blaðið - 23.05.2007, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2007
blaðið
VÍÐA UM HEIM
ÁMORGUN
VEÐRIÐ í DAG
Hlýjast austanlands
Gengur í norðan 8 til 13 með slyddu
norðvestantil undir kvöld. Hiti 2 til 10
stig að deginum, hlýjast austanlands
og víða næturfrost á Norðausturlandi.
Hlýjast sunnaniands
Norðan og norðvestan 8 til 13
m/s og slydda eða rigning, en
víða bjartviðri á Suðurlandi. Hiti
0 til 7 stig, hlýjast sunnanlands.
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Dublin
Frankfurt
18
15
24
26
31
17
28
Glasgow
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Montreal
13 New York
20 Orlando
15 Osló
16 Palma
21 París
23 Stokkhólmur
11 Þórshöfn
14
21
17
21
22
12
7
Á FÖRNUM VEGI
ER SUMARIÐ
BARA BÚIÐ?
Mike Pollock
„Nei, sumarið er aldrei búið.‘
Steinunn Haraldsdóttir
„Verður maður ekki að vona að
svo sé ekki?“
Elí Ingi Ingólfsson
„Nei, það er rétt að byrja.‘
Guðrún Ólafsdóttir
„Ég held að það komi eftir helg-
Björn Geir Másson
„Nei, ég neita að trúa því.‘
Vísindi:
Viagra við
flugþreytu
Rannsóknir á hömstrum
hafa leitt í ljós að stinning-
arlyfið Viagra dragi úr flug-
þreytu. Það gerir mönnum
auðveldara að jafna sig þegar
flogið er yfir mörg tímabelti.
Hömstrunum var skipt niður í
tvo hópa og var smáum skammti
af Viagra sprautað í annan
hópinn. Ljósin voru slökkt sex
tímum fyrr en venjulega og í ljós
kom að hamstrarnir sem fengu
Viagra voru 20 til 50 prósentum
fyrr að jafna sig heldur en hinir
sem ekíci fengu lyfið. Vísinda-
mennirnir segja þetta jafngilda
því að flogið sé í austur, til
dæmis frá Ameríku til Evrópu.
Ekki hefur enn verið gerð
tilraun með lyfið á mönnum.
írak:
Blóðugur dag-
ur í Bagdad
Að minnsta kosti 37 manns
létustí þremur árásum í
Bagdád í gær. Hátt í 90 manns
eru særðir. Margir þeirra sem
létust voru konur og börn.
Fyrsta sprengingin varð á
útimarkaði á háannatíma í
Shia Amil-hverfinu í suðvest-
urhluta borgarinnar. Mikil
ringulreið skapaðist í kjölfarið
er fólk leitaði í örvæntingu
sinni að vinum og ættingjum.
Seinna um daginn var ráðist
á rútu fulla af nemendum
og voru átta þeirra skotnir
til bana, en skömmu áður
höíðu fjórir nemendur látist
í árás á Bagdad-háskóla.
" Fráfarandi ríkisstjórn hefur
setið sinn síðasta ríkisstjórn- I
fpSSpsp arfund A þelm næsta munu I
'VÁTÍ.vT- samfylkingarliðar setjast í stóta •
framsóknarmannanna. Blaðió/FMi L
llllll—llíl ll iaMHII IIIMll I IWMIIIl —11111
Sjálfstæðisflokkur og Samfylking hafa náð saman:
Þingvallastjórnin
tekur við völdum
■ Formenn funduðu einslega með þingmönnum
■ Niðurstaðan kynnt stofnunum flokkanna
Eftir Þórð Snæ Júliusson
thordur@bladid.net
Ríkisstjórnarskipti verða á íslandi
í dag þegar ný ríkisstjórn Sjálfstæð-
isflokks og Samfylkingar tekur við
völdum af ríkisstjórn Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks sem
setið hefur að völdum í 12 ár.
Viðræður flokkanna hófust fyrir
alvöru á uppstigningardag þegar
þau Geir H. Haarde, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, og Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir, formaður Samfylk-
ingarinnar, hittust fyrst formlega til
að ræða mögulega stjórnarmyndun.
Þau funduðu síðan stíft á Þing-
völlum um liðna helgi ásamt öðrum
þátttakendum í ferlinu. Formlegum
viðræðum lauk loks á mánudag
eftir tæplega fjögurra tíma langan
fund forystumanna flokkanna í Ráð-
herrabústaðnum við Tjarnargötu.
Formennirnir tveir hófu síðan
gærdaginn á því að ræða einslega
við hvern og einn þingmann síns
flokks og kynntu þeim niðurstöður
stjórnarmyndunarviðræðnanna.
Geir fundaði með sínum þing-
mönnum í Ráðherrabústaðnum og
stóðu þau fundarhöld langt fram
eftir degi, enda þingmennirnir alls
24 talsins. Á þeim fundum kynnti
hann stefnuyfirlýsingu nýrrar
ríkisstjórnar.
Á sama tíma hitti Ingibjörg Sól-
rún sína þingmenn á skrifstofu
sinni á Alþingi. Ingibjörg ræddi
við hvern þingmann í um tuttugu
mínútur en greindi ekki frá því
á þeim fundum hverjir yrðu ráð-
herrar flokksins.
Að því loknu þurfti að leita hefð-
bundins samþykkis þingflokka verð-
andi stjórnarliða og helstu stofnana
til að samstarf flokkanna myndi
öðlast formlegt gildi. Því var boðað
til fundarhalda í gærkvöldi til að
ganga frá því umboði.
Samfylkingin hélt þingflokks-
fund klukkan sjö í Súlnasal Hótels
Sögu þar sem farið var yfir málefna-
samning og ráðherraskipan nýrrar
ríkisstjórnar. I kjölfarið var síðan
haldinn flokksstjórnarfundur þar
sem stjórnarmeðlimum var til-
kynnt um niðurstöðurnar.
Sjálfstæðismenn hittust á sama
tíma í Valhöll þar sem málefna-
samningurinn og ráðherralistinn
voru kynntir fyrir flokksráði. Þegar
þeim fundi lauk fundaði þingflokk-
urinn loks allur saman. Strax að
þeim fundi loknum var tilkynnt
um hverjir myndu sitja í ríkisstjórn
fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins.
Stjórnarsáttmálinn verður síðan
kynntur formlega á blaðamanna-
fundi í dag.
ÚTSALA ÚTSALA VEGNA FLUTNINGS
Aðeins í tvo daga
23 -24 maí miðvikudag og fimmtudag
Allar buxur
Peysur
Jakkar
Bolir
Pils
ákr 1500
ákr. 990-1500
ákr. 990-1990
ákr 990-1500
ákr 990-1990
Þær gerast ekki betri útsölurnar
Ath! ekki vörur úr vorlista 2007
Opið frá kl. 10.00 -18.00 Síðumúla 13 Sími 5682870
Nýir möguleikar á fyrrum varnarsvæði:
Tuttugu störf í grænni
gagnageymslu í Sandgerði
Fyrirtækið Data tslandia, sem sér-
hæfir sig í umhverfisvænni gagna-
geymsluþjónustu á alþjóðamarkaði,
stefnir á að byggja umhverfisvæna
gagnageymslu og gagnaþjónustu
í Sandgerði á fyrrum varnarsvæði
Sandgerðisbæjar.
Gert er ráð fyrir að bygging hús-
næðisins hefjist síðar á þessu ári og
verður lögð áhersla á umhverfissjón-
armið. Endurnýjanleg orka mun
knýja starfsemina, náttúruleg vind-
kæling dregur úr orkuþörf og arki-
tektúr verður í sátt við umhverfið.
Ekki þarf að virkja sérstaklega til að
útvega raforku fyrir starfsemina.
Fullbyggt verður húsnæðið um
fjögur þúsund fermetrar en fyrsti
áfangi er áætlaður um 800 fer-
metrar. Eftir að hann hefur verið
tekinn í notkun munu um 20 störf
skapast við sjálfa gagnageymsluna.
„Þetta eru mjög góðar fréttir fyrir
Sandgerðisbæ. Það hefur verið lögð
mikil vinna í að nýta fyrrum varnar-
svæðið sem var lokað 1 rúma hálfa
öld fyrir öllu skipulagi og uppbygg-
ingu hjá bænum. Nú hefur það opn-
ast og þá skapast nýir möguleikar.
Þetta er afrakstur af því verkefni og
vonandi upphafið að meiru,“ segir
Jón Norðfjörð verkefnisstjóri.
Innblástur sóttur í íslensku torf-
bæina Arkitekt gagnageymslu
Data Islandia, Robert Örn Arnar-
son, hannaði byggingarnar.