blaðið - 29.06.2007, Qupperneq 8
8
FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2007
blaðið
Nú eru ferðadagar á Shell. Tjald, tveir svefn-
pokar, ferðastólar og dýnur auk vasaljóss.
Allfr í einni frösku á 9.990 kr.
Komdu við á næstu Shellstöð og fáðu
það sem vantar í ferðalagið.
'A
Made to move
Fagna rannsókn
á fangaflugi
íslandsdeild Amnesty Inter-
national hefur sent frá sér
tilkynningu þar sem ákvörðun
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur
utanríkisráðherra um að fram
fari rannsókn á meintu fanga-
flugi um ísland er fagnað. Þar er
bent á að Amnesty International
hafi ítrekað farið fram á það við
íslensk yfirvöld að rannsakaðar
verði ferðir flugvéla á vegum
bandarísku leyniþjónustunnar
um íslenska lofthelgi.
hos
Gjaldeyrisverð
í Leifsstöð
Ástæða þess að verð á evrum er
hærra í útibúi Landsbankans í
Leifsstöð en á öðrum sölustöðum
fargjaldeyris er sú að þjónust-
ustig í útibúinu er með öðrum
hætti en tíðkast annars staðar.
Þetta segir Kristinn Briem, for-
stöðumaður hjá Landsbankanum.
„Gjaldeyrisafgreiðslan er opin á
helstu brottfarartímum flugvéla
á Keflavíkurflugvelli og nánast
allan sólarhringinn yfir sumar-
tímann alla 7 daga vikunnar.“
Sex mánuðir
fyrir þjófnað
Karlmaður hefur verið dæmdur
í Héraðsdómi Reykjavíkur í 6
mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Maðurinn stal fartölvu og mynda-
vél úr íbúð í Reykjavík. Hann
rauf skilorð með brotinu en hann
hefur tvívegis áður fengið skil-
orðsbundna dóma fyrir þjófnað.
Maðurinn játaði brotið en hann
kom á lögreglustöð daginn eftir
að hann stal tölvunni og mynda-
vélinni, skilaði mununum og sagð-
ist iðrast gerða sinna.
mbl.is
Lyfjagjöf setur
óvirka í hættu
■ Stytting spítalavistar eykur hættuna á að óvirkir fíklar lendi á
rangri braut að nýju ■ Frumskylda SÁÁ gagnvart virkum fíklum
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@bladid.net
Mikil hætta er á að fíkn taki sig
upp að nýju er óvirkir fíklar lenda
í veikindum og þurfa á lyfjagjöf að
halda, ekki síst sökum þess kvíða
og andlegs álags sem veikindunum
fylgja. Spítalavist er alltaf að stytt-
ast og eykur það verulega hættuna
á því að óvirkir fíklar lendi á rangri
braut eftir veikindi, segir yfirlæknir
á Vogi.
Útskrifaðir of snemma
„Mikil pressa er á heilbrigðisstarfs-
fólki að útskrifa sjúklinga sem fyrst.
Nú eru menn greindir á spítala og
svo eru þeir settir í lyfjameðferð
sem oft fer öll fram á heimili viðkom-
andi,“ segir Þórarinn Tyrfingsson, yf-
irlæknir á Vogi.
„Auk verkja fylgir veikindum oft
streituástand og andleg vanlíðan.
Þetta getur verið nóg til þess að fíkn
taki sig upp að nýju hjá einstaklingi
sem hefur verið edrú í mörg ár. Því
eru fyrrverandi fíklar sem búa einir
en þurfa á lyfjameðferð á heimili
sínu að halda í sérstakri áhættu.“
Andlegur og líkamlegur vandi
Bjarni Össurarson, yfirlæknir
vímuefnadeildarLandspítaía-háskóla-
sjúkrahúss, tekur undir að um þekkt
vandamál sé að ræða. „Þegar þeir sem
hafa átt við fíkn að etja, hvort sem það
er vegna áfengis eða fíkniefna, þurfa
á lyfjagjöf að halda er reynt að gefa
þeim eins lítið og hægt er af ávana-
bindandi lyfjum. Stundum verður þó
ekki hjá því komist og þá þarf að hafa
sögu einstaklingsins í huga.“
Þórarinn vill þó meina að vandinn
sé fremur andlegur en líkamlegur.
.Yfirleitt eru það ekki lyfin sjálf sem
valda því að fíknin tekur sig upp að
nýju, heldur sálrænt álag sem fylgir
því að verða veikur. Þegar einstak-
lingur kvelst missir hann ákveðna
mótstöðu og mikinn kraft og þá er
hættan hvað mest á að fíkn taki sig
upp að nýju.“
Afeitrun og lyljameðferð
Þegar óvirkir fíklar þurfa á lyfjagjöf
að halda er stundum gripið til þess
ráðs að senda þá í afeitrun að lyíjameð-
ferð lokinni. „Erfitt getur verið að meta
hvort rétt sé að leggja viðkomandi inn
til afeitrunar. Við skoðum bakgrunn
sjúklingsins, tökum tillit til óska hans
og skoðum hversu mikið af lyfjum vi-
komandi hefur tekið,“ segir Bjarni.
Þórarinn segir að óvirkir fíklar sem
ekki fá spítalavist en þurfa að taka
ÓVIRKIR FÍKLAR
► 18 þúsund einstaklingar
sem nú eru á lífi hafa fengið
hjálp frá Vogi.
► Margir þeirra eru aldnir og
geta lent í alls kyns veikind-
um.
Aðeins LSH og Vogur
uppfylla kröfur heilbrigðis-
ráðuneytisins um meðferð-
arstofnanir.
15 einstaklingar geta verið í
afeitrun á LSH í einu og um
60 á Vogi.
verkjalyf séu stundum á Vogi meðan
á lyfjameðferð stendur. „Þá eru þeir í
öruggu umhverfi á meðan. En okkar
frumskylda er gagnvart þeim sem
enn eru í vímuefnaneyslu og plássið er
takmarkað."
WWW.ICELANDAIR.IS
Nánari upplýsingar og bókaóu a www.icelandair.is
Sölutímabil Special Offer tilboða: 22. júní-13. júlí.
Feróatímabil: 17. júlMO. desember.
Takmarkaó sætaframboó.