blaðið - 29.03.2007, Síða 18
18
FIMMTUDAGUR 29. MARS 2007
folk@bladid.net
HEYRST HEFUR
SAMKVÆMT DV mun Sturla
Böðvarsson samgönguráðherra
lesa upp úr Passíusálmum Hall-
gríms Péturssonar í kirkju einni i
Grafarvoginum. Sumir telja þetta
merki um augljósar atkvæðaveiðar
i harðnandi kosningabaráttu og að
þetta sé ekki það sérkennilegasta
sem landsmenn eigi eftir að sjá hjá
stjórnmálamönnunum. Þá hefur
kviknað upp sú hugmynd meðal
gárunga að það
væri vel við hæfi
að Frjálslyndi
flokkurinn læsi
upp úr barna-
bókum fyrir leik-
skólabörn. Ogþá
væri fátt meira
viðeigandi
en Litli svarti
Sambó...
HAFI einhver verið í vafa um
bragðgæði Búlluhamborgaranna
hans Tomma þá er honum hér
með eytt. Það sást til Sigmars B.
Haukssonar, matgæðings með
meiru, troða í sig einum tvöföldum
með bestu lyst á dögunum og þá
þarf ekki frekari vitnanna við.
Þessi formaður Skotveiðifélagsins
naut matar sins það mikið að
menn höfðu á orði að sennilega
væri um rjúpnaborgara að ræða,
en sökum veiðikvótans
verður það að teljast
ólíklegt, þar sem
kostnaðurinn við
slíkan borgara gæti
dekkað kostnað við
áfyllingu meðal-
sparneyt-
ins jepp-
lings...
PÁLL Rósinkrans söngvari með
meiru er skilinn samkvæmt mest
lesna glanstímariti landsins. Það
rennir óneitanlega stoðum undir
þá sögu, að kappinn er byrjaður í
einkaþjálfun í Sporthúsinu. Slíkt
er vist ekki óalgengt meðal manna
sem eru komnir „á markaðinn“
og má vænta þess að
söngvarinn
rauðbirkni
lendi fljótt
á forsíðum
glanstíma-
ritanna,
enda vel
vaxnir gull-
barkar ekki
á hverju
strái...
HVAÐ Voru Reyðfirðingar súrir á
FIP^NST svip við komu súrálsins?
ÞER?
„Nei, það brostu allir héma."
blaftiö
Helga Jónsdóttir, bæjarstjóri
Fjarðabyggðar
Flutningaskipið Pine Arrow flutti í gær fyrsta súrálsfarminn til
Reyðarfjarðar. Um 40.000 tonn bárust álveri Alcoa Fjarðaáls til úr-
vinnslu, en fyrir hvert framleitt tonn af áli þarf um tvö tonn af súráli.
Björgvin Franz:
5687l*Mo*,!Hm
'to-seu.B'.
CLS,BOWm70
mF^roi4BH
' CPft/OOKí ■ 1S6’
^'«8752*;^..,
Björgvin Franz
Leggur mikinn
metnað og
vinnu i grínið
Rekur í rogastans!
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
Björgvin Franz Gíslason þarf vart
að kynna fyrir Islendingum. Hann
sló eftirminnilega í gegn í áramótas-
kaupi Sjónvarpsins um árið með frá-
bærum eftirhermutöktum þar sem
hann tók fyrir helstu poppara lands-
ins. Og síminn hefur ekki stoppað
síðan...
„Það er rétt, ég er búinn að vera
að skemmta nánast stanslaust eftir
þetta áramótaskaup og hef ekki
leikið á leiksviði síðan í mars 2006.
Viðtökurnar hafa verið ótrúlega
góðar og mig rekur alveg í rogastans.
Þetta er alveg frábær vinna,“ segir
Björgvin.
Björgvin segir mikla vinnu og und-
irbúning að baki hverri skemmtun
og að hann leggi metnað sinn í að
skila verki sínu vel frá sér.
„Ég reyni að afla eins mikilla upp-
lýsinga og ég get um viðkomandi
fyrirtæki sem ég skemmti fyrir. I
rauninni þá stúdera ég viðkomandi
fyrirtæki líkt og ég væri starfsmaður
þess. Þá afla ég mér upplýsinga
um vissa starfsmenn sem ég síðan
get grínast með í uppistandinu og
þannig verður grínið persónulegra
og í raun miklu fyndnara fyrir vikið
þar sem salurinn getur tengt sig við
NY SENDING
AF FLOTTUM TÖSKUM OG SKARTI!
LAUGAVEG 80 - SIMI: 561 1330
grínið. í raun er þetta svipað og að
skrifa ritgerð, bara grínritgerð!“
Björgvin segir eftirhermuvinn-
una ekki minni, enda sé það fastur
liður sem fólk væntir að sjá.
„Samtals eru þetta um 9 karakt-
erar sem ég skipti á milli sýninga.
Það komast í mesta lagi um 5-6
fyrir í hverri sýningu og því rótera
ég þeim alltaf til að halda þeim
„77/ þess að herma eftir
einhverjum þarf ég fyrst
að geta náð röddinni. Ein-
hverjum blæbngðum eða
orðum og setningum verð
ég að geta náð til þess
að halda áfram með þann
karakter.
ferskum og skemmtilegum. Fólk
býst við að sjá eftirhermurnar og
því ærin ástæða til þess að gera
ávallt eins vel og hægt er. Til þess
að herma eftir einhverjum þarf
ég fyrst að geta náð röddinni. Ein-
hverjum blæbrigðum eða orðum og
setningum verð ég að geta náð til
þess að halda áfram með þann ka-
rakter. Síðan stúdera ég hreyfingar
og horfi á myndbönd af viðkom-
Su doku
HERMAN
BLOGGARINN...
Hrafninn lýgur...?
„„Líklega er rétt hjá mér að konur
sem ístórum hópum segjast ætla
að kjósa VG séu að skrökva. Konur
í eðli sína velja sér þá sem þær telja
að geti skaffað. Allir vita að Vinstri
grænir geta ekkert skaffað, kunna
engin úrræði til að skaffa og boða
stefnu, sem yrði
hreint afturhvarf til
atvinnuleysis og
hnignunar
Ingvi Hrafn Jónsson
hrafnathing.blog.is
andi. Svolítið absúrd vinna í raun-
inni! Síðan hef ég blessunarlega
notið aðstoðar Selmu Björnsdóttur
sem er bæði klár og skemmtileg og
hefur gefið mér frábær ráð. Ekki
skemmir svo fyrir að hún hefur
unnið með flestum þessara per-
sóna sem ég hermi eftir og því alveg
sérdeilis frábært að hafa svona inn-
anbúðarkonu til að hjálpa sér!“
Björgvin segist ekki hræddur um
að festast í gríninu. Hann segist op-
inn fyrir öllu sem tengist leiklist en
viðurkennir að stundum sé erfitt að
geta ekki eytt meiri tíma með konu
og barni.
„Ég vinn auðvitað mest um helgar
við að skemmta, en undirbúningur-
inn tekur alla vikuna á undan. Ætli
ég sé ekki meiri vikupabbi en helgar-
pabbi í þeim efnum og nýti auðvitað
hvert tækifæri til þess að vera með
fjölskyldunni. Annars er maður
alltaf á tánum varðandi spennandi
verkefni og útilokar í rauninni ekki
neitt í þeim efnum. Þetta er lítið
land og kannski kemur að því að
maður verði kominn hringinn með
eftirhermugrínið, þó svo að erfitt
sé að átta sig á því. Þess vegna legg
ég alltaf áherslu á að endurnýja
prógrammið í takt við tímann svo
það staðni ekki,“ sagði Björgvin að
lokum.
Seinheppin
Marshall-aðstoð
„/ fréttatíma Stöövar 2 í gær var sagt
frá metfiskeríá miðunum kringum
landið og bátar kæmu drekkhlaðnir
íland eftir nokkurra tíma veiöi. Á
forsíðu Moggans i dag er talað um
smábáta sem mokfiska og sagt að
allir mokfiski sem komist á sjó, enda
hafi veturinn verið erfiður vegna
veðurs. Sem sé allt að gerast á
miðunum; einstök aflabrögð og allir
mokfiska sem á annað borð komast
á sjó. I miöopnu Morgunblaðsins er
svo að finna aðsenda grein frá Ró-
berti Marshall, þing-
mannsefni Samfylk-
ingarinnar. Greinin
ber yfirskriftina:
Þegar miðin eru
dauð. Óhepp-
inn maður
Róbert."
Björn Ingi Hrafnsson
bingi.blog.is
Rétttrúað kjallara-
greinarbull
„ Þorgerður Einarsdóttir skrifar rugl
ársins í Fréttablaðiö í dag. Hún kvart-
aryfir, að umhverfisflokkur Ómars
Ragnarssonar hafi ekki kvenfrelsi á
oddinum. Hún kvartaryfir, að Margr-
ét Sverrisdóttir sé ekki formaður.
Það er eins og Þorgerður komi út
úr kú. Umhverfisflokkur Ómars var
stofnaður vegna umhverfismála, ekki
kvennamála. Tákn flokksins er Ömar
sjálfur, umhverfispostulinn. Ef Margr-
ét væri formaður, mundi flokkurinn
ekki vera trúverðugur
sem umhverfis-
flokkur. Grein
Þorgerðar er rót-
tækt dæmi um
bullið, sem þrífst
í kjallaragreinum
rétttrúaöra."
VdCl I lUI 11IdUUI, III
ekki i/
X .
Jónas Kristjánsson
^ www.jonas.is
eftir Jim Unger
8 9 4 1 2
7 4 6
6 7 5
7 1 9 2
3 8 5 7 9
4 3
9 4 8 7
3 4 1 7
2 9 6
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Maðurinn í gæludýrabúðinni sagði
að hann þyrfti að æfa sig.