blaðið - 17.04.2007, Side 18
26
ÞRIÐJUDAGUR 17. APRIL 2007
blaðið
Skóli morgundagsins
Umræðu- og kynningarfundur fyrir kennara um nýja mennta-
stefnu grunn- og framhaldsskóla fer fram í sal Menntaskól-
ans á Akureyri í dag klukkan 16:10 og í sal Menntaskólans
við Hamrahlíð á morgun klukkan 15.
Opið hús á Bifröst
Opinn dagur verður í Háskólanum á Bifröst sumardag-
inn fyrsta og verður tekið á móti gestum og gangandi
milli klukkan 14 og 17. Nemendur og kennarar verða á
staðnum og svara spurningum um nám og aðstöðu.
4 uikna
vormvnskeið
hefst 23. apríl
Safnaðarheimili Háteigskirkju
Háteigsvegi • Sími 552 5620
Félag íslenskra listdansara
Upplagt til kynningar
fyrir byrjendur.
Innritun og upplýsingar
í síma 561 5620.
www.schballett.is
BALLETTSKÓLI
'■jWu zSchevincý
Olnbogabörn í skólasamfélaginu
Lenda oft úti í horni
Enn finnast olnbogabörn í
skólasamfélaginu sem get-
ur farið illa fyrir ef þau fá
ekki þá aðstoð og hjálp
sem þau þurfa á að halda.
Þetta eru til dæmis börn og ungling-
ar sem eiga við ýmis vandamál að
stríða svo sem hegðunarerfiðleika,
samskiptaerfiðleika eða félagslega
einangrun. Staða þessara barna verð-
ur rædd frá ýmsum hliðum á mál-
þingi sem Félag íslenskra uppeldis-
og meðferðarstofnana fyrir börn og
unglinga (FÍUM) heldur í Rúgbrauðs-
gerðinni á morgun klukkan 9-15:30.
Hegðunarerfiðleikar
„Þau eiga í ýmsum erfiðleikum
sem gera kennurum og skólayfir-
völdum oft erfitt fyrir. Það sem fólk
er kannski ráðalausast gagnvart eru
hegðunarerfiðleikar. Það veit ekki
hvernig það á að bregðast við og
hvernig við getum hjálpað þessum
unglingum til mannsæmandi lífs þó
að þeir eigi erfitt með að stjórna sinni
hegðun. Sumir gefast hreinlega upp.
Það eru til dæmi um það að börn séu
látin fara úr skóla,“ segir Þórunn Ólý
Óskarsdóttir, formaður FÍUM.
Þórunn segir að þrátt fyrir að
skólakerfið sé að mörgu leyti mjög
gott séu olnbogabörn enn til staðar
sem geti farið illa fyrir ef þeim er
ekki hjálpað strax.
„Stundum lenda þessir krakkar svo-
lítið úti í horni. í gegnum árin hafa
þeir náttúrlega oft verið í sérdeild-
um en svo er mikil jafnaðarstefna í
gangi í skólum þar sem allir eiga að
vera jafnir og í almennum bekkjum.
Bekkirnir eru stórir og það er oft erf-
itt að eiga við það þegar einhver hluti
bekkjarins er illviðráðanlegur. Það
er erfitt að koma til móts við þá og ef
það er ekki gert strax á réttan hátt þá
vill þetta oft verða verra. Krakkarnir
verða reiðari inni í sér eða meira og
meira einmana og læðast með veggj-
um og það fer oft illa,“ segir Þórunn.
Ýmis sjónarhorn
Á málþinginu verður fjallað um
málin frá ýmsum hliðum, meðal
annars út frá sjónarhóli þeirra
sem starfa í meðferðargeiranum,
foreldra og yfirvalda. Þá verða
kynntar ýmsar nýjungar og aðferð-
ir sem geta hjálpað börnum og ung-
lingum sem eiga við vandamál að
stríða. Þá munu Ingvar Sigurgeirs-
son prófessor og Sigrún Harðardótt-
ir skólafélagsráðgjafi greina frá
rannsóknum sínum á þessu sviði.
Nánari upplýsingar má nálgast á
vefslóðinni fium.ci.is.
Mynd/JimSmart
Olnbogabörn enn til staðar Þó að skólakerfið
sé að mörgu leyti mjög gott eru otnbogabörn
enn til staðarsem getur farið illa fyrirefþeim er
ekki hjálpað strax að mati Þórunnar Ólýjar Ósk-
arsdóttur, formanns FÍUM.
Nokkur mikilvæg atriði
um póstkassa og bréfalúgur
Samkvæmt byggingareglugerð nr. 441/1998. grein 80.2 með síðari
breytingum. eiga bréfalúgur að vera minnst 2.5 x 26 cm að stærð
í 1 til 1.2 metra hæð frá gólfi. Sama gildir um einstaka póstkassa.
Póstkassar og bréfalúgur eiga að vera á eða við útihurðir á
ein-, tví- eða fjölbýlishúsum. Þar sem fteiri en þrjár íbúðír
hafa sameiginlegan aðgang verða húseigendur að setja upp
póstkassasamstæður. Póstkassasamstæður skulu festar á
vegg þannig að neðsta bréfarifa sé að tágmarki 70 cm frá gólfi
og efsta bréfarifa ekki ofar en 175 cm frá gólfi.
Gætið þess að bréfberar eigi ávaltt greiða leið að bréfalúgum
og póstkössum. næg lýsing sé og póstkassar tæmdir reglulega.
Þjónustuver | sími 580 1200 | postur@postur.is | www.postur.is
Fjar- og dreifnám Hröð þróun hefur
átt sér stað á sviði fjar- og dreifnáms í
grunn- og framhaldsskólum hérálandi
á undanförnum misserum.
Vaxandi
eftirspurn
Framboð á námi sem ýmist er
hægt að taka í fjarnámi eða með
dreifnámi (blöndu af staðbundnu
námi og fjarnámi) eykst stöðugt
samkvæmt niðurstöðum saman-
tektar um fjar- og dreifnám í fram-
haldsskólum og grunnskólum hér
á landi. Samantektin var unnin í
janúar á þessu ári á vegum starfs-
hóps um fjar- og dreifnám og birt
á vef menntamálaráðuneytisins.
í 27 framhaldsskólum af 30 eru
ýmist nokkrir eða flestir áfangar
boðnir í fjar- eða deifnámi. I öllum
framhaldsskólum eru dæmi um að
nemendur taki staka áfanga í fjar-
námi, stundum við aðra skóla en
þeir eru skráðir í og fái þá metna
inn í námsferil sinn. Mjög hröð þró-
un hefur átt sér stað á þessu sviði á
allra síðustu misserum og virðist
eftirspurn eftir fjar- og dreifnámi
vera sívaxandi að því er fram kem-
ur í skýrslunni.
Skýrsluhöfundar telja þó mikil-
vægt að settar verði reglur um ýmsa
þætti fjar- og dreifnáms, sérstak-
lega þá er varða gæði námsins, að-
gengi að því og vinnuumhverfi og
starfsaðstæður kennara. Jafnframt
benda þeir á að reglur um þessa
nýju námsleið sem er að mestu sjálf-
sprottin innan skólanna megi ekki
hefta frumkvæði þeirra.
Meðal annars leggur starfshóp-
urinn til að sett verði á fót upplýs-
ingaveita þar sem upplýsingum
á stöðluðu formi verði safnað
saman um fjar- og dreifnám sem
í boði er á hverjum tíma á Islandi
og þeim komið á framfæri við þá
sem áhuga hafa á að stunda slíkt
nám. Þá er lagt til að grunn- og
framhaldsskólum verði skylt að
láta sjálfsmatskerfi skólanna ná til
fjar- og dreifnáms jafnt og til dag-
skólanáms og að aðalnámskrá fyr-
ir grunn- og framhaldsskóla verði
endurskoðuð með tilliti til fjar- og
dreifnáms.