blaðið - 29.03.2007, Blaðsíða 8

blaðið - 29.03.2007, Blaðsíða 8
Auglýsingastofa Guðninar önnu UTAN UR HEIMI FRAKKLAND Óeirðir á lestarstöð Lögregla handtók þrettán manns í kjölfar rifrildis um lestarmiða á Gard du Nord lestarstöðinni í París, höfuðborg Frakklands, í gær. Lögregla beitti táragasi til að dreifa tugum ungmenna sem höfðu hópast saman vegna deilunnar. Óeirðaseg- girnir brutu rúður og skemmdu sjálfsala eftir að hafa mótmælt meðferð lögreglu á manni sem hafði deilt við starfsmann miðasölu lestarstöðvarinnar. kólesterólskert fyrir heilsuna og bragðlaukana VOGABÆR Síml 424 6525 www.vogabaer.is FIMMTUDAGUR 29. MARS 2007 blaAift Auglýsingasíminn er 510 3744 m. Fjarðaál á Reyðarfirði \ Mun geta framleitt 346 þús- mv und tonn á ári. Mynd/Steinunn Alver Alcoa á Reyðarfirði gangsett um páskana: Fyrsta súrálið er komið frá Ástralíu Skipið 190 metra langt og 48 þúsund tonn ■ Rafmagn um byggðalínu Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@bladid.net Fyrsti súrálsfarmur Alcoa Fjarðaáls kom til Reyðarfjarðar um hádegis- bilið í gær. Tæplega 190 metra langt og 48 þúsund tonna þungt flutn- ingaskip, Pine Arrow, lagðist þá að bryggju eftir ríflega sex vikna sigl- ingu frá Ástralíu, en siglingaleið sú er um 11.500 mílna löng. Skipið flutti 39 þúsund tonn af súr- áli, en súrál er meginuppistaða þess hráefnis sem ál er unnið úr. Tæp tvö tonn af súráli þarf til þess að framleiða eitt tonn af áli, þannig að úr þvi súráli sem er komið er hægt að framleiða yfir 20 þúsund tonn af áli. í fréttatilkynningu frá Alcoa segir að framleiðslugeta álversins á Reyðarfirði verði 346 þúsund tonn á ári. Miðað við fullnýtta framleiðslu- getu má því búast við því að skip af þessu tagi muni koma um það bil 20 sinnum á ári til landsins. Samkvæmt upplýsingum frá Alcoa Fjarðaáli er stefnt að því að setja fýrsta kerið í gang um pásk- ana. Eins og sagt var frá í Blaðinu 16. mars sl. er gerð aðrennslisganga að Kárahnjúkavirkjun fimm mán- uðum á eftir áætlun og verða þau ekki tilbúin fyrr en í maí. Impre- gilo sér um gerð ganganna fyrir Landsvirkjun. Landsvirkjun hefur skuldbundið sig til að útvega álver- inu rafmagn svo hægt verði að gang- setja það í byrjun apríl, og voru uppi efasemdir um að það væri hægt án aðrennslisganganna. Að sögn Þorsteins Hilmarssonar, upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar, hefur verið fundin önnur lausn. „Til að byrja með munum við selja þeim rafmagn sem við framleiðum ekki í Kárahnjúkavirkjun. Rafmagnið verður framleitt annars staðar á landinu og flutt til Austurlands i gegnum byggðalinuna með neti Landsnets. Rafmagnið fer svo inn í nýja virkjun hjá okkur þar sem spennustigi þess verður breytt og það sent áfram eftir nýrri rafmagns- línu inn á Reyðarfjörð." Það verður hins vegar ekki fyrr en í júli sem farið verður að framleiða rafmagn á Kárahnjúkum. Þótt vatni verði veitt í virkjunina strax í maí þarf að gera ýmsar athuganir og stillingar áður en rafmagnsframleiðsla hefst. Samkvæmt upphaflegu sam- komulagi Landsvirkjunar og Alcoa er stefnt að því að fyrrnefnda fyr- irtækið útvegi því síðarnefnda rafmagn úr Kárahnjúkum svo full álframleiðsla geti hafist í október. Það ætti að sögn Þorsteins að nást. Erna Indriðadóttir, upplýsingafull- trúi Alcoa, tekur í sama streng. Hún segir fyrirtækið gera ráð fyrir að geta gangsett öll 336 kerin í október. | BETRIYFIRSÝN MEÐTOK Bakarameistarinn hefur stækkað ört á síðustu 10 árum. TOK bókhaldskerfið hefur stækkað með okkur og veitt okkur þá yfirsýn yfir reksturinn sem við þurfum hverju sinni. Þannig höldum við okkur í fararbroddi með nýjungar og getum boðið viðskiptavinum okkar upp á gæðavöru. Vigfús Kr. Hjartarson, framkv^emdastjóri Bakarameistarínn hf. v hugur/ax / / VlÐSKIPTAl. AUSNIR / Ræddu við okkur um hvernig TOK hentar þér í síma 545 1000. HugurAx Guðríðarstíg 2-4 www.tok.is / •

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.