blaðið - 23.05.2007, Blaðsíða 3

blaðið - 23.05.2007, Blaðsíða 3
(SLENSKA SIA.IS ALC 37723 05.2007 Síðustu framleiðslustörfin í boði Fjölbreytt og örugg störf Starfsmenn Fjarðaáls er nú orðnir um 300 og álframleiðsla er hafin. Okkur vantar fleiri starfsmenn í álframleiðslu og málmvinnslu. Verkefni hvers starfsmanns eru fjölbreytt. Störfin felast meðal annars í stjórnun tækja og framleiðslukerfa í tæknivæddu umhverfi. Mikil áhersla er lögð á öryggi og góða umgengni. Góð launakjör Unnið er á vöktum í sjálfstýrðum teymum. Laun eru greidd samkvæmt vinnustaðarsamningi Alcoa Fjarðaáls og Afls - Starfsgreinafélags Austurlands. Samninginn er hægt er að nálgast á alcoa.is. Boðið er upp á akstur til og frá vinnu og eina heita máltíð á dag. Verkefnisstjóri skjalastjórnunar Starfið felst í þróun, uppsetningu og innleiðingu á rafrænu skjalastjórnunarkerfi og umsjón með þjálfun starfsfólks í notkun kerfisins. Viðkomandi þarf að hafa góða þekkingu á rafrænni skjalastjórnun ásamt góðum stjórnunar- og samskiptahæfileikum. Krafist er háskólamenntunar sem nýtist í starfi og menntun í upplýsingatækni er góður kostur. Ráðið er í starfið til 18 mánaða með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Umsóknarfrestur er til 3. júní. Þjálfun og starfsþróun Til framleiðslustarfsmanna eru ekki gerðar ákveðnar kröfur um menntun eða kunnáttu. Allir fá viðamikla þjálfun og fræðslu í fyrirtækinu. Mikið er lagt upp úr starfsþróun og símenntun. Jafnrétti og velferð Fjarðaál á að styðja öflugt og fjölskylduvænt samfélag. Stefnt er að jöfnu kynjahlutfalli og góðri aldursdreifingu starfsmanna. Álverið er hannað þannig að öll störf henti jafnt konum sem körlum. Konur er nú um þriðjungur starfsmanna Fjarðaáls. Starfsmenn fá líkamsræktarstyrk og hafa aðgang að öflugri velferðarþjónustu. Umsóknarfrestur er til 27. maí. Viðkomandi munu hefja störf á næstu fimm mánuðum. Aðstoð á rannsóknastofu Skemmtilegt og fjölbreytt starf í 12 mánuði fyrir áhugasaman einstakling sem er tilbúinn að takast á við ýmis verkefni, undir- búning sýna og fleiri rannsóknastörf. Engrar sérstakrar menntunar er krafist en æskilegt er að viðkom- andi hafi reynslu af rannsóknastörfum eða annarri nákvæmnis- vinnu. Samviskusemi, heiðarleiki og gott viðmót eru áskilin. Umsóknarfrestur er til 3. júní. JR ♦ Æ ^ AUSTURLAND TÆKIFÆRANNA Á Mið-Austurlandi er að myndast öflugur byggðaklasi í skjóli einstakrar náttúru. Hátt í þúsund ný framtíðarstörf bjóðast fólki með margs konar menntun og reynslu. Sveitarfélögin á Mið-Austurlandi hafa kostað kapps um að styrkja innviði samfélagsins og hundruð nýrra íbúðarhúsa eru að rísa. Fjarðaál aðstoðar þá starfsmenn sem flytjast inn á svæðið. capacenh RÁÐNINGAR Hægt er að sækja um störf hjá Alcoa Fjarðaáli á capacent.is (áður IMC-Mannafl). Nánari upplýsingar fást á www.alcoa.is og hjá Sigurlaugu Þorsteinsdóttur (sigurlaug.thorsteinsdottir@capacent.is) og Helgu Snædal (helga.snaedal@>capacent.is) hjá Capacent i síma 540 1000. www.alcoa.is Alcoa Fjarðaál q ALCOA Viltu gera eitthvað fjölbreytt, nýtt og spennandi?

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.