blaðið - 29.06.2007, Qupperneq 10
10
FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2007
blaöió
Nýr forsætisráðherra stokkar verulega upp í ríkisstjóm Bretlands
Miliband nýr utanríkisráðherra
Gordon Brown, nýr forsætisráð-
herra Bretlands, kynnti nýja ríkis-
stjórn sína í gær, degi eftir að hann
tók við forsætisráðherraembættinu
af Tony Blair. Miklar breytingar
voru gerðar á ríkisstjórninni þar
sem ellefu ráðherrar í síðustu ríkis-
stjórn Blairs hverfa úr ríkisstjórn og
níu koma nýir inn.
David Miliband, fyrrum umhverf-
isráðherra, var skipaður nýr utan-
ríkisráðherra í stað Margaret Bec-
kett, en Miliband hefur ætíð verið
mjög gagnrýninn á Iraksstríðið og
er talinn einn af hugsanlegum fram-
tíðarleiðtogum breska Verkamanna-
flokksins. Brown skipaði náinn
bandamann sinn, Alistair Darling,
fyrrum iðnaðarráðherra, í embætti
fjármálaráðherra, þar sem Brown
sat sjálfur í tíu ár.
Jacqui Smith og David Miliband Nýr ut-
anríkisráðherra Bretlands hefur alla tíð verið
mjög gagnrýninn á stríðsreksturinn í Irak.
Jacqui Smith kemur nokkuð
óvænt ný inn í ríkisstjórn og tekur
við innanríkisráðherraembættinu
af John Reid og verður fyrsta konan
til að gegna því embætti. Meðal
annarra breytinga er að Jack Straw,
fyrrum utanríkisráðherra, verður
dómsmálaráðherra, Ed Balls skóla-
og barnamálaráðherra, Alan John-
son heilbrigðisráðherra og Hilary
Benn umhverfisráðherra.
atlii@bladid.net
Ef þú kaupir 25 lítra eða meira af Shell V-Power dagana
1 8. júní til 1.júlí færðu skafmiða sem gæti fært þér ferð
fyrir tvo ó Formúlu eitt kappaksturinn í Þýskalanai í júlí.
Vildarvinir Shell eiga tvöfalda möguleika.
Shell V-Power
Made to move
llmandi
álegg frá SS
Nautarúllan frá SS er vafin inn í
netta rönd af svínaspekki,
taðreykt en þó með mildu en
sjarmerandi reykbragði sem
minnir dálítið á hangikjöt. Það er
því tilvalið að nota SS nautarúllu
á svipaðan hátt og hangiálegg
eða feta nýjar slóðir eins og t.d
hér er sýnt. Nautarúllan hefur
fengið gullverðlaun í
fagkeppnum bæði hér heima og
erlendis
www.ss.is
Afganir bíða
örlaga sinna
■ Norskur biskup kom fióttamönnum til
bjargar ■ Skiptu um trú til að fá að vera
Eftir Atla ísleifsson
atlii@bladid.net
Örlög hóps rúmlega tuttugu afg-
anskra flóttamanna í Noregi eru enn
óráðin eftir að nokkrir þeirra tóku
upp kristni í lokatilraun sinni til að
komast hjá brottvísun úr landinu. Á
meðan mál Afgananna velkist nú
um í kerfinu hafa þeir komið upp
sínum eigin flóttamannabúðum í
tjöldum fyrir utan kirkju í miðborg
Oslóar og segjast ætla að nýta þann
tíma sem þeir eiga eftir í Noregi til
þess að fræðast um lýðræðisfyrir-
komulagið og mannréttindi.
Mótmæltu við Stórþingið
I síðustu viku var hópurinn með
mótmælastöðu fyrir framan Stór-
þingið í Ósló i nokkra daga og voru
margir handteknir þegar lögregla
ákvað að leysa mótmælin upp. Til
stóð að senda þá aftur til heima-
landsins um helgina, en skyndilega
var hætt við eftir að biskupinn í
Ósló, Ole Christian Kvarme, benti
starfsmönnum norska útlendinga-
eftirlitsins á að nokkrir Afgananna
væru nýbúnir að taka kristna trú
við Mjösavatnið norður af höfuð-
borginni. Verði þeir sendir til Afgan-
istans geta þeir átt von á hótunum
um líflát vegna nýrrar trúar sinnar,
en norskyfirvöld segjast ekki senda
flóttamenn aftur til heimalands
síns, ef sannað þykir að líf þeirra
kunni að vera í hættu.
Of hættulegt heima
Afganarnir hafa sagt að það geti
reynst þeim of hættulegt að snúa
STAÐREYNDIR
► Brottvísunum afganskra
flóttamanna í Noregi hefur
fjölgað mikið síðasta árið.
► Um tíu hefur verið vísað
brott í hverjum mánuði und-
anfarið, en fjöldinn hefur
tvöfaldast frá því í maí.
► Þrjár milijónir Afgana hafa
flúið til nágrannaríkja
síðustu ár.
► 202 Afganar sóttu um póli-
tískt hæli f Noregi árið 2006
aftur á heimaslóðir, eftir að hafa
dvalið á Vesturlöndum. Þeir segja
jafnframt að þeir séu að þrotum
komnir eftir að hafa að kljáðst við
stríð og hörmungar i heimalandinu
síðustu þrjá áratugi. Talsmaður lög-
reglunnar segir að brottvísun flótta-
mannanna úr landinu hafi verið
frestað þar til ákvörðun verður
tekin um hvað skuli gera í máli
flóttamannanna.
Málið hefur vakið mikla athygli
í Noregi og meðal annars valdið
deilum milli ríkisstjórnarflokka
samsteypustjórnarJensStoltenbergs
forsætisráðherra. Leiðtogar Verka-
mannaflokks Stoltenbergs hafa lýst
yfir stuðningi við ákvörðunina um
brottvísun Afgananna, en leiðtogar
innan Vinstriflokksins segjast hafa
samúð með sjónarmiðum þeirra.
HVAÐ VANTAR UPP Á?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
Öldungadeild Bandaríkjaþings
Frumvarp stöðvað
Öldungadeild Bandaríkjaþings
stöðvaði í gær umdeilt innflytjenda-
frumvarp sem fól meðal annars í
sér að um tólf milljónir ólöglegra
innflytjenda myndu fá ríkisborg-
ararétt. Þetta er talið mikið áfall
fyrir Bush Bandaríkjaforseta, en
málið kemst líklega ekki aftur
á dagskrá fyrr en eftir næstu
forsetakosningar.