blaðið - 29.06.2007, Síða 1

blaðið - 29.06.2007, Síða 1
119. tölublad 3. aigangur Föstudagur 29. júní 2007 Enginn í Galtalæk Engin bindindishátíð verður í Galtalæk um verslunarmannahelgina en Einar Bárðarson segir að gríðarlegt tap hafi verið á hátíðinni í fyrra. ORÐLAl FRJÁLST, ÓHÁÐ & ÓK^'^Sl Árnar þorna upp Veiðimenn hafa miklar áhyggjur af því að árnar séu að þorna upp og biðja veðurguðina um rigningu. VEIÐIX24 BÍLAR) 22 Ökufantabraut Daníel Sigurðarson, íslands- meistari í rallý 2006, segir að ekki sé hægt að hindra hraðakstur nema spennufíklar fái útrás á þartil gerðum brautum. * Onógar vamir gegn peningaþvætti ■ Saksóknari efnahagsbrota segir lagaumhverfi um peningaþvætti í lagi en eftirlitið ekki Eftir Pórð Snæ Júliusson thordur@bladid.net í niðurstöðu úttektar sem Financial Action Task Force (FATF) gerði í fyrravor á vörnum Is- lands gegn peningaþvætti er lýst yfir áhyggjum af virkni eftirlits með slíkri starfsemi á íslandi. Þar segir að íslenskt lagaumhverfi sé í lagi en opin- berar eftirlitsstofnanir og ákæruvald hafi hvorki nægilegt bolmagn né úrræði til að fylgja lög- unum eftir. FATF er alþjóðleg stofnun sem berst gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efna- hagsbrota hjá ríkislögreglustjóra, segir gagn- rýnina réttmæta. „Við eigum að fylgjast með því NIÐURSTÖÐUR FATF ► ► Lagaumhverfi gegn peningaþvætti er i lagi en virkni laganna áhyggjuefni. Hjá deild innan ríkislögreglustjóra sem sinnir þessu eftírlitl starfar einn maður. að ekki sé verið að þvætta peninga hér en höfum ekki bolmagn til að gera það á fullnægjandi hátt.“ Hann tekur dæmi: „Þetta er svipað og að segja að það sé engin fíkniefnaneysla á íslandi vegna þess að við sjáum ekki neinn neyta fíkniefna. Engum dettur í hug að biða eftir því að einhver kæri fíkniefnaneyslu heldur fara menn út og finna hana vegna þess að þeir vita að hún er í gangi. Ég er ekki að fullyrða að mikið peningaþvætti sé í gangi, heldur að benda á að við þurfum að efla eftirlit til að geta fullyrt að svo sé ekki.“ Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Sam- taka fjármálafyrirtækja, segir mikið áherslumál þeirra að engar grunsemdir séu uppi um peninga- þvætti. „I grunninn er þetta í lagi í fjármálageir- anum, en það þarf að bæta þetta hjá öðrum að- ilum sem falla undir lögin um peningaþvætti.“ I Blaðinu á morgun, laugardag, verður farið ít- arléga yfir niðurstöður FATF og skoðað hvað hafi verið gert til að bregðast við úttektinni. Engin bemsku- minning eftir árás Berglind Stefánsdóttir hyggst sækja bætur fyrir átján ára son sinn sem missti minnið og hefur hvorki lykt- ar- né bragðskyn eftir stórfellda líkamsárás. Árásarmaðurinn fékk fangelsisdóm en bóta- kröfunni var hafnað í dómi. O Umf erðarteppa í blíðviðrinu Búist er við álíka mikilli umferð á vegunum um þessa helgi og þá síð- ustu en þá lentu borgarbúar í miklum töfum í umferðinni. Blíð- viðri er spáð um allt land. Blaðið rýnir í hjáleiðir framhjá helstu umferðaræðum. I Jm Götusmiðjan flytur í Brúarholt „Hér eru kassar út um allt og við höfum verið að fram eftir nóttu" Guðmundur Týr Þórarinsson eða Mummi í Götusmiðjunni er þessa dagana önnum kafinn við að flytja starfsem- ina yfir að Efri-Brú þar sem Byrgið var til skamms tíma. Staðurinn verður nú nefndur Brúarholt. Fínpússa þarf ýmislegt áður en starfsemin getur hafist. „Hér er ekkert skemmt en hér var margt óhreint og slitið. Það \ hefur sums staðar þurft að skipta um gólfefni og þegar farnir ío gámar í ruslið og nokkrir eftir.“ mL pizza meö 3 áleggjum 1.390,- sótt Brauöstangir á 99,- Dalbraut 1 Havaískyrtan leyfileg á ný Borgaryfirvöld í Barcelona á Spáni hafa úrskurðað að eig- endum kokteilbarsins Boadas sé ekki heimilt að banna fólki í „hefðbundnum ferðamanna- fatnaði“ að sækja barinn. Eigendur barsins settu upp skilti fyrir tveimur árum, þar sem fram kom að fólki þannig búnu yrði meinuð innganga. í úrskurðinum segir að bann- ið brjóti gegn jafnræðisreglu, en eigendur annarra veitinga- staða hafa lýst stuðningi við eiganda Boadas og segjast vilja verja rétt hans til að hafna því að veita „ferðamönnum í lágum gæðaflokki" þjónustu. ai Verð á tjaldstæðum m/rafmagni Fyrirtæki Krónur (þar af rafmagn) Útilifsmiðstöðin Úlfljótsvatni 1400 Laugargerði, Laugarási 1700(500) Laugaland i Holtum 1800 (300) Ferðamiðstöðin á Flúðum 1000 (400) Tjaldmiðst. Laugarvatni 2000 (400) Hellishólar, Fljótshlið 2000(500) Miðað er við hjón með 2 börn (5-12ára) Upplýsingar frá Neytendasamtökunum j^fe§ GENGI GJALDMIÐLA m uso SALA 62,70 % -0,24 ▼ GBP 125,60 0,05 ▲ ■ ■i DKK 11,36 0,00 ♦ • JPY 0,51 -0,74 ▼ m EUR 84,50 0,00 ♦ GENGISVÍSITALA 114,03 -0,04 ▼ ÚRVALSVÍSITALA 8.323,00 0,53 4. VEÐRIÐ í DAG SOFADAGAR! Allir sófar á afslætti cMarcð Opið virka daga 10-18 og laugardaga 11-15 Hofsbót <1, s. 462 1504 Egilsstaðir: Miðvangur 1, s: 471 2954 Reykjavik: Mórkin 4

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.