blaðið - 29.06.2007, Side 12

blaðið - 29.06.2007, Side 12
Himinn og haf / SfA 12 FRETTIR FOSTUDAGUR 29. JUNI 2007 blaóió Vestmannaeyjaferja Skýrist í næstu viku „Eimskip þarf að vinna mikla heimavinnu,” segir Jón Rögn- valdsson vegamálastjóri um samningaviðræður Vegagerð- arinnar við Eimskip um tíðari ferðir Herjólfs. Guðmundur Nikulásson, framkvæmdastjóri innan- landssviðs Eimskips, segir fyrirtækið standa í samninga- viðræðum við áhöfn Herjólfs. „Við þurfum náttúrlega að reka skipið allan sólarhring- inn og erum að ræða við áhöfnina um þá hluti,“ segir Guðmundur sem vonast til að samningar takist milli Vega- gerðarinnar og Eimskips um fjölgun ferða Herjólfs. Hann sagði málið skýrast í næstu Suðurlandsvegur Glerbrot á veginum Bifreið missti glerfarm á Suð- urlandsvegi í gær. Loka þurfti fyrir umferð á annarri akrein vegarins í tæpa klukkstund á meðan gler- brotin voru hreinsuð upp af veginum. Á meðan á því stóð var umferð í hvora átt hleypt til skiptis um eina akrein. Óhappið varð á veginum á milli Kotstrandar og Ölfusborgar. mbl.is Akureyri Hundsdráp kært Dráp á hundi hefur verið kært til lögreglunnar á Akureyri. Grunur leikur á að hundurinn hafi verið drepinn á Akureyri helgina 15.-17. júní. Hundinum sem er ársgam- all chinese crested-hundur, Lúkas að nafni, slapp frá eiganda sínum á Akureyri í mailok. mbl.is Sýnum þolinmæði ■ Mikilli umferð spáð um helgina H Vegamál höfuðborgarsvæðis „á fullri ferð" Eftir Elías Jón Guðjónsson elias@bladid.net Búist er við álíka mikilli umferð á vegum landsins um þessa helgi og þá síðustu en þá lentu borgar- búar í mikilli umferðarstíflu þegar þeir sneru aftur til borgarinnar. Blíðviðri er spáð um allt land alla helgina. Framkvæmdir tefja ekki Engar vegaframkvæmdir verða í gangi um helgina samkvæmt upp- lýsingum frá Vegagerðinni en það er stefna hennar að standa ekki í framkvæmdum um helgar til þess að koma í veg fyrir tafir á umferð. Betra að koma seint en aldei „Það má búast við að þetta gangi hægt fyrir sig og taki sinn tíma,“ segir Sigurður Helgason hjá Umferð- arstofu. Hann býst við mikilli um- ferð um helgina enda sé veðurspáin góð. Sigurður segist ekki búast við neinum sérstökum töfum nema í kringum höfuðborgina líkt og um siðustu helgi. Hann segir mikilvægt að fólk sýni þolinmæði og gefi sér góðan tíma. Mikil umferð við Selfoss Lögreglan á Selfossi segist búast við mikilli umferð og biðlar til fólks halda ró sinni á vegunum. Þá benti fulltrúi lögreglunnar á að framúr- akstur væri tilgangslaus í mikilli umferð. „Álíka gagnslaust og að vaða í götóttum stígvélum," sagði hann. Kristján L. Möller samgönguráð- herra tekur í sama streng. „Gömul frænka mín á Siglufirði sagði eitt sinn við mig að það væri betra að koma seint en aldrei. Og ég tel að það eigi vel við í umferðinni," svar- aði hann, aðspurður hvort hann hefði einhver heilræði til ferðafólks um helgina. Kristján óskaði öllum góðar ferðar um helgina. Allt á fullri ferð „Þetta er allt á fullri ferð með þessi vegamál í nágrenni höfuðborgar- innar,“ segir Kristján, spurður um stöðuna á vegabótum í nágrenni höfuðborgarinnar. „Vegkerfið er ekki í stakk búið til að takaa við öllum þessum bílum og hjólhýsum. En við erum auðvitað að vinna að því að bæta það,“ segir Kristján Möller samgönguráðherra enn fremur. Aðrar leiðir úr sveitasælunni 1 Ef mikil biðröð er að Hvalfjarðargöngunum er hægt að aka fyrir Hvalfjörð. Náttúrufeg- urðin þar bætir fyllilega upp þann aukatíma sem sú lykkja kostar en vegurinn um Hvalfjörð er styttri en margur hyggur. Ef ekkí er áhugi á því að aka fyrir Hvalfjörð má hugsanlega spara sér tíma í biðröð með því að aka fyrir Akrafjallið og koma vestan megin að hringtorginu við göngin. Líkur eru þá á því að komast fyrr inn í röðina. 2 3 Þeir sem ætla á Suður- nes eða í Hafnarfjörð ættu að fara til vinstri út úr hringtorginu við Rauðavatn og halda áfram eftir Elliðavatns- vegi. í Kópavog má fara sömu leið og beygja fljótlega inn á Breiðholtsbraut. Þeir sem eru á leiðinni út á Suðurnes og eru nógu vel búnir til þess að takast á við malar- veg geta beygt til vinstri inn á Þorlákshafnar- veg við Hveragerði og haldið síðan áfram eftir Krýsuvíkurvegi og út á Reykjanesbraut. 4 - Förum varlega í akstri um ísland og höfum hugfast að ferðalagið er jafnmikil upplifun og áfangastaðurinn. Landið hefur upp á ótalmargt að bjóða og aldrei að vita hverju þú missir af þegar farið er um í óðagoti. Stillum hraðanum í hóf, göngum vel um landið okkar og komum heil heim. Ljósmyndasamkeppni Á ferdalag.is finnurðu ýmiss konar upplýsingar sem tengjast ferðalögum um ísland. Kynntu þér fáséðar perlur utan alfaraleiðar og sjáðu með eigin augum. Safnaðu Ijósmyndum og sendu inn í Ijósmyndasamkeppnina okkar. Sú stendur í allt sumar og vegleg verðlaun eru í boði. www.ferdalag.is

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.