blaðið - 23.05.2007, Blaðsíða 18

blaðið - 23.05.2007, Blaðsíða 18
26 MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2007 blaðið neytendur neytendur@bladid.net Geymsluþol grænmetis Þegar grænmeti er skoriö skerðist jafn- framt geymsluþol þess enda verður það viðkvæmara fyrir ágangi örvera. Tvinntaxar Borgaryfirvöid í New York stefna að því að allir gulu leigubíl- arnir í þorginni verði tvinnbilar innan nokkurra ára en með því vilja þau draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Örugg netnotkun Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) og SAFT hafa gert með sér samstarfs- samning um að vinna sameiginlega að aukinni vitund almennings um örugga netnotkun. SAFT er átaks- verkefni Heimilis og skóla um örugga notkun Netsins og ann- arra nýrra miðla. Megintilgangur samningsins er skipuleg viðleitni til að afla, skapa og varðveita þekkingu um Netið og netör- yggi og miðla henni til netþjónustu- aðila og almennings. Meðal sameiginlegra verkefna verður gerð leiðbeininga um góða starfshætti netþjónustuaðila og markviss vinna að því að sam- ræma upplýsingar sem finnast á heimasíðu SAFT (saft.is) og upp- lýsingasíðu PFS um netöryggi fyrir almenning (netoryggi.is). Enn fremur er hafinn undirbúningur að uppsetningu hjálparlínu fyrir almenning um öryggi á Netinu í samstarfi SAFT, PFS og Barna- heilla. Um er að ræða vefsíðu þar sem almenningur getur sent inn fyrirspurnir sem svarað verður með almennum hætti á vefsíðunni. Orka til framtíðar Orkuþörf mannkyns er mjög mikil og er því spáð að hún muni aukast á næstu áratugum. Orku- möguleikar framtíðarinnar verða umfjöllunarefni á fræðslufundi Landverndar og Sesseljuhúss á Sólheimum í Grímsnesi á morgun kl. 17:30. Þetta er síðasti fræðslu- fundurinn í fundaröð sem hófst í mars. Sérstaklega verður horft til samgangna og jarðhita á þessum fræðslufundi og leitað svara við spurningum á borð við hvað muni knýja bílinn okkar í framtíðinni og hvaða möguleikar liggi í jarðvarma. Sigurður Ingi Friðleifsson frá Orku- setri fjallar um vistvænt eldsneyti og möguleika þess í framtíðinni og Albert Albertsson frá Hitaveitu Suð- urnesja fjallar um framtíðarmögu- leika í jarðvarmavinnslu. Allir eru velkomnir og er aðgangur ókeypis. Kaffihúsið Græna kannan er opið til klukkan 22. Rannsókn á mögulegri framleiðslu á vistvænu eldsneyti Etanól hentar best Samfara aukinni um- hverfisvitund almenn- ings og þverrandi olíulindum hafa augu heimsbyggðarinn- ar beinst í auknum mæli að vistvænni orkugjöfum. Hér á landi hafa ýmsar rannsóknir verið gerðar á þessu sviði og nýlega vann Gunnur Ýr Stefánsdóttir, nemandi í orku- og umhverfisfræðum við Háskólann á Akureyri, lokaverk- efni um mögulega framleiðslu á vistvænu eldsneyti úr lífmassa í Eyjafirði. Nú á dögum fer mikið af lífrænum úrgangi til spillis og nýt- ist ekki sem skyldi og vildi hún því kanna fýsileika þess að nýta þennan úrgang til framleiðslu etanóls, lífdís- ils og metans. „Mín niðurstaða var sú að etan- ólið myndi henta best miðað við samsetningu þess lífmassa sem fell- ur til á svæðinu," segir Gunnur en áréttar að frekari rannsókna sé þörf á hagkvæmni slíkrar vinnslu. Með lífmassa er meðal annars átt við líf- rænt sorp, úrgangshey frá bændum og úrgang frá matvælafyrirtækjum. Enn fremur bendir Gunnur á að við etanólframleiðslu verði til ýms- ar nýtanlegar aukaafurðir svo sem trefjar og prótín sem meðal annars megi nota í dýrafóður. „Mér fannst vera svo miklir mögu- leikar í etanólframleiðslu því að í hana er til dæmis hægt að nota úr- gangshey og korn. Eyjafjörður er svo mikið landbúnaðarhérað og það er auðvelt fyrir bændur að auka hey- framleiðsluna. Á undanförnum ár- um hefur bústofn minnkað og fram- Gunnur Ýr Stefánsdóttir. farir orðið í heyvinnslutækni sem gæti mögulega aukið framleiðslu," segir hún. Ýmsir ókostir við metangas Hinar tegundirnar tvær eru ekki eins hentugar að mati hennar. Lifdís- ill er einkum unninn úr úrgangsfitu eða korni og lítið fellur til af fitu á svæðinu. „Það er reyndar búið að stofna hlutafélagið ORKEY sem er að spá í að nota Krossanesverksmiðjuna til framleiðslu á lífdísli en þeir myndu þá flytja inn repjufræ. Ég tók það því ekki inn í rannsóknina en tel líklegt að það gæti verið hagkvæmt," segir Gunnur. Gunnur segir að metangasið hafi ýmsa ókosti í för með sér, til dæm- is þurfi að byggja upp sérstaka inn- viði og dreifikerfi auk þess sem ekki sé hægt að nota það nema á þar til gerða bíla. „Við getum notað sömu bensíndæl- ur og við erum með núna fyrir etan- ólið og lífdísilinn. Þegar kemur að metangasinu þurfum við að leggja lagnir og búa til sérstakar metan- stöðvar,“ segir hún. Borgar sig til lengri tíma Gunnur telur að stofnkostnaður við að koma á framleiðslu á þessum eldsneytistegundum yrði án efa hár en hún er engu að síður sannfærð um að það myndi borga sig þegar til lengri tíma er litið. „Þetta er mjög dýrt og mikið mál en eftir 20-30 ár eigum við eftir að vera mjög ánægð með að hafa farið út í þetta. Við erum að flytja inn óhemjumagn af bensíni og olíu og erum upp á aðra komin með það,“ segir Gunnur og bendir á að með því að blanda lífdísli og etanóli út í bensín og olíu verðum við ekki jafn- háð innfluttu jarðefnaeldsneyti og áður. Þar að auki hefur það umhverf- islegan ávinning i för með sér. „Ég líkti þessu við hitaveituvæð- inguna á áttunda áratugnum. Það var mjög dýrt að fara út í hana enda allt kynt með olíu en það er enginn í vafa um það í dag að hún er búin að margborga sig og það er mikill ávinningur af henni, bæði umhverf- islegur og efnahagslegur,“ segir Gunnur Ýr en bætir jafnframt við að þessi umskipti komi til með að taka sinn tíma. „Þetta verður náttúrlega ekki gert á einum degi. Við tökum þetta bara skref fyrir skref,“ segir Gunnur og bendir á að á meðan fólk sé að venja sig á að nota umhverfisvænni orku- gjafa komi tvinnbílar að góðum not- um en þeir geta bæði gengið fyrir venjulegu jarðefnaeldsneyti og vist- vænna eldsneyti. Leiðbeinendur Gunnar í verk- efninu voru Ágústa S. Loftsdóttir, sérfræðingur á Orkustofnun, og Hrefna Kristmannsdóttir, prófessor við Háskólann á Akureyri. Arftaki NMT-símans Nýtt langdrægt stafrænt farsíma- kerfi CDMA-450 leysir NMT-kerfið af hólmi en því verður lokað í árslok 2008. Búið er að koma upp sendum fyrir kerfið á höfuðborgar- svæðinu og hringja fyrsta símtalið. Nýja kerfið hefur ýmsa kosti fram yfir gamla NMT-kerfið og munar þar mest um aukinn gagna- flutningshraða. Gagnaflutnings- hraðinn verður 100 sinnum meiri en í NMT-kerfinu sem gerir fólki kleift að tengjast Internetinu á mjög hraðvirkan hátt. Mun það koma sér vel fyrir fjallafólk, sumar- bústaðaeigendur og aðra sem fjarri eru GSM- og internetsambandi. Langdrægni nýja kerfisins verður svipuð og NMT-kerfisins eða vel yfir 100 km við góðar aðstæður. Umhverfið og aurinn Þrátt fyrir auknar áhyggjur af um- hverfismálum eru neytendur ekki enn tilbúnir til að greiða sérstaklega fyrir „grænar" vörur að mati nokk- urra framámanna úr hátækniiðnað- inum sem hittust á ráðstefnu í París í síðustu viku. Sífellt koma fram nýj- ar leiðir til að draga úr orkunotkun, auka endurvinnslu og nota umhverf- isvænni efni en neytendur verða að taka á sig hluta af kostnaðinum við að hrinda þeim í framkvæmd að mati þeirra. „Ef einstaklingurinn er ekki reiðu- búinn að borga aðeins aukalega í þágu umhverfisins er ekki hægt að búast við því að fyrirtækin geri það,“ sagði Russell Ellwanger, fram- kvæmdastjórihátæknifyrirtækisins Tower Semiconductor, í viðtali við Reuters-fréttastofuna. Áhrif hátæknifyrirtækja á um- hverfið eru ekki jafnaugljós og til að mynda áhrif þungaiðnaðar og stór- iðju en þau eru engu að síður miklir notendur orku og skaðlegra efna. Mörg fyrirtækin leggja sitt af mörkum til umhverfisins meðal annars með notkun endurvinnan- legra efna og orkusparnaði. Stjórnendur hátæknifyrirtækj- anna finna fyrir auknum þrýstingi frá almenningi um að huga að um- hverfismálum í framleiðslu sinni. Miles Flint, forstjóri farsímafram- leiðandans Sony-Ericsson, segir að umhverfismálin séu greinilega of- arlega í huga fólks nú á tímum en þó hafi fýrirtækið ekki í hyggju að setja á markað umhverfisvæna síma í bráð. Hann sagði enn fremur að þó að fyrirtækið myndi halda áfram að draga úr magni varasamra efna í sím- um og auka endurvinnslu yrði það «3 ÍAt Umhverfisvernd og hátækni Þrátt fyrir aukinn áhuga aimennings á um- hverfisvernd viröast ekki margir vera tilbúnir til að greiða aukalega fyrir umhverfisvænar hátæknivörur að mati j framámanna í hátækniiðnaöinum. ekki gert í þágu markaðssetningar. „Maður verður að fara mjög var- lega í að lýsa þvi yfir að vara sé góð fyrir umhverfið nema maður geti stutt það góðum rökum,“ sagði hann i viðtali við Reuters.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.