blaðið - 29.03.2007, Side 35
f
blaöió
FIMMTUDAGUR 29. MARS 2007 43
FRUMSÝNINGAR
UM HELGINA
Hot fuzz
Leikstjóri: Edgar Wright
Aðalhlutverk: Simon Pegg, Nick Frost
IMDb: 8.1 af 10
rottentomatoes.com: 76% af 100%
metacritic.com: Vantar
Miss Potter
Leikstjóri: Chris Noonan
Aðalhiutverk: Renee Zellweger, Ewan McGregor
IMDb: 7.1 af 10
rottentomatoes.com: 63% af 100%
metacritic.com: 6.8 af 10
School for Scoundrels
Leikstjóri: Todd Phillips
Aðalhlutverk: Billy Bob Thornton, Jon Heder
IMDb: 5.8 af 10
rottentomatoes.com: 25% af 100%
metacritic.com: 5 af 10
Villisvín í
vandræðum
Kvikmyndin Wild Hogs skartar
nokkrum vel þekktum miðaldra
Hollywood-leikurum sem leika
lífsþreytta miðaldra karlmenn. Til
að flýja grámyglulegan veruleik-
ann, eiginkonur sínar og vanda-
mál, þeysa þeir á mótorfákum,
klæddir leðri og finna frelsið og
vindinn leika um andlitið. Mynd-
in byrjar ágætlega þegar persónur
eru kynntar til leiks.
WildHogs
• Bíó:
Sambíóin.
• Leikstjóri:
Walt Becker.
• Aðalleikarar:
Tim Allen. John
Travolta, Martin
Lawrence, William
H. Macy, Ray Liotta
og MarisaTomei.
Trausti Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
Kvikmyndir ★ ★
Aðalleikararnir komast allir
ágætlega frá sínu, þó oft beri á
ofleik eins og gjarnan tíðkast í
gamanmyndum sem þessum. Að
auki fara þau Marisá Tomei og
Ray Liotta með stór hlutverk.
Söguþráðurinn er einfaldur
og helst til bitlaus. Húmorinn
staðnar þegar V* myndarinnar er
búinn og ekkert óvænt gerist til
að halda áhorfendum spenntum.
Því verða brandararnir fyrirsjáan-
legir, klisjukenndir og lýsingin
„gamanmynd fyrir alla fjölskyld-
una“ öðlast enn á ný neikvæðan
„gæða“-stimpil.
Hugmyndin að myndinni er
góð út af fyrir sig, en handritið
sjálft mætti vera betra og beittara.
Til grundvallar liggja ótal mót-
orhjólamyndir sem auðveldlega
hefði mátt vitna í með hlægileg-
um afleiðingum en þess í stað er
kosið að endurtaka suma brand-
arana, eins og með hommafóbíu
félaganna, sem hættir að verða
fyndið eftir nokkur skipti.
Þó áhorfendur uppskeri að
vísu nokkur hlátrasköll í mynd-
inni eru þau ekki nógu mörg né
innileg til þess að myndin verði
eftirminnileg gamanmynd.
H
Ævi og ástir
Austen-kvenna
Anne Hathaway leikur
Jane Austen Væntan-
leg er mynd sem fjallar
um líf og ástarævintýri
Jane Austen þegar hún
var ung og ekki byrjuð
að skrifa rómanana.
Kvikmyndir byggðar á bókum Jane
Austen hafa verið vinsælar hjá kven-
þjóðinni i gegnum tíðina.
Á Viktoríutímanum voru allir karl-
menn ótrúlega myndarlegir, allavega
samkvæmt Austen og miklir herra-
menn. En lífið var ekki bara fallegt
og rómantískt á Viktoríutímanum og
á vegi ungra kvenna leyndust ýmsar
hættur og gildrur sem þær þurftu að
yfirstíga. Hér eru nokkur ráð fyrir
yngismeyjar sem vilja lifa lífinu upp
úr Austen-bók.
Daður og stefnumót
Ef þú heillast af einum herramanni
öðrum fremur skaltu ekki bara bjóða
honum í bíó eða upp á bjór; sendu hon-
um frekar boðskort þar sem þú býður
honum að eýða með þér kvöldstund
á heimili þínu. Nauðsynlegt er einnig
að bjóða nánustu fjölskyldu þinni og
að minnsta einum presti til að vera
siðgæðisverðir.
Láttu tilfinningarnar ráða
Ef þú lendir í aðstæðum sem eru
óyfirstíganlegar á einhvern hátt og
þú átt þér engrar undankomu
auðið er besta ráðið að láta
líða yfir sig. Þetta virkar
einnig ef þú roðnar að-
eins of mikið í návist álit-
legra karlmanna.
Stattu vörð um
meydóminn
Samkvæmt Austen-
lífsstílnum líkar engum
við spilltar ungar konur. Ef
þú lendir í heitum aðstæðum
með álitlegum karlmanni skaltu
umfram allt berjast á móti löngunum
þínum og þrám. Það er ekki einungis
mannorð þitt sem hér um ræðir held-
ur mun mannorð allrar fjölskyldunn-
ar fara með þér niður í svaðið.
Úlfar í sauðargæru
Ef glæsilegur herramaður biður
þig um að giftast sér en þú efast um
heiðarleika hans skaltu alltaf segja
nei. Samkvæmt Jane Austen eru
flestir karlmenn flögð undir fögru
skinni og á Viktoríutímanum voru
/ úlfar í sauðargæru
fjölmennir í hverri
Framakonan
Það er eins gott að þú eigir bræður
því annars mun fjölskylduauðurinn
enda í höndum einhvers vafasams
frænda eftir lát foreldra þinna. Þú
getur ekkert gert í stöðunni nema
ráða þig í vist eða verða vændiskona,
eftir því hvar áhugasvið þitt liggur.
Ekki hlaupa í hjónaband
Ef þú giftist þeim fyrsta sem sýn-
ir þér áhuga er nokkuð vist að þú ert
að fara á mis við þann rétta.
Viskustykki Jane Austen
Berðu virðingu fyrir sjálfri þér,
stattu vörð um það sem þú trúir á,
breyttu til hins betra og hafðu trú
á náunganum. Þetta voru góð ráð
sem Jane Austen gaf konum á Vikt-
oríutímanum og þau eiga vel við
enn þann dag í dag.
Ekki horfa bara á útlitið
Ekki velja þér mann bara eftir
útliti. Þeir sem eru hræðilega vel
útlítandi eru yfirleitt með kolsvart
rnjöl í pokahorninu, hvort sem það
eru brostin kvenhjörtu úti urn allar
sveitir eða óskilgetin börn í hverri
höfn.
SÉÐ OG DÆMT
„[...] Enda hefur hún allt það sem gott æv-
intýri þarfað hafa; spennu, ást, tragedíu
og húmor."
AFB
300
★★★★★
„ Goðsagnalegt og draumkennt útlitið eykur
dramatikina sem er þó nóg fyrír með frekar
klisjulegrí tónlistá tíðum.“
TSK
Epic Movie
0
„Epic Movie er glötuð mynd að öllu leyti.
Söguþráðurínn erdrasl, leikaramir lélegir
og verst af öllu; Epic Movie er ekki fyndin."
AFB
Norbit
★
„Flestir brandaramir eru á parí við með-
algott kvöld hjá Spaugstofumönnum og
eru endurteknir reglulega í gegnum alla
myndina
TSK