blaðið - 29.03.2007, Blaðsíða 6

blaðið - 29.03.2007, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 29. MARS 2007 blaðið INNLENT BILASTÆÐASJOÐUR Stefán kveður eftir 14 ára starf Stefán Haraldsson, framkvæmdastjóri Bílastæða- sjóðs, lætur af störfum á morgun að eigin ósk. f bréfi til samstarfsmanna segir að þó tíðindin virðist bera brátt að, séu margir mánuðir síðan hann tók ákvörðun um að söðla um eftir 14 ár í sam MYNDAÐI NAKTA KONU Sýknaður af ákæru Héraðsdómur Norðurlands vestra sýknaði mann af ákæru vegna myndar sem hann tók af konu nakinni, án hennar vitneskju að sögn konunnar. Einnig kærði hún hann fyrir að hafa sýnt sjö öðrum karlmönnum og einni konu myndina. Maðurinn LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS Vill þyrlu til Akureyrar Stjórn Læknafélagsins vill að ein af byrlum Landhelgis- gæslunnar verði á Akureyri. I ályktun félagsins segir að í nútímasamfélagi séu gerðar kröfur um að bráðveikum og slösuðum verði komið undir læknishendur á sem stystum tíma og að íbúar landsins sitji við sama borð. Snúningsdiskur Háþrýstidælur Þegar gerðar eru hámarkskröfur Ýmsir aukahlutir K 7.85 M Plus K 7.80 M Plus Vinnuþrýstingur: 20-150 bör Vatnsmagn: 550 Itr/klst Stillanlegur úði Sápuskammtari Túrbóstútur + 50% 12 m slönguhjól Vinnuþrýstingur 20-150 bör Stillanlegur úði Sápuskammtari ■ Vatnsmagn: 550 Itr/klst ■ Túrbóstútur + 50% ■ Lengd slöngu: 9 m K 6.80 M Plus K 5.80 M Plus Vinnuþrýstingur: 20-135 bör Vatnsmagn: 530 Itr/klst Túrbóstútur + 50% Lengd slöngu: 9 m Sápuskammtari Stillanlegur úði Vinnuþrýstingur: 20-125 bör Vatnsmagn: 450 Itr/klst Lengd slöngu: 7,5 m Stillanlegur úði Túrbóstútur + 50% Sápuskammtari SKEIFAN 3E-F ■ SÍMI 581-2333 ■ FAX 568-0215 ■ WWW.RAFVER.IS Konica Minolta 130f Flest fyrirtæki þurfa prentara, Ijósritunarvél, litskanna og faxtæki. Minnsta vélin frá KONICA MINOLTA gerir allt þetta og meira til. Hún sendir tölvupóst og hefur frumritamatara sem staðalbúnað. Lítil og KONICA MINOLTA fjöihæf Myndgæðin eru fyrsta flokks. Tilboðsverð kr. 69.900 m/vsk UMFANG TÆKNIBUNAÐUR UMFANG-TÆKNIBÚNAÐUR • SÍÐUMÚLA 12-108 REYKJAVÍK SÍMI 510 5520 • umfang@kjaran.is SMÁAUGLÝSINGAR 5103737 KAUFW/SELIA blaðið— Erlendir hermenn i írak Öldungadeild Bandaríkjaþings vill herinn heim frá írak: Dagsetur heim- kvaðningu hersins Herinn heim innan árs Bush segist ætla aö beita neitunarvaldi Eftir Atla isleifsson atlii@bladid.net Öldungadeild Bandaríkjaþings hefur samþykkt tillögu um að hersveitir Bandaríkjahers verði kvaddar heim frá írak í áföngum fyrir lok marsmánaðar á næsta ári. George Bush Bandaríkjaforseti hefur sagst ætla að beita neitunar- valdi sínu gegn öllum samþykktum lagafrumvörpum Bandaríkjaþings sem kveða á um heimkvaðningu Bandaríkjahers frá írak. Demó- kratar segja samþykki Banda- ríkjaþings endurspegla vaxandi andstöðu bandarísku þjóðarinnar við stríðið og að Bandaríkjaforseti verði að breyta um stefnu. Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti sambærilega tillögu í síðustu viku, en þar var kveðið á um heimkvaðningu hersins fyrir lok ágústmánaðar á næsta ári. Til- lögur þingdeildanna tveggja um heimkvaðningu hersins eru í laga- frumvarpi um neyðarfjárveitingu fyrir stríðsreksturinn, þæði í írak og Afganistan, upp á andvirði rúmlega 8.000 milljarða króna. Þá hafnaði öldungadeildin naumlega breytingartillögu repúblikana um að heimkvaðningin yrði tekin úr fjárveitingarfrumvarpinu. Frumvarpið er enn til umræðu í öldungadeildinni, en næst munu fulltrúar öldungadeildarinnar og fulltrúadeildarinnar vinna að málamiðlunartillögu og er fast- lega reiknað með að þar verði að finna áætlun um heimkvaðningu hersins. Málið verður svo lagt fyrir Bush Bandaríkjaforseta og mun hann að öllum líkindum beita neit- unarvaldi sínu, ef ekki næst sam- komulag um málið. Dana Perino, talsmaður Bush- stjórnarinnar, sagði ýmsar uppörv- andi fréttir hafa borist frá írak að undanförnu. „Bandaríkjaforseti harmar þá leið sem öldungadeildin hefur valið með þetta frumvarp. Forsetinn mun beita neitunarvaldi gegn því og er ekki nokkur leið að það verði að lögum.“ r TirTM Bandaríkin Bretland S-Kórea Pólland 900 Rúmenía ■H 865 Ástralía HBj 850 Danmörk ■: 400 El Salvador ■ 380 Georgía ■ 300 Lönd sem þegar hafa kallað hermenn heim frá Irak: Dóminlska lýöveldiö, Hondúras, Ungverjaiand, Italia, Japan, Holland, Níkaragva, Nýja-S|áland, Noregur, Fillppseyjar, Portúgal, Slngapúr, Slóvakía, Spánn, Taíland, Tonga og Áform um afturköllun: Bretland 2.100 hermenn fyrir árslok S-Kórea Allur herafli fyrir árslok Pólland Allur herafli fyrir árslok Danmörk Allur herafli í ágúst Demókratar sýna hins vegar engin merki þess að þeir ætli að draga í land. Harry Reid, þing- maður Nevada-ríkis, sagði að ekki einn bandarískur blóðdropi til viðbótar ætti að falla í þessu stríði. „Það er ekki þess virði. Við vonumst til að forsetinn geri sér grein fyrir því að okkur og bandarísku þjóð- inni er full alvara með þessu. í stað þess að vera með hótanir um að beita neitunarvaldi, ætti hann að vinna með okkur að málamiðlun." Tveir þingmenn úr röðum repú- blikana gengu til liðs við þingmenn demókrata og greiddu atkvæði með tillögunni um heimkvaðningu bandarísku hermannanna frá Irak. Fréttaritari BBC í Washington, höfuðborg Bandaríkjanna, segir atkvæðagreiðsluna í öldungadeild- inni vera mikilvægan og nokkuð óvæntan sigur fyrir demókrata í deilunni um Íraksstríðið. Fimmtíu þingmenn greiddu at- kvæði með og 48 voru á móti. Þó þetta hlutfall sé ekki nægilega hátt til að snúa við væntanlegri neitun forsetans, segja demókratar sam- þykktina vera skýrt merki um vax- andi vilja til að ljúka Íraksstríðinu sem hefur staðið yfir í rúm fjögur ár. Demókratinn Jack Reed segir samþykktir Bandaríkja- þings jafnframt endurspegla vilja bandarísku þjóð- arinnar. „Þetta eru skilaboð sem forset- inn og stjórnvöld í írak geta ekki hunsað.“ Samkvæmt samþykkt öldunga- deildarinnar á að kalla hermennina heim í áföngum. Þeir fyrstu eiga að koma heim innan 120 daga og brott- flutningi á að vera lokið í mars á næsta ári. Fámennara herlið ætti að halda áfram að þjálfa íraska her- menn og lögreglumenn og stríða gegn uppreisnarmönnum al-Qa- eda. RepúblikaninnMitch McConn- ell segir að slík áætlun muni setja formlega dagsetningu fyrir upp- gjöf Bandaríkjanna. „Með því að dagsetja heimkvaðningu erum við í raun að senda óvinum okkar skila- boð sem segja þeim að slappa af og safna vopnum og mannskap þar til við yfirgefum staðinn. Við erum sömuleiðis að senda vinum okkar þau skilaboð að við ætlum að fara heim og yfirgefa þá, sama hvernig aðstæðurnar verða."

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.