blaðið - 29.06.2007, Side 25

blaðið - 29.06.2007, Side 25
blaóió FÖSTUDAGUR 29. JÚNl' 2007 Veiðidagur fjölskyldunnar heppnaðist vel Margir veiddu frítt Margir veiðimenn fóru til veiða á veiðidegi fjölskyldunnar sem var haldinn síðasta sunnudag víða um landið og veiðin var ágæt á mörgum stöðum. Það var Landssamband stanga- veiðifélaga sem stóð fyrir deg- inum í samráði í veiðifélög og landeigendur. „Við fengum fisk áðan og ég ætla að reyna áfram. Það eru fiskar hérna en þeir eru tregirsagði Ing- var Bragi, ungur veiðimaður sem við hittum á vatnasvæði Lýsu á veiði- degi fjölskyldunnar. VEIÐIDAGURINN ► Veiðidagurinn hefur verið haldinn í fjölda ára og veiðimönnum fjölgar sem nýta sér það að renna frítt fyrir fisk þennan dag. Lík- lega hafa vel yfir þúsund veiðimenn rennt fyrir fisk á þessum degi núna. En fjölmenni var á svæðunum, veiðimenn voru við veiðar á vatna- svæðinu Lýsu, veiðimaður við veiði- mann á stórum svæðum þar. Veiðin var kannski ekki mikil en allir voru að reyna og það var fyrir mestu. Þúsundir veiðimanna hafa notað daginn og rennt fyrir fisk. Dagur- inn er Landssambandi stangaveiði- félaga til mikils sóma. „Við fórum upp að Elliðavatni og enduðum síðan á Þingvöllum og við fengum nokkra fiska,” sagði veiðimaður sem við heyrðum í á mánudaginn. „Það voru margir að veiða á Þingvöllum en veiðin hefði mátt vera meiri,” sagði veiðimaðurinn ennfremur. Matthías Mar Birkisson Veiddi risableikju á spún Matthías Mar Birkisson er einn af ungu og efnilegustu veiðimönnum landsins. Við tókum hann tali fyrir skömmu en þá var stutt síðan hann kom úr veiðitúr af Barðaströnd þar sem hann veiddi vænan fisk. Þið voruð að veiða fyrir vestan fyrir skömmu, hvernig gekk? „Já, í Vatnsdalsvatni á Barðaströnd ogþaðgekkvel.“ Þú fékkst meðal annars væna bleikju? „Já, við pabbi vorum að veiða saman og ég veiddi risableikju á svartan spún.“ Hefurðu veitt eitthvað í vötn- GOÐRAÐ unum í kringum Reykjavík? „Nei, ekki mikið en ég hef veitt mikið af obbum í Noregi. Það var mikið af obbum í vatninu þar sem við bjuggum." Manstu hver er stærsti fiskurinn sem þú hefur veitt? „Já, það var þessi bleikja. Hún var 47 cm löng og meira en 3 1/2 pund. Ætlarðu að veiða eitthvað í sumar? Já, ég ætla að fara aftur í Vatns- dalsvatn og svo ætlum við að veiða í Skorradalsvatni," sagði Matthías ennfremur. Þurrfluguveiði í Minnivallalæk „Erlendir veiðimenn sem voru að koma úr Minnivallalæk fengu fína veiði og væna fiska á þurr- fluguna,” sagði Þröstur Elliða- son en þessir erlendu veiðimenn voru að koma af veiðislóðum fyrir fáum dögum. Fleiri og fleiri reyna þurrflug- una, vatn er lítið í veiðiánum og veiðimenn vilja reyna eitthvað nýtt. Þurrflugan er þannig að hún flýtur ofan á vatninu. Flestir bera á fluguna til að hún fljóti betur. Hægt er að kaupa sprey í veiðibúðum og sérfræð- ingarnir gefa veiðimönnum upp- lýsingar um þennan veiðiskap. Veiðimenn sem voru að koma af Skagaheiðinni fengu fína veiði og flesta fiska fengu þeir á þurrflugur. „Að veiða fiskinn á þurrflug- una er meiriháttar. Það er stórkostlegt að sjá þegar fiskurinn kemur eftir hylnum og tekur hana,” sögðu veiði- mennirnir sem voru að koma af Skagaheiðinni. Fjölskylduparadísin Hvammsvík í Kjós Hópar - félagasamtök - fyrirtæki - fjölskyldur! í Hvammsvík er hægt að veiða, spila golf, róa kajak, grilla, spila fótbolta, fara í gönguferðir, tína krækling í fjörunni, fara á hestbak, slæpast, leika sér, tjalda eða slappa af í sveitakyrrðinni og njóta fagurs umhverfis. Tilvalin fyrir dags- eða helgarferð starfsmannahópa og fjölskyldur. Hafið samband og látið okkur gera tilboð í fjölskyldudag fyrirtækisins eða ættarmótið, við setjum saman áætlun sem hentar öllum. {ÍVL^LII Llt/Z Sfmi 566 7023 - 893 1791 - Fax 566 8960 - eMail: info@hvammsvik.is - www.hvammsvik.is E Auglýsingasíminn er 510 3744 Sérfræðingar í fluguveiði Hælum sLancjir, splæsum línur og setjum upp. SportvörugerOin hf., Skipholt 5. s. 562 8383. Md!öSSÍSS!* Hafðu samband og fáðu gott pláss fyrirauglýsinguna þína :ta@bladlc Kolbrún Dröfn 510-3722 kolla@bladid.net blaöié 3\ FYRIR VEIÐIMANNINN “ Vatnsheld niður á 10 metra dýpi OLVMPUS Mju-770SW 7.1 Milljón pixlar Þolir fall úr 1.5 metra hæð Frostþolin (-10°C) Þolir 100 kg. þrýsting 3x aðdráttur í linsu Verð: 38.900 kr OLYMPUS Your Vision, Our Future ORMSSON UM LAND ALLT • www.ormsson.is

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.