blaðið

Ulloq

blaðið - 29.06.2007, Qupperneq 6

blaðið - 29.06.2007, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2007 blaðió Hvalreki Drapst af kálfsburði Höfrung rak á fjöru syðst við þéttbýlið í Vogum á Vatnsleysuströnd. Dýrið er, samkvæmt líffræðingnum Þorvaldi Erni Árnasyni, 280 sentimetra löng kýr, með kálf í burðarliðnum. „Kýrin var að mestu óskemmd að sjá nema hvað fugl var bú- inn að kroppa auga úr henni. Búið var að éta allt innan úr kálfinum þannig að lítið er eftir af honum nema skinn og bein,“ segir Þorvaldur. Burðurinn hafi banað kúnni. Suðurstrandarvegur Ræddu við ráðherra Fulltrúar bæjarstjórnar Grindavíkur áttu í gær fund með Kristjáni L. Möller samgönguráðherra. Þeir vildu knýja á um lagningu Suðurstrandarvegar en það mál hefur lengi verið Grind- víkingum og öðrum íbúum svæðisins mikið kappsmál. „Ég meðtók sjónarmið þeirra um mikilvægi þessa vegar en því miður verður alltaf að velja og hafna,“ sagði Kristján af raunsæi. ejg STUTT • Ríkisútvarpið Útsendingum Útvarpsins á stuttbylgju verður hætt 1. júlí samkvæmt samkomu- lagi RÚV og Neyðarlínunnar, sem á og rekur viðkomandi stuttbylgjusenda. Mikilvægi þessara útsend- inga hefur hraðminnkað á síðustu árum, m.a. með tilkomu netútsendinga og gervihnattaútsendinga. Missti minnið við líkamsárás H Móðir átján ára pilts hyggst halda ótrauð áfram og sækja bætur fyrir son sinn sem býr ekki að barnæskuminningum og hefur hvorki lyktarskyn né bragðskyn eftir líkamsárás. Eftir Björgu Magnúsdóttur bjorg@bladid.net Berglind Stefánsdóttir er móðir hins 18 ára Jóels Brynjólfssonar, sem lenti í stórfelldri líkamsárás í fyrra- sumar. Sonur hennar hlaut mikinn skaða og hefur síðastliðið ár að mestu farið í endurhæfingu og rann- sóknir. Hann kærði árásarmanninn sem fékk 14 mánaða fangelsisdóm, en skaðabótakröfunni, sem var yfir 3 milljónir, var vísað frá. Hún þótti vanreifuð. Berglind segist þakklát fyrir gott starfslið spítalanna þó dómskerfið sé seint í vöfum. „Jóel slasaðist alvar- lega fyrir nærri ári síðan, var nær dauða en lífi og dómurinn er fyrst að falla núna,“ gagnrýnir hún. Þekkti ekki fólkið sitt „Hann missti minnið í kjölfar árásarinnar og fyrst á eftir þekkti hann hvorki mig né aðra fjölskyldu- meðlimi. Þó kemur minnið smám saman en er mjög gloppótt; til dæmis á hann ekki barnæskuminn- ingar. Einnig missti hann bragð- og lyktarskyn sem hefur ekki gengið til baka og hann þjáist af miklum svima,“ segir hún. Vegna árásarinnar þurfti drengur- inn að hætta í skóla og hefur síðast- liðið ár farið í endurhæfingu, með- ferðir og rannsóknir. „Hann varð að hverfa frá námi vegna sífelldrar þreytu auk þess sem hann á mjög erfitt með einbeitingu. Álagið hefur verið gríðarlegt en í haust ætlar Jóel að reyna við nám á ný.“ Árásin á Rauða Ijóninu Ráðist var á Jóel á skemmti- staðnum Rauða ljóninu í Reykjavík. Ákærði sparkaði í höfuð hans og stappaði á því svo af hlaust mikill skaði. „14 mánaða fangelsisdómur STAÐREYNDIR ► Vitni sögðu frá því að sá sakfelldi, fæddur 1985, hefði stigíð harkalega á höfuð Jóels. Hafi hann legið hreyfingarlaus á eftir en fóturinn lenti á neðri hluta andlitsins . ► Skaðabótakröfu vísað frá vegna ónógra gagna Samkvæmt lögum er það *** líkamsárás þegar maður ræðst vísvitandi á annan mann og veldur honum tjóni á líkama eða heilbrigði, hvort sem um ásetning eða gáleysi er að ræða. er frekar þungur dómur miðað við svipuð mál. Þó er ómögulegt að segja hvað er réttur dómur fyrir svona árás. Skaðabótakröfum var vísað frá vegna ónógra gagna en það kemur ekkert annað til greina en að halda áfram þegar betri gögn liggja fyrir um heilsu Jóels.“ Aðspurð um kostnaðarþáttinn segist Berglind ekki leiða hugann að því. „Ég hugsa fyrst og fremst um framtíð Jóels.“ Árásin sameinaði mæðginin Þrátt fyrir gríðarlegt andstreymi horfa mæðginin björtum augum til framtíðar og segir Berglind að árásin hafi sameinað þau og styrkt samband þeirra. „Ég met lífið öðru- vísi núna en ég gerði. Fyrst var ég ofboðslega reið en ákvað að ala hvergi á biturleika eða hatri heldur fara áfram á jákvæðni." Er talið berst að ofbeldi í höfuðborginni nefnir Berglind að huga þurfi betur að hverjum einstaklingi og byggja upp. „Ofbeldið í Reykjavík verður að minnka, núverandi ástand fer ekki svona lítilli borg.“ • Hveragerði Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar hefur sam- þykkt að selja fyrirtækinu Kambalandi ehf. 6,5 hektara landspildu vestan byggðar í Hveragerði á 55 milljónir króna. Spildan er hluti af landsvæði þar sem fyrirtækið hyggst láta reisa hverfi með 260 íbúðum. mbl.is Hvalfjarðarströnd Bíða með nýtt byggðarmerki Sveitar- stjórn Hvalfjarð- arstrandar- hrepps hefur frestað því að sam- þykkja nýtt byggðarmerki sveitarfélagsins. Ástæðan er sú að óánægju hefur gætt með merkið, en haldið hefur verið fram að í því sé trúartákn, samkvæmt Skessuhorni. Haldin var samkeppni um merkið og í reglunum stóð að það mætti ekki „innihalda þjóðfána, ríkistákn, opinber alþjóðamerki, skjaldarmerki eða annað sem til þess er fallið að villst verði á því og framangreindum merkjum“. mge Isafjörður Óvissa ríkir um framtíð 40 starfsmanna Miðfells eftir að fyrirtækið fór fram á gjaldþrotaskipti í gær. starfsmenn í óvissu Rækjuvinnslan Miðfell á ísa- firði óskaði í gær eftir gjaldþrota- skiptum, fjórum dögum eftir að hafa boðað vinnslustöðvun. Hátt í 40 starfsmönnum fyrirtækisins var tilkynnt þetta í gær. Málið fór til Héraðsdóms Vestfjarða í gær og mun skiptastjóri úrskurða hver framtíð fyrirtækisins verður. Guðbjartur Ástþórsson, öryggis- trúnaðarmaður hjá Miðfelli, segir starfsmönnum hafa brugðið við fréttirnar, þótt þá hafi grunað í hvað stefndi. Hann segir framtíð starfsfólksins í mikilli óvissu. „Við eigum sem svarar þriggja vikna vinnu eftir og ég veit ekki hvort hún verður kláruð. Það er upp og ofan með vinnuhorfur. Sumir eru á leið í sumarfrí og vita ekkert hvað tekur við að því loknu.“ Guðbjartur segist ekki hafa heyrt um hvort þeir sem misstu vinnuna koma til með að flytja úr plássinu. Atvinnuhorfur á Vestfjörðum eru ekki góðar og því kæmi honum ekki á óvart þótt einhverjir freist- uðu gæfunnar annars staðar. Fast- eignamarkaðurinn er hins vegar í lægð og því gæti fólki reynst erfitt að selja fasteignir sínar. Finnbogi Sveinbjörnsson, for- maður Verkalýðsfélags Vestfirðinga, vonast til að framhald verði á rækju- vinnslu á ísafirði. Hann hefði viljað sjá stjórnvöld grípa fyrr inn í, líkt og þau hafi gefið í skyn. „Maður hefur alltaf trúað því að það yrði staðið við frystingu eða jafnvel nið- urfellingu skulda. Það hefur ekkert borið á þeim efndum." magnus@bladid.net Hvarf Madeleine ítali var handtekinn ítalskur karlmaður hefur verið handtekinn í tengslum við hvarfið á bresku stúlk- unni Madeleine McCann. Á spænska fréttavefnum EI Pais kom fram að maðurinn hefði verið handtekinn í bænum Algeciras á suður- strönd Spánar í gærmorgun, en að lögregla hafi ekki viljað gefa neinar frekari upplýsingar Hinni fjögurra ára Made- leine var rænt af hótelher- bergi fjölskyldu sinnar í Praia da Luz á Algerve- ströndinni í Portúgal í upphafi síðasta mánaðar þegar foreldrar hennar sátu að snæðingi á nálægum veit- ingastað. aí

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.