blaðið - 29.06.2007, Side 20

blaðið - 29.06.2007, Side 20
FOSTUDAGUR 29. JUNI 2007 blaóió LÍFSSTÍLLHELGIN helgin@bladid.net Fyrsti þorparinn var Bjarni Valdimars- son listmálari, Siggi Ben kom á eftir honum. Hann var trésmiður sem smíðaði líkkistur og sverð fyrir okkur strákana. Bfldudals grænar baunir Kynna fólki arnfirska menningu Fjölskylduhátíðin Bíldu- dals grænar baunir er haldin annað hvert ár og er nú haldin í þriðja sinn um helgina á Bíldu- dal. Arnfirðingafélagið í Reykjavík stendur fyrir hátíðinni. Sérstaða hennar er að öll skemmti- atriði eru í höndum heimamanna. Eftir Lovísu Hilmarsdóttur lovisa@bladid.net Valdimar Gunnarsson er brott- fluttur Arnfirðingur og einn af skipu- leggjendum hátiðarinnar. Hann segir markmið hátiðarinnar vera að kynna ferðafólki arnfirska menningu. „Við erum að viðhalda þeirri miklu menn- ingar-, lista- og sagnahefð sem Arn- firðingar eru þekktir fyrir og ætlum að skila henni til komandi kynslóða. Það eru brottfluttir Arnfirðingar sem sjá um þessa hátíð og það eru oft miklir fagnaðarfundir sem eiga sér stað, gömul skólasystkini eru að hitt- ast eftir mörg ár,“ segir Valdimar. Vísnakvöld „Það verður fjölbreytt og skemmti- leg dagskrá alla helgina,“ segir Valdi- mar og stílað verður inn á alla ald- urshópa. „Við höfum eitthvað fyrir alla. Hér verður keppt í íþróttum, svo höfum við púttmót fyrir eldri borg- ara og kassabílarall fyrir þá yngstu svo eitthvað sé nefnt. Það verða tón- leikar úti um allan bæ ásamt leik- og myndlistarsýningum. Einn af stór- viðburðunum er vísnakvöld og þar munu 20 manns sjá um að skemmta gestum. Að sjálfsögðu verða einnig leiktæki fyrir yngstu börnin. Þetta er mikil fjölskylduskemmtun," segir Valdimar. Besta veðrið Að sögn Valdimars verður dag- skráin dreifð víðs vegar um bæinn. ,,Það verður haldin dorgveiðikeppni á bryggjunni. Einnig veiðum við rækju sem við gerum að og svo getur fólk pillað hana ofan í sig sjálft. Svo er spáin alveg svakalega flott, það verður hvergi á landinu jafn gott veður og á Bíldudal. Á laugardags- kvöldinu verður sett upp risastórt grill þar sem hátíðargestir geta komið saman og borðað í góðviðr- inu. Þá verður útidansleikur þar sem ungir sem aldnir geta dansað saman fram eftir nóttu,“ segir Valdimar. Þorparinn Margir siðir hafa myndast með tilkomu hátíðarinnar og er einn af þeim sérmerktur bjór. „Við höfum þann skemmtilega sið að STAÐURINN Bíldudals grænar baunir er nú haldin í þriðja skipti Engin aðkeypt skemmti- atriði eru á hátíðinni Valinn er þorpari hátíðar- innar við látum sérmerkja bjór sem nefnist þorparinn. Þá er mynd af gömlum þekktum þorpara sett á bjórflösku og saga hans límd aftan á hana. Þetta eru alltaf einhverjir einstaklingar sem hafa sett svip sinn á bæinn. Það er alltaf rosaleg spenna hver það verður ár hvert. Við merkjum líka bjórglös og fólk getur safnað þorp- urunum. Það skemmtilega við þetta er að við fáum alltaf erindi og ábend- ingar frá fólki um hver skuli eiga að prýða bjórinn. Fyrsti þorparinn var Bjarni Valdimarsson listmálari og Siggi Ben kom á eftir honum. Hann var trésmiður sem smíðaði líkkistur og sverð fyrir okkur strákana. { ár er það Júlli Páls. Hann var þekktur í þorpinu en lést fyrir nokkrum árum. Það er komin pressa á okkur núna að kvenmaður skuli prýða bjórinn en úrvalið af kvenskörungum er mikið hér á Bíldudal," segir Valdimar enn- fremur og bætir við að hátíðin sé öllum opin og hvetur hann alla til að koma. Stakkholtsgjá Búist er við miklum fjölda fólks í Þórsmörk um helgina. Frá Þórsmörk er upplagt að fá sér göngutúr að hinni fallegu Stakkholtsgjá sem sjá má hér fyrir ofan. Hjá rekstraraðilum tjaldstæðisins í Húsadal í Þórsmörk fengust þær upplýsingar að að- eins séu örfá svefnpokapláss eftir í skálum. Nóg pláss er hins vegar á tjaldstæðinu, en um að gera að leggja snemma af stað í dag vilji menn vera öruggir um að ná góðum Stað. Blaöiö/BrynjarGauti Blúshátíö í Ólafsfirði Ólafsfirðingar standa fyrir heljar- innar blúshátíð um helgina. Þetta er í áttunda skipti sem hátíðin er haldin og verður hún alltaf stærri og glæsi- legri með hverju árinu. Gísli Rúnar Gylfason, umsjónar- maður hátíðarinnar, segir að einvala- lið tónlistarmanna muni koma fram ( Ólafsfirði um helgina. „Á föstudags- kvöldið verður mjög gott blúskvöld þar sem komasaman helstu blúshljóm- sveitir landsins ásamt hollenskri sveit. Við erum að reyna að gera eitthvað fyrir alla en það er 18 ára aldurstak- mark á tónleikana sem eru að kvöldi til. Á laugardeginum ætlum við að vera með fjölskylduskemmtun þar sem blúsað verður utandyra. Stór úti- markaður verður haldinn og leiktæki og skemmtun fyrir börnin. Á laugar- dagskvöldinu ætlum við að tvískipta þessu, byrja með léttum tónleikum með Friðriki Ómari og Guðrúnu Gunnars. Svo tekur við blúsbomba seinna um kvöldið þar sem landslið tónlistarmanna kemur saman. Aðspurður segir Gísli að kveikjan að þessari hátíð hafi verið hjá tveimur heimamönnum. „Þetta er orðið svolítið stærra í sniðum heldur en lagt var upp með í fyrstu. Kormákur Bragason og Ólafur Þórðarson úr Ríó Tríóinu byrjuðu með þetta. Hugmyndin var að mynda smá blússtemningu eitt kvöld. Svo urðu menn stórhuga og núna er þetta þriggja daga hátíð og við flytjum inn tónlistarmenn," segir Gísli og bætir við að miðar séu seldir í anddyri félagsheimilisins. Dauöarokksveisla Þekktasta og söluhæsta dauða- rokkshljómsveit sögunnar spilar á tónleikum á NASA í Reykjavík næst- komandi laugardag og sunnudag, en seinni tónleikarnir verða fyrir alla aldurshópa. Um verður að ræða allsherjar þungarokksveislu báða dagana þar sem hljómsveitirnar Mínus og Changer leggja Cannibal Corpse lið ásamt því sem Forgarður Helvítis, Momentum og Severed Crotch sjá um upphitun. Cannibal Corpse er fyrsta dauða- rokkshljómsveit sögunnar til að hljóta platínusölu í heiminum og sú fyrsta sem kom dauðarokksplötu á vinsældarlista Billboard Magazine í Bandaríkjunum. Samkvæmt Ni- elsen Soundscan er hún jafnan sölu- hæsta dauðarokkshljómsveit allra tlma. UM HELGINA • Gaukurinn Sniglabandið mun troða upp á Gauknum, laugar- dagskvöldið 30. júní. Það verður frítt inn til miðnættis. • Austurland Djasshátíð verður haldin á Austurlandi um helgina. Dagskráin er fjölbreytt og dreif- ist víðs vegar um Austurland. • Hamingjudagar Hinir árlegu Hamingjudagar verða haldnir á Hólmavík um helgina, fjölbreytt lista- og skemmtidagsrá verður í boði fyrir alla fjölskylduna. • Listasafn Árnesinga Þor- valdur Þorsteinsson, myndlist- armaður og rithöfundur, verður með leiðsögn á sýningunni AÐ FLYTJA FJÓLL, sunnudaginn 1. júlí, í Listasafni Árnesinga. • Belg-fs-hópurinn Níu lista- menn sem eiga það sameiginlegt að hafa útskrifast frá Listahá- skólanum í Tongeren, Academie og Fine Kunst, í Belgíu opna sýningu í Listasal Saltfiskseturs, laugardaginn 30. júní. • Piayers Gleðisveitin Rutops mun leika fyrir dansi á skemmti- staðnum Players í Kópavogi, laugardaginn 30. júní. • Einleikshátíð Leiklistarhá- tíðin Act Alone er í fullum á gangi á ísafirði um helgina. Há- tíðin er helguð einleikjum og er eina leiklistarhátíðin sem haldin er ár hvert. • Akureyri Tékkneski strengja- kvartettinn PiKap leikur á tón- leikum Listasumars á Akureyri í Ketilhúsinu, föstudaginn 29. júní kl. 12.00. • Blúsrokktónleikar Hjóm- sveitin B-Sig mun standa fyrir blúsrokktónleikum á Gauknum ásamt Elínu Eyþórsdóttur söng- konu. Tónleikarnir verða í kvöld kl. 22.00. • Humarhátíð Um helgina verður Humarhátíðin á Höfn haldin í 14. skiptið. Á sama tíma fagnar bærinn 110 ára afmæli sínu og hátíðin verður því með glæsilegra móti í ár. LÁTTU VITA Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á bladid@bladid.net

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.