmeðferð að drengurinn þekkti ekki fórnarlamb sitt. Hann hafi séð ákærða í mjög annarlegu ástandi fyrr um kvöldið, en vissi ekki fyrr en hann fékk rörið Félag dúldagninga- og veggfóörarameistara LATIÐ FAGMANN VINNA VERKIÐ! - Dúkalögn - Veggfóörun - Teppalögn dukur@simnet. is - www.dukur.is Hver vaWaf í andlitið. Ýmis vitni segjast hafa séð árásarmanninn ganga um þjóð- hátíðarsvæðið með járnrör í hendi, og gæslumenn urðu vitni að því er hann réðst algjörlega af tilefnis- lausu á fórnarlamb sitt. Ákærði hefur tvívegis áður hlotið sektardóma fyrir líkamsárás, þrátt fyrir ungan aldur. Árið 2005 var hann dæmdur til að greiða 80 þús- und krónur vegna líkamsárásar og árið 2004 var honum gert að greiða 70 þúsund krónur, einnig fyrir lík- amsárás. Á þeim tíma var pilturinn ekki orðinn 18 ára gamall ogþví hafa þeir dómar ekki ítrekunaráhrif á brot hans nú. Þá hefur ákærði hlotið einn dóm vegna fíkniefnalagabrota, og tvo fyrir umferðarlagabrot. Til þyngingar dóminum nú kom að árásinbeindist gegn andliti fórnar- lambsins, var mjög hættuleg og með öllu tilefnislaus. Hins vegar kom til refsilækkunar að hinn dæmdi er ungur að aldri og kvaðst tilbúinn til Ný aðferöafræði fjölmiðlakönnunar Capacent: Lestur dagblaða minnkar Að meðaltali lesa 38,3 prósent lands- manna Blaðið á hverjum degi, sam- kvæmt fjölmiðlakönnun Capacent sem birt var í fyrradag. Um 65 pró- sent landsmanna lesa Fréttablaðið og 43,6 prósent lesa Morgunblaðið. Uppsafnaður lestur Blaðsins yfir vik- una er 64 prósent samanborið við 88,6 prósent hjá Fréttablaðinu og 71,9 prósent hjá Morgunblaðinu. Könnunin sem Capacent birti í fyrradag er ólík fyrri könnunum að því leyti að ekki er notast við svo- kallaðar dagbókarkannanir likt og tíðkast hefur. I slíkum könnunum eru sendar út dagbækur sem þátt- takendur fylla út um viku skeið og skila í pósti. Ný aðferð Capacent er svonefnd símælingaraðferð þar sem hringt er í ákveðinn hóp fólks á hverjum degi yfir ákveðið tímabil. í yfirlýsingu frá Capacent segir að símælingaraðferðin gefi stöð- ugri mynd af lestri fjölmiðla og sé öruggari gagnvart tímabundnum sveiflum en fyrri aðferðin. Sé miðað við könnun Capacent frá í nóvember sem notaðist við dagbókarkönnun minnkar lestur allra blaðanna eða stendur í stað. Hjá Félagsvísinda- stofnun Islands fengust þær upplýs- ingar að ekki er með fullri vissu hægt að bera saman niðurstöður síðustu tveggja kannana þar sem lesturinn er ekki mældur á sama hátt. Saman- burður gefi ákveðnar vísbendingar en hann verður ekki fyllilega mark- tækur fyrr en næsta könnun er birt. Bandaríkin: Plastpokar bannaðir Borgaryfirvöld í San Francisco í Bandarikjunum hafa ákveðið að banna notkun plastpoka i stór- mörkuðum og lyfjaverslunum borgarinnar frá og með septemb- ermánuði næstkomandi. Borgar- fulltrúinn Ross Mirkarimi, sem barðist mest fyrir banninu, segir að önnur ríki og erlendar borgir hafi þegar tekið upp sambærileg lög. „Það er í raun merkilegt að San Francisco sé fyrsta banda- ríska borgin til taka upp bann sem þetta.T Talið er að borgarbúar noti um 180 milljónir plastpoka á ári og að mjög fáir þeirra séu end- urnýttir og þessu fylgir mikill sóðaskapur. Mirkarimi segir að bannið muni spara rúmlega 1,7 milljónir lítra af olíu og mikla urðun. að greiða bætur. Þá var einnig litið til þess að langt er liðið síðan brotið sem hann er nú dæmdur fyrir átti sér stað og meðferð málsins á rannsóknarstigi tók langan tíma. Á þeim tíma er hinn dæmdi sagður hafa tekið sig á. Hann skráði sig í vímu- efnameðferð og hefur undan- farið búið á áfangaheim- ili þaðan sem hann fær góð meðmæli. i 4" Héraðsdómur Reykjavíkur Fyrri líkamsárásir valda ekki þyngingu refsingar þar sem gerandi var svo ungur.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.