blaðið - 29.06.2007, Page 14

blaðið - 29.06.2007, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2007 blaðið velkocmM í söcjuseTRiö! - W:' Cf f Æ rél M mm viö TökatD vel Á cdóti aeöTucD! FYRIRLESTUR laugardaginn 30. júní kl. 17.00 Hrinéurinn við Ranéá Bogi Gunnars á Hlíðarenda Allir velkomnir UPFLÝSÍNGAR síú ei upplýsin^aþlónustd fyrir (erðdnienn til Hústi i Söousetrinu við HHðarvecl SOGUSETRIÐ Opiö alla daqa í sumar kl. 9-19 Útgáfufélag: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árog dagurehf. Ólafur Þ. Stephensen Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir Hvað á plássið á veginum að kosta? Ein ástæða þess að þjóðvegakerfið er sprungið, ekki sízt í kringum höf- uðborgina, er að aðgangurinn að því er vitlaust verðlagður. Þótt ekki séu innheimt bein veggjöld, sem endurspegla notkun á vegakerfinu, nema í Hvalfjarðargöngum, greiða menn fyrir afnot af vegakerfinu í gegnum bif- reiðagjöld og gjöld af olíu og benzíni. Undanfarin ár hefur flutningabílum fjölgað gríðarlega á þjóðvegunum, með þeim afleiðingum að víða er nánast óhjákvæmilegt að bæta vega- kerfið. Vegirnir eru víðast hvar ekki gerðir fyrir umferð þungra vörubíla með tengivagna. Talið er að hver slíkur bíll slíti vegunum á við þúsundir fólksbíla. Það var skref í áttina þegar gjaldtaka af flutningabílum var færð úr þungaskatti yfir í olíugjald og endurspeglar frekar notkun þessara stóru bíla á vegakerfinu. Gjaldtakan af þeim er samt ekki í neinu samræmi við slitið, sem þeir valda á vegunum og þann tilkostnað, sem verður til vegna framkvæmda við ný umferðarmannvirki, sem bera flutningabílana. Ef að- gangurinn að vegunum væri rétt verðlagður, væru strandsiglingar líkast til enn stundaðar við ísland. Blaðið sagði frá því í gær að fjöldi hjól- og fellihýsa hefði hér um bil tvöfaldazt á íslandi á tveimur árum. Að mati lögreglunnar getur þessi gríð- arlega fjölgun átt sinn þátt í vaxandi umferðarteppum um helgar, þegar straumurinn liggur inn og út úr höfuðborginni. Bíll með tengivagn tekur helmingi meira pláss á veginum og þegar þriðji til fjórði hver bíll er með slíkan aftanívagn geta raðirnar lengzt sem því nemur. í frétt Blaðsins kemur aukinheldur fram að engin gjöld eru greidd af hjólhýsum og aftanívögnum, sem renna til vegagerðar eða samgöngu- bóta. Þó má segja að eigendur þessara tækja borgi óbeint af þeim með því að bifreiðar þeirra eyða meira eldsneyti þegar þær eru með eftirvagn og af eldsneytinu eru borguð gjöld, sem að einhverjum hluta renna til samgöngubóta. f Hvalfjarðargöngunum er rukkað eftir lengd ökutækja - eins og eðli- legt er - og bíleigendur borga 100 króna aukagjald fyrir lítinn tengivagn en 300 krónur fyrir stóran. Finnst einhverjum þetta óeðlileg gjaldtaka? Er ekki langeðlilegast að plássið á vegunum sé verðlagt þannig að þeir sem nota lítið af því borgi lítið, en þeir sem nota mikið borgi meira? Ef breikka þarf og styrkja vegi vegna aukinnar umferðar stórra vörubíla og bíla með aftanívagna, er auðvitað eðlilegast að eigendur slíkra tækja taki meiri þátt í kostnaðinum en hinir. Annars velta þeir kostnaðinum, sem þeir búa til, yfir á samborgarana. Ólafur Þ. Stephensen I Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net I Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Alþj óðasamfélagið í Arnarfirði Rútan klifraði upp heiðina og brátt blasti Arnarfjörðurinn við í allri sinni dýrð. Bíístjórinn hikaði hvergi og steypti bílnum beinustu leið fram af fjallinu og renndi honum fagmannlega niður eftir hlykkjóttum veginum. Ég fékk fiðring í magann. Fegurðin var mögnuð og vegaspennan hafði líka sitt að segja. Þrátt fyrir þverhnípi eru engin vegrið á örmjóum fjall- veginum, bara möl og svo ekkert. Erlendu gestirnir reyndu að láta á engu bera. Þetta var vissulega spennandi en þeim stóð heldur ekki á sama. Þjóð og hnattvæðing á Hrafnseyri Við vorum á leið á alþjóðlega ráð- stefnu um þjóð og hnattvæðingu. Ráðstefnan var haldin á Hrafnseyri við Arnarfjörð í tilefni af þjóðhátíð- ardegi íslendinga. Með í för voru nokkrir af fremstu fræðimönnum Vesturlanda á sviði alþjóðastjórn- mála. Það þótti vel við hæfi að fjalla um þjóð og hnattvæðingu svona langt i burtu frá skarkala ver- aldarinnar. Á Hrafnseyri eru þrjú hús, staðurinn er afskekktur og erf- itt að komast þangað. Hrafnseyri við Arnarfjörð er eiginlega handan hins byggilega heims eins og einn skipuleggjenda ráðstefnunnar orð- aði það. Maður finnur ekki mikið fyrir hnattvæðingunni á svoleiðis stað. Samt var lítið mál að fá þessa eftirsóttu fræðimenn til að mæta. Það er alltaf verið að bjóða þessu fólki á ráðstefnur, í London, New York og í Tókýó. Eða bara í Kaup- mannahöfn. En fólk fær sjaldan boð til Vestfjarða. Þegar þessi pist- ill birtist lesendum er ég staddur i Berlín á ráðstefnu. Berlín er í alfaraleið og þangað er auðvelt að komast úr öllum áttum. Menn eru alltaf að fara til Berlínar. En það er samt ekkert auðveldara að fá áhugaverða fyrirlesara til Berlínar en til Vestfjarða. Það er nefnilega miklu meira spennandi að fara á ráðstefnu á Hrafnseyri heldur en í Berlín. Svona virkar hnattvæð- ingin lika. Þekkingarsköpun til VestQarða í vikunni hefur verið mikil um- ræða um yfirvofandi niðurskurð aflaheimilda. Menn óttast áhrifin á sjávarbyggðirnar á Vestfjörðum. Kallað er á stjórnvöld að standa fyrir mótvægisaðgerðum, færa op- inber störf út á land, koma með byggðakvóta eða eitthvað álíka. Ég veit það svo sem ekki, en það læð- ist óneitanlega að manni sá grunur að það sé kannski einmitt þessi ofuráhersla á sjávarútveginn og op- inbera stjórnun sem haldi þessum byggðum í heljargreipum. Getur verið að fiskurinn sé orðinn drag- bítur á framþróun þessara byggða? Ráðstefnan sem Háskólasetur Vestfjarða og Safn Jóns Sigurðs- sonar á Hrafnseyri héldu um þjóð og hnattvæðingu sannfærði mig í það minnsta um að það er einmitt slík starfsemi sem þarf að fá að blómstra. Það er ekkert erfiðara að stunda þekkingarstörf á Vest- fjörðum heldur en í Berlín. Þetta er hin raunverulega auðlind Vest- fjarða. Vandinn er hins vegar sá að ofuráherslan á sjávarútveg hefur orðið til þess að nauðsynlegir inn- viðir fyrir þekkingastarfsemi hafa ekki verið lagðir á Vestjörðum. Þetta þarf að laga. Vissulega skiptir sjávarútvegurinn enn máli en vægi hans fer sífellt minnkandi. Alveg eins og þegar sjávarútvegur tók við af landbúnaði sem grunnstoð efnahagslífs á tsland um miðja síðustu öld er nú svo komið að hlutur þekkingarfyrirtækja eins og fjármálastofnana er orðinn meiri í landsframleiðslunni heldur en sjávarútvegs. Það blasir við að hvorki landbúnaður, sjávarútvegur né önnur frumframleiðsla getur dugað sem grundvöllur efnahags- lífs á nýrri öld. Nú er kominn tími til að framleiða þekkingu. Lika á Vestfjörðum. Höfundur er stjórnmálafræðingur KLIPPT 0G SK0RIÐ Alþingismenn voru duglegir að blogga fyrir kosningar en nú er eins og allir séu í fríi og hafi litla þörf fyrir að láta í sér heyra. Á heimasfðu Alþingis er að finna heimasíður alþingis- mannaog má þar sjá hversu dug- litlir þeir eru um þessar mundir. Athyglisvert er að nýir þingmenn eru ekki enn komnir með heima- síður svo varla liggur þeim mikið á hjarta. Kannski spennufall eftir kosningarnar. Margir hafa undrast það að Jóhanna Sigurðardóttir hafi ráðið Hrannar Björn Arnarsson sem aðstoðar- mann sinn en mönnum er í fersku minni þegar hann ákvað að taka ekki sæti í borg- arstjórn fyrir R-listann eftir kosningar1998 vegna skattamála. Færri muna sjálfsagt að þá birti Jóhanna Sig- urðardóttir grein í Morgunblað- inu þar sem hún varði Hrannar og sagði hann traustan og góðan félaga. Hrannar var einmitt kosningastjóri Þjóðvaka, flokks Jóhönnu Sigurðardóttur. Björgvin Halldórsson er með myspace-síðu þar sem hann segir aðdáendum sínum hvar hann verðiá næstunni. Þar kemur fram að Bo er bókaður í afmælispartí í Iðnó í kvöld, 7. júlí syngur hann í Viðey og ef horft er lengra fram í tímann kemur í ljós að Bo er bók- aður í Kaupmannahöfn 24. apríl 2008. Svona eru alvörustjörnur. elin@bladid.net

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.