blaðið - 29.06.2007, Síða 21
blaöió FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 2007 21
Ljótu hálfvitamir fagna útgáfu fyrstu plötu sinnar
Ljótu hálfvitarnir Verða með
hálfvitagang í Borgarleikhúsinu
annað kvöld.
Bætum upp útileguna
Húsvíska hljómsveitin
Ljótu hálfvitarnir ætlar
að halda útgáfutónleika í
Borgarleikhúsinu annað
kvöld í tilefni af útkomu
sinnar fyrstu hljómplötu
sem ber sama nafn og
sveitin sjálf.
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@bladid.net
Þessi níu manna stórsveit er fremur
ný af nálinni í núverandi mynd, enda
stofnuð fyrir rúmu hálfu ári, en
rætur hennar liggja þó lengra aftur í
tímann.
„Ræturnar liggja um 20 ár aftur í
timann, en áður var til tríó sem hét
Ljótu hálfvitarnir sem ekki bar mikið
á. Svo var önnur hljómsveit sem hét
Rip, Rap og Garfunkels og hana skip-
uðu að hluta til sömu meðlimirnir.
Við héldum sameiginlega tónleika í
október á síðasta ári og í framhaldi
af því kom upp sú hugmynd að sam-
eina hljómsveitirnar og mynda stór-
sveit og þetta er afraksturinn af því,“
segir Arngrímur Arnarson, einn
hljómsveitarmeðlima.
Áhrif víða að
Aðspurður segir Arngrímur hljóm-
sveitina vera undir áhrifum úr
ýmsum áttum. „Við höfum stuðst við
að þetta sé einhvers konar þjóðlaga-
kennt pönkskotið popp með bjórívafi
eða einhverju slíku. Allavega er þetta
hressileg og skemmtileg tónlist sem
við spilum.“
Öll lögin á nýju plötunni eru frum-
samin en það vill svo til að allir níu
meðlimirnir semja lög og texta. „Það
eiga allir minnst eitt lag og/eða einn
texta á plötunni og það þýðir nátt-
úrlega að breiddin í tónlistinni er
nokkuð mikil. Að auki spilum við
allir á mismunandi hljóðfæri og
skiptum gjarnan um hljóðfæri á milli
laga. Þannig að þetta er mjög lýðræð-
isleg hljómsveit og það reynir mikið
á samhæfinguna okkar á milli. Sem
betur fer hefur það gengið ágætlega
hingað til enda erum við farnir að
þekkjast mjög vel auk þess sem við
höfum töluvert spilað á tónleikum
á litlum stöðum þar sem nándin er
mikil,“ segir Arngrímur.
Lýsandi nafn
Af hverju heitir hljómsveitin
Ljótu hálfvitarnir? Eruð þið Ijótir
hálfvitar?
„Ja, fólk verður eiginlega bara að
koma sjálft og dæma um það,“ segir
Arngrímur og hlær. „Eins og ég
sagði kemur nafnið frá tríói sem hét
Ljótu hálfvitarnir, en það nafn kom
þannig til að þeir voru nafnlausir
þegar þeir byrjuðu að skemmta á
einum tónleikum, og síðan þegar
LJÓTU HÁLFVITARNIR
Meðlimirnir koma frá Húsa-
vík og nærliggjandi sveitum.
Hljómsveitin er ný í núver-
andi mynd en á allt að 20
ára forsögu.
Spilar þjóðlagakennt, pönk-
skotið popp með bjórívafi.
þeir höfðu lokið sér af sagði einhver
við þá: „Þið eruð nú ljótu hálfvit-
arnir“. Þetta er líka mjög lýsandi
nafn fyrir hljómsveitina, enda er
mikill hálfvitagangur í okkur þegar
við spilum auk þess sem við erum
mjög skrautlegir allir saman.“
Tónleikar í stað útilegu
Nú fer í hönd næstmesta ferða-
helgi ársins en Ljótu hálfvitarnir
láta það ekki hindra sig í að halda
útgáfutónleika á mölinni. „Þeir
sem ekki fara í útilegu geta þá bara
komið á tónleika í staðinn. Við
erum alveg kokhraustir og vonum
að sem flestir komi og skemmti sér
með okkur á Stóra sviðinu í Borg-
arleikhúsinu. Við munum alveg
bæta fólki upp útileguna,“ segir Arn-
grímur ákveðinn.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21
annað kvöld og hægt er að nálgast
miða í miðasölu Borgarleikhússins
og á midi.is.
Samkoma gegn pyndingum
Hópur ungra Amnesty-félaga
stendur fyrir uppákomu á Austur-
velli á morgun, laugardaginn 30.
júní milli klukkan 13 og 17, þar sem
vakin verður athygli á þeim pynd-
ingaraðferðum sem eiga sér stað í
„stríðinu gegn hryðjuverkum", en
þær teljast vera „yfirheyrsla“ sam-
kvæmt skilgreiningum ýmissa
ríkja á hugtakinu. Gestir og gang-
andi geta kynnt sér aðferðirnar
og þann skaða sem þær valda og
gripið til aðgerða gegn pyndingum
og illri meðferð.
„Hópurinn sem að þessu stendur
ætlar að kynna þessar „yfirheyrslu-
aðferðir" fyrir fólki og sýna hvaða
aðferðum er beitt og vekja fólk
til umhugsunar," segir fris Ellen-
berger, herferða- og aðgerðastjóri
Amnesty á íslandi. „Það er sérstak-
lega verið að vekja athygli á þessu í
sambandi við leynifangelsi, fanga-
flug, stríð gegn hryðjuverkum og
svo framvegis. Málið er að það er
verið að grafa undan pyndingar-
hugtakinu og kalla pyndingar ein-
hverjum öðrum nöfnum.“
Þann 26. júní voru liðin 20 ár frá
gildistöku samnings Sameinuðu
þjóðanna gegn pyndingum og ann-
arri grimmilegri, ómannlegri eða
Vilja vekja athygli á pyndingum Frá fanga-
búðunum við Guantánamó-flóa í Kúbu.
vanvirðandi meðferð eða refsingu.
114 ríki hafa fullgilt hann og önnur
8 skrifað undir hann. Einnig hafa
56 ríki fullgilt valfrjálsa bókun
við samninginn sem heimilar eft-
irlitsfólki að heimsækja fangelsi
og aðrar varðhaldsstofnanir án
fyrirvara.
Þrátt fyrir það sýna ársskýrslur
Amnesty International ár eftir ár
að í meirihluta ríkja heims er fólk
pyndað eða látið sæta illri meðferð.
Arsskýrslan 2007 fjallaði um 153
ríki og af þeim höfðu minnst 102
beitt pyndingum eða annars konar
illri meðferð.
PYNDINGAR
►
Amnesty hyggst vekja athy-
gli á pyndingaraðferðum
sem notaðar eru í „stríðinu
gegn hryðjuverkum“
►
Tuttugu ár eru frá því samn-
ingur Sameinuðu þjóðanna
gegn pyndingum og grimmi-
legri meðferð tók gildi.
}/>■ í meirihluta ríkja heims er
fólk pyndað eða látið sæta
illri meðferð samkvæmt
skýrslum Amnesty Interna-
tional.
A kexmáli þýðir þetta: úrvalsgott súkkulaði,
hafrar, hveilhveiti og unaðslegt bragð.
Hob-Nobs er nefnilega
eina kexið sem talar!