blaðið - 29.03.2007, Side 16
16
FIMMTUDAGUR 29. MARS 2007
blaðið
ESB, hve langt
ætlarðu að ganga?
Hvert ætlar Evrópusambandið að
fara? Mig langar að ræða málefni sem
brennur á mér en það eru mismunandi
réttindi íbúa innan Evrópusambands-
ins og utan þeirra. Mér finnst eins
og múr hafi verið reistur á milli ibúa
innan sambandsins og annarra þegar
kemur að almennum, borgaralegum
réttindum í þessum löndum og sá múr
virðist fara hækkandi.
Eins og við vitum vel, er það stefna
ESB að móta sterkt efnahagslegt og pól-
itískt bandalag i Evrópu, sumir segja
nokkurs konar „ríki yfir ríkjunum”.
ESB hefur innleitt fjórfrelsið svokall-
aða, stefnt að upptöku sameiginlegrar
myntar, evrunnar, og styrkt Evrópu-
þingið í sessi. í kjölfarið hafa réttindi
íbúa innan ESB jafnast að mörgu leyti
og þægindi, t.d. við flutning á milli
landa aukist.
Island er ekki í ESB, en hefur
samt aðild að bandalaginu í gegnum
EES-samninginn og Schengen-sam-
komulagið og mörg af skyldum og
réttindum sambandsins falla því í
hlut íslands. Hér er t.d. skylt að aug-
lýsa eftir atvinnuumsóknum innan
EES-svæðisins áður en leitað er eftir
starfskröftum utan þess. Vinnumark-
aður Islendinga á að vera jafnopinn
þegnum ríkja á EES-svæðinu og Islend-
ingum sjálfum. Hins vegar skal haft
strangt eftirlit með komu erlendra rík-
isborgara utan ESB samkvæmt reglum
Schengen-samkomulagsins. Island er
því ekki alveg innan múra ESB, það
má segja að landið sé á sérlóð en teng-
ist bandalaginu í gegnum ákveðið hlið.
Á sama tíma og ESB-borgarar eiga
auðveldara með að komast á milli
og inn í ríki sambandsins verður
það sífellt erfiðara fyrir ríkisborg-
ara utan sambandsins. „Að komast
inn í ESB“ þýðir ekki einungis að fá
að starfa í ESB-landi heldur einnig
að búa þar, með fjölskyldu sinni eða
leita hælis í ESB.
Ef borin eru saman réttindi ríkis-
borgara lands sem er í ESB og þess sem
er það ekki gagnvart þriðja aðildarríki
ESB er munurinn skýr, nánast eins og
svart og hvítt. ESB-ríkisborgari nýtur
næstum sömu réttinda og sá sem er
innfæddur ríkisborgari. Hann getur
búið þar sem hann vill og starfað
við það sem hann vill. Hinn er utan-
garðsmaður og verður að þræða sig
Hversu mikið má
„bandalag ríkja“
mismuna þegnum
þessa heims á
þennan hátt?
Umrœðan
Toshiki Toma
eftir flóknum leiðum sem stundum
likjast helst þrautum til þess að fá að
búa í landinu, jafnvel þótt lífi hans og
fjölskyldu hans sé hætta búin í heima-
landi hans.
Ég veit um og viðurkenni rétt sér-
hverrar, fullvalda þjóðar til þess að
vernda ríkisborgara sína og veita þeim
ákveðin forréttindi. Það sem angrar
mig er að ESB er ekki „þjóð” í sömu
merkingu og þegar rætt er um full-
valda þjóðir. Það er enn „bandalag“
sjálfstæðra ríkja og ég er því efins um
að þetta sé mismunun á grundvelli
fullveldisins. Ef ég leyfi mér að nota dá-
lítið tilfinningaríkari tjáningu, þá virð-
ist mér stefna ESB eins og hún er núna
eins og: „Við í Evrópu erum góðir vinir,
en þið i Asíu og Afríku getið verið úti.”
I 26. gr. alþjóðasamnings um borg-
araleg og stjórnmálaleg réttindi segir
m.a.: „Allir eru jafnir fyrir lögunum
og eiga rétt á sömu lagavernd án nokk-
urrar mismununar. Lögin skulu því i
þessu skyni banna hvers konar mis-
munun ... vegna kynþáttar, ... þjóð-
ernisuppruna eða félagslegs uppruna,
eigna, ætternis eða annarra aðstæðna."
Er gildi þessa ákvæðis líka misjafnt
eftir því hvort menn eru inni í ESB eða
utan?
I Japan er til málsháttur sem
hljóðar: „Förum öll yfir á rauðu
ljósi og við þurfum ekkert að óttast.”
Hann segir raunverulega að þegar
einstaklingur brýtur lög þá er það
glæpur en þegar fjöldi manna brýtur
lög saman þykir það ekki lengur
glæpsamlegt. Mér sýnist stefna ESB
undanfarin ár falla að þessum máls-
hætti að nokkru leyti. Svo langar
mig til að spyrja, hversu langt má
ESB ganga á þessari leið? Hversu
mikið má „bandalag ríkja“ mismuna
þegnum þessa heims á þennan hátt?
Höfundur er prestur innflytjenda
•. ■*
Nútímaálver / dag eru starfsmenn
HRV að vinna að endurbyggingu ái-
vers í Sundsvall i Svíþóð. Þar er verið
að breyta gömlu álveri með úreltri
tækni í nútímaálver með bestu tækni.
:
Álið og atvinnulífið
Það fer ekki á milli mála að í vor
eru alþingiskosningar. Slagurinn
um atkvæðin er hafinn og hinir
undarlegustu „frasar” heyrast aftur
og aftur. Einn er sá að undanfarinn
áratugur hafi verið áratugur stór-
iðju og stóriðjuframkvæmda en að
nú sé kominn tími til að setja nýjar
atvinnugreinar í öndvegi. Oftar en
ekki er verið að tala um atvinnu-
greinar sem byggja á hátækni og að
kominn sé tími til að setja þekking-
ariðnaðinn í öndvegi.
Hér er vert að staldra við. Getur
það verið að margir frambjóðendur
þekki ekki atvinnulíf landsmanna
betur en það að þeir trúi því að há-
tækni fylgi ekki því sem gert hefur
verið á undanförnum árum og
að þekkingariðnaður hafi ekkert
eflst? Ef svo er þá er rétt að fara
örlítið yfir hvað felst í orðunum
hátækni- og þekkingariðnaður. Há-
tækni- og þekkingariðnaður felst í
mörgum mannanna verkum. Stór
hluti af starfsemi sjávarútvegsfyr-
irtækja okkar byggir á hátækni- og
þekkingariðnaði. Fyrirtæki eins og
Marel og Össur eru fyrirtæki í há-
tækni- og þekkingariðnaði. Virkjun
okkar umhverfisvænu orku, bæði
vatnsafls og jarðvarma, byggir á
hátækni- og þekkingariðnaði. Starf-
semi álvera byggir á hátækni- og
þekkingariðnaði.
Umræðan einkennist af neikvæðni
Sá sem þessar línur ritar á því
verulega erfitt með að átta sig á
hvernig hægt er að halda því fram
að ekki hafi verið unnið að eflingu
fyrirtækja í hátækni- og þekkingar-
iðnaði undanfarin ár. Allar þær verk-
fræðistofur og hliðstæð ráðgjafarfyr-
irtæki sem eru að selja innanlands
sem utan sérþekkingu sína í nýtingu
jarðhita og vatnsafls, sjávarútvegi og
nú síðast en ekki síst í orkufrekum
iðnaði (öðru nafni stóriðju) eru hluti
af öflugum hátækni- og þekkingar-
iðnaði sem hefur eflst mikið undan-
farin ár, þökk sé áratugi stóriðju- og
virkjanaframkvæmda.
Umræða um stóriðju einkennist
hérlendis af einhverjum orsökum
af neikvæðni. Landsmenn eru hins
vegar vel upplýstir og láta ekki ru-
gla sig í þeim efnum. Stuðningur
landsmanna við nýtingu orkulinda
landsins fyrir orkufrekan iðnað
sýnir það. Frá því að Alcan (áður
ísal) og Norðurál hófu stækkun og
nýbyggingu álveranna í Straumsvík
og á Grundartanga hafa stjórnendur
fyrirtækjanna haft að leiðarljósi að
nýta innlenda þekkingu sem mest
og stuðlað þannig að uppbyggingu
verðmætrar hátækniþekkingar á
alþjóðavísu sem er orðin verðmæt
útflutningsvara. Innan HRV ehf.
hefur þessi þekking orðið til. 1 dag
eru starfsmenn HRV að vinna að
endurbyggingu álvers í Sundsvall í
Svíþóð. Þar er verið að breyta gömlu
álveri með úreltri tækni í nútímaál-
ver með bestu tækni.
Samofin heild
Sem sagt, hin skelfilega stóriðju-
stefna stjórnvalda undanfarinn
áratug hefur leitt til þess að efna-
hagur landsmanna er byggður á
fleiri og styrkari undirstöðum en
áður. Þessi stóriðjustefna hefur
ennfremur leitt til þess að á íslandi
hefur byggst upp öflugur hátækni-
Þaðerrangtað
stilla atvinnugrein-
um upp hvorrí gegn
annarrí eins og oft
er veríð að gera.
Umrœðan
Eyjólfur Árni Rafnsson
og þekkingariðnaður í tengslum
við hönnun, byggingu og rekstur
álvera. Hátækni- og þekkingariðn-
aður sem er orðinn útflutningsvara
og sá útflutningur á eftir að aukast
enn frekar á næstu árum. Margir
háværir aðilar sem um áliðnaðinn
fjalla á neikvæðum nótum mættu
nú gjarnan kynna sér þessar stað-
reyndir í stað þess að hamast á
lifibrauði okkar sem í þessum at-
vinnuvegi vinnum. Sá sem hefur
lifibrauð sitt af starfsemi tengdri
orkufrekum iðnaði eða stóriðju
getur veitt sér það að kaupa Drauma-
landið hans Andra Snæs, fara á
veitingahús, fara í ferðalög o.s.frv.
Þannig nýtur listin, landbúnaður-
inn og ferðaþjónustan afraksturs
þessa atvinnurekstrar óbeint. Allt
er þjóðfélagið og atvinnulífið sam-
ofin heild og það er rangt að stilla
atvinnugreinum upp hvorri gegn
annarri eins og oft er verið að gera.
Þennan grundvallarskilning skortir
í pólitískri umræðu hjá of mörgum,
umræðu sem æ oftar snýst um til-
finningar stundarinnar en ekki um
heildarmynd, langtímasjónarmið
eða hagsmuni þjóðarinnar.
Höfundur er framkvæmdastjóri HRV ehf
MEGA
OMEGA-3
1300 mg
Framkvæmdasjóð aldraðra
á ekki að misnota
I Framkvæmdasjóð aldraðra
greiða allir landsmenn nefskatt til
að byggja upp þjónustu við aldraða.
Það er hneisa að fé úr sjóðnum sé
notað í hin og þessi verkefni þegar
400 aldraðir bíða í brýnni þörf
eftir hjúkrunarrýmum, hátt í 1000
aldraðir hjúkrunarsjúklingar eru í
þvingaðri samvist í fjölbýlum og 70
manns eru fastir inni á Landspítala
í allt að ár vegna þess að þeir komast
ekki inn á hjúkrunarheimili.
Ekkert nýtt hjúkrunarpláss hefur
bæst við á síðasta ári og ekkert á
þessu ári. Þrátt fyrir fögur loforð
heilbrigðisráðherra ríkisstjórnar-
innar reglulega í tólf ár er ástandið
svona. Framkvæmdirnar á þeim bæ
Við munum leysa
hjúkrunarvand-
ann á tveimur
árum kom-
umst við í
ríkisstjóm.
Ásta R. Jóhannesdóttir
eru ein skóflustunga í ár!
„Ný sýn - Nýjar áherslur". Fram-
kvæmdasjóður aldraðra var látinn
greiða fyrir gerð og útsendingu kynn-
ingarbæklings heilbrigðisráðherra
með þessari y firskrift um persónulegar
áherslur hennar í öldrunarmálum. Ef
til vill löglegt, en er það siðlegt?
Þjóðarátak Svavars Sigurðssonar
gegn eiturlyfjum, Óperukórinn,
Söngskólinn í Reykjavík, Háskóli Is-
lands, Ungmennafélag íslands, Tóna-
ljón og fjöldi einstaklinga og sam-
taka hafa fengið styrki úr sjóðnum,
jafnvel án þess að vita að pening-
arnir komi þaðan. Allt án efa ágætis
verkefni, - en á Framkvæmdasjóður-
inn að standa straum af þeim?
Skuldar ríkisstjórnin ekki öldr-
uðu, veiku fólki afsökunarbeiðni á
þessu? Afsökunarbeiðni á meðferð
mikilla peninga úr mörkuðum tekju-
stofni, Framkvæmdasjóðnum, í
ýmis gæluverkefni þegar verkefnin
sem sjóðurinn var stofnaður til að
kosta með sérstökum skatti eru
látin sitja á hakanum.
Samfylkingin ætlar að tryggja að
greiðslur úr Framkvæmdasjóði aldr-
aðra verði notaðar í uppbyggingu í
þeirra þágu. Ekki er vanþörf á.
Við jafnaðarmenn munum leysa
hjúkrunarvandann á næstu tveimur
árum komumst við í ríkisstjórn.
Við stöndum við gagnrýni okkar
á framgöngu og vanrækslu ríkis-
stjórnarinnar í málefnum aldraðra.
Ástandið í hjúkrunarmálunum er tal-
andi dæmi um það að 12. maí verður
að gefa ríkisstjórnarflokkunum frí.
Höfundur er alþingismaður
Margir litir Glæsilegar þýskar dragtir.
Allar stærðir
vEPhlistiniL
Stakir jakkar og pils- Ný sending
við Laugalæk • sími 553 3755