blaðið - 29.03.2007, Blaðsíða 14
blaði
Útgáfufélag: Árogdagurehf.
Stjórnarformaður: SigurðurG.Guðjónsson
Ritstjóri: Trausti Hafiiðason /Æp
Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir om
Fangelsismál
Nýútkomin skýrsla fangelsismálastofnana á Norðurlöndum, þar
sem staðan í fangelsismálum landanna er borin saman, er um margt
athyglisverð lesning. Á íslandi er greinilega ýmislegt jákvætt en einnig
neikvætt.
Það hlýtur að teljast jákvætt að hér á landi eru langfæstir fangar, eða 47
á hverja 100 þúsund íbúa. Sama hlutfall annars staðar á Norðurlöndum er
á bilinu 68 til 78 fangar á hverja 100 þúsund íbúa. Á árunum 2001 til 2005
fjölgaði föngum hlutfallslega minnst hér á landi samanborið við önnur nor-
ræn ríki og á íslandi er hlutfall gæsluvarðhaldsfanga einnig lægst.
í skýrslunni er aftur á móti einnig fjallað um ýmislegt sem yfirvöld hér
ættu að taka til sín. Ýmislegt sem þarf að bæta. Hvergi á Norðurlöndum
eru færri starfsmenn á hvern fanga. Þegar hlutfall starfsmanna á hvern
skjólstæðing skilorðseftirlitsins er skoðað kemur ísland langverst út. Hér
er einn starfsmaður á hverja 100 skjólstæðinga samanborið við til dæmis
12 á hverja hundrað í Noregi. Sveinbjörg Pálsdóttir, deildarsérfræðingur
hjá Fangelsismálastofnun, sagði í Blaðinu í gær að það væri ekki mark-
visst að ein manneskja væri með allan þennan hóp. „Við vitum auðvitað
að það þarf að bæta við fólki,” sagði Sveinbjörg. Það vekur athygli að hér
á landi vegur stuðningur og ráðgjöf við einstaklinga á skilorði þyngra
en eftirlit. Vissulega er mjög brýnt og nauðsynlegt að þessir einstak-
lingar fái stuðning og ráðgjöf en þetta vekur líka upp spurningar um
það hvort ekki sé nauðsynlegt að efla eftirlit i ákveðnum tilfellum. Sér-
staklega getur þetta átt við þau tilfelli þar sem einstaklingur hefur brotið
mjög alvarlega af sér og er kannski andlega vanheill eða beinlínis sjúkur.
Skemmst er minnast þess þegar dæmdur kynferðisafbrotamaður sýndi
einbeittan brotavilja í sjónvarpsþættinum Kompási.
Valtýr Sigurðsson, forstjóri Fangelsismálastofnunar, segir ísland ekki
eftirbát hinna norrænu ríkjanna í fangelsismálum. Að vissu leyti má ef-
laust taka undir orð Valtýs, sem hefur unnið gott starf síðan hann varð
forstjóri stofnunarinnar. Hins vegar er ekkert launungarmál að hér á
landi er víða pottur brotinn í fangelsismálum og er ekki við Valtý að sak-
ast í þeim efnum heldur stjórnvöld.
Hér vantar sárlega gæsluvarðhaldsfangelsi. Á hverju ári fer gríðarlegur
kostnaður, tími og fyrirhöfn í að selflytja fanga frá Litla-Hrauni og í
dómsali á höfuðborgarsvæðinu. Þetta ástand hefur verið viðvarandi á
undanförnum árum en ekkert verið gert. Gæsluvarðhaldsfangelsi á höf-
uðborgarsvæðinu með dómsal myndi leysa þennan vanda. Hér vantar
fangelsisúrræði fyrir unga fanga. Það er ekki boðlegt að þeir skuli þurfa
að dúsa á Litla-Hrauni. Hér vantar einnig meðferðarúrræði fyrir fanga
og þá sérstaklega unga fanga. Að lokum þá vantar fleiri opin fangelsi
eins og Kvíabryggju. I slíkum fangelsum er umhverfið manneskjulegra
en á Litla-Hrauni og líkur á betrun meiri.
Trausti Hafliðason
Auglýsingastjóri: Steinn Kárí Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavik
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
14
FIMMTUDAGUR 29. MARS 2007
blaðiö
Norm-X
Heitir pottar
ísiensk framleiðsla
Heimasíðan okkar er
www.normx.is
Norm-X hefur frá 1 982 sérhæft sig í framleiðslu heitra í
potta sem henta íslenskum aðstæðum einstaklega vel.
Við bjöðum einnig allan tengibúnað, nudd
og Ijósabúnað og tvær gerðir af lokum.
Samstarfsaðili okkar á Akureyri er Tjalda- og
Seglaþjónustan ehf. sími 461-5077
Grettislaug 1500 L Setlaug 2050 L
með legubekk
^U) w
Setlaug 1200L
Snorralaug 2000 L
Norm-X Auðbrekku 6 Kópavogi Sími 565-8899
www.normx.is normx@normx.is
STc)ÓT?HVíiLP mi\ ÁMBií) RP SKiPTA HAFWFiRpí f TVeMNT ETTiR HíLGÍ
Vinstri flokkarnir og
skattamál atvinnulífsins
Ef marka má fréttir fjölmiðla
af fundi Viðskiptaráðs íslands á
þriðjudaginn virðist hugsanlegt
að skilningur stjórnmálamanna á
vinstri vængnum á skattalegri sam-
keppnisstöðu íslenskra fyrirtækja
hafi eitthvað aukist að undanförnu.
Þegar talsmenn þessara flokka svör-
uðu spurningum um tekjuskatt fyr-
irtækja og fjármagnstekjuskatt kom
fram, að ekki væru uppi sérstök
áform af þeirra hálfu um að hækka
tekjuskattshlutfallið og yfirlýsingar
sumra þeirra um hækkun fjármagns-
tekjuskatts virðast hafa verið fremur
varfærnislegar - að minnsta kosti ef
miðað er við málflutning flokkanna
á undanförnum misserum.
Nú er að vísu ekki alveg ljóst af
fréttum hversu afdráttarlausar
þessar yfirlýsingar voru. Þó er haft
eftir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur
að Samfylkingin hafi ekki sérstakar
fyrirætlanir um að hækka fjármagns-
tekjuskatt eða tekjuskatt fyrirtækja.
í þeim orðum virðist felast ákveðin
stefnubrey ting, að minnsta kosti hvað
varðar fjármagnstekjuskattinn. Ýmsir
talsmenn flokksins hafa á undan-
förnum árum orðað hugmyndir um
hækkun þess skatts og í niðurstöðum
Framtíðarhópsins fræga frá vorinu
2005 var beinlínis sagt að hækka bæri
skatthlutfallið en búa jafnframt til sér-
stök skattleysismörk fyrirþá sem njóta
fjármagnstekna af lágum fjárhæðum.
Varðandi tekjuskatt fyrirtækja er líka
rétt að minnast þess að þegar ríkis-
stjórnarflokkarnir lækkuðu skatthlut-
faílið í 18 prósent á síðasta kjörtímabili
treystu samfylkingarmenn sér ekki
til að styðja þá breytingu. Þess í stað
lögðu þeir til að skat thlutfallið myndi
Klippt & skorið
Pétur Gunnarsson erenn sem fyrr með
puttana á púlslnum á vefsíðu sinni hux.
blog.is. Hann ritar: „Hlynur Hallsson,
varaþingmaður VG, beinir
orðum að Sæunni Stefáns-
dóttur, þingmanni fram-
sóknar, í umræðum um RÚV
ohf. á Alþingi og segir: En
það er ennþá sorglegra að sjá svona unga og
hressa og glæsilega konu sem hv. þingmaður
er, koma hér upp og reyna í nokkrum orðum
að sannfæra sjálfa sig um að ekki eigi að einka-
væða Ríkisútvarpið." Pétur bendir á að rót-
tækninni í femínismanum sé ekki logið upp á
þá ÍVG. Eins og hann orðar það: „...þeireru svo
róttækir að þeir hljóma stundum eins og hvert
annað gamalt karlrembusvín, ég hélt að menn
væru almennt komnir út úr því að tala niðurtil
kvenna á þennan hátt."
einungis lækka í 25 prósent. Loks má
minna á að þegar stjórnarflokkarnir
afnámu eignarskatt fyrirtækja fyrir
þremur árum greiddu þingmenn Sam-
fylkingarinnar atkvæði á móti tillög-
unni með þeirri skýringu Jóhönnu Sig-
urðardóttur að atvinnulífið hefði þá
þegar fengið nægar skattalækkanir!
Ekki er ljóst hvort eða hvað tals-
maður Vinstri grænna, Katrín Jakobs-
Birgir Armannsson
dóttir, sagði um tekjuskatt fyrirtækja.
En ef flokkur hennar hefur ekki í
hyggju nú að hækka þetta hlutfall er
alveg örugglega um stefnubreytingu
að ræða, því talsmenn flokksins
hafa jafnan haldið uppi harðri gagn-
rýni á núverandi ríkisstjórn fyrir að
standa fyrir skattalækkunum í þágu
fjármagns og fyrirtækja. Þegar tekju-
skatturinn var lækkaður í 18 prósent
töldu þingmenn flokksins þá breyt-
ingu bæði óskynsamlega í ljósi efna-
hagsástandsins og óréttláta, þvi hún
nýttist aðeins þeim fyrirtækjum sem
skiluðu hagnaði, svo vitnað sé til orða
Ögmundar Jónassonar. Sömu viðhorf
hafa svo endurómað í ræðum þing-
manna flokksins á þessu kjörtímabili
hvenær sem skattamál hafa verið til
umræðu.
Gamli fréttahaukurinn og nú almann-
atengillinn Atli Rúnar Halldórsson
veltir á bloggi sínu, eins og klippari
hér í gær, fyrir sér nýjum reglum stjórnmála-
flokkanna um auglýsingakaup fyrir kosn-
ingar: „Fyrir það fyrsta: samráð stjórnmála-
flokka um að takmarka auglýsingar er út í
höttsem slíkt. Þeirsem ráða
ríkjum á þessum bæjum
hljóta að hafa dómgreind
til að meta sjálfir hve mikla
peninga þeir nota 1' auglýs-
ingar hverju sinni, rétt eins og allir aðrir sem
auglýsa. (öðru lagi væri nú fróðlegt að vita
hvernig flokksrekendur duttu niður á þessa
mögnuðu tölu: 28 milljónir. Af hverju ekki 18
eða 38? Kom þá ekki líka til greina að vera
alheilbrigður og halda alveg kjafti í auglýs-
ingum fram yfir kosningar?"
Varðandi fjármagnstekjuskattinn
þá hefur afstaða VG lengi legið skýr
fyrir. Þingmenn flokksins hafa ít-
rekað flutt frumvörp um að hækka
hlutfall fjármagnstekjuskatts í 18 pró-
sent en koma á frítekjumarki fyrir
fjármagnstekjur undir 120 þúsund
krónum á ári. Kannski má skilja um-
mæli Katrínar Jakobsdóttur um 14
prósenta skattþrep, sem vitnað er til
í Viðskiptablaðinu, sem einhverja til-
slökun frá fyrri stefnu, en það gefur
tilefni til að kalla fram afdráttarlaus-
ari yfirlýsingar í þessum efnum af
hálfu flokksins, sem löngum hefur
gert út á þá ímynd að hann tali skýrt
og sé sjálfum sér samkvæmur.
En hvort sem fundur Viðskipta-
ráðsins boðar stefnubreytingu af
hálfu vinstri flokkanna eða ekki
er að minnsta kosti ljóst í hvaða átt
Sjálfstæðisflokkurinn vill stefna.
Geir H. Haarde, forsætisráðherra,
sagði skýrt á fundinum að halda
ætti hlutfalli fjármagnstekjuskatts
óbreyttu og lækka tekjuskatt fyrir-
tækja niður í 10 til 15 prósent. Það er
í góðu samræmi við stefnu flokksins
á undanförnum árum um að bæta
samkeppnisstöðu íslensks atvinnu-
lífs í alþjóðlegri samkeppni, þar sem
einfalt skattkerfi og lág skatthlut-
föll eru mikilvægt samkeppnistæki.
Reynslan sýnir líka ótvírætt, að sú
stefna hefur reynst vel í framkvæmd
og orðið til þess að stækka kökuna
sem til skipta er. Er hugsanlegt að
innan vinstri flokkanna sé eitthvað
farið að örla á skilningi á því sam-
hengi hlutanna?
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Króníkan er komin út og njóta nú þeir
sem kaupa blaðið stjórnmálainnsæis
aðstoðarritstjórans Örnu Schram. (
nýútkomnu blaðinu metur hún stöðu flokkanna
eftir kosningar. Þeir sem vilja hins vegar síður lesa
geta labbað framhjá skrifstofum Króníkunnar á
Hverfisgötunni og fýlgst með blaðamanninum
þar. Arna ritar á blogg sitt: „Við
vinnum í opnu rými og auðvelt
að kíkja inn á okkur frá götunni. f "
Minnir að því leytinu til á stóru
dagblöðin í Skandinavíu sem
hafa aðsetur í miðbænum. Mér hefur alltaf þótt
það sjarmerandi. En ég verð að viðurkenna að
stundum líður mér eins og gullfiski í fiskabúri, þvi
fólká það til að stoppa við gluggana okkarog stara
inn, eins og við séum... jú fiskar í fiskabúri..."
gag@bladid.net