blaðið - 29.06.2007, Page 26
FÖSTUDAGUR 29. JUNÍ 2007
ÍÞRÓTTIR
ihrottir@bladid.net
Vandamálið er að íslenskir íshokkíleikmenn
spila að jafnaði aðeins 60 mínútur á ísnum
samtals yfir tímabilið og það er einfaldlega allt
of lítið til að vera ásættanlegt í hokkígreininni
SKEYTIN INN
Carlos Dunga,
þjálfari Bras-
iliu, fer með
veggjum eftir 2-0
tap liðs síns í fyrsta
leik Ameríkukeppn-
innaríknattspyrnu
gegn Mexíkó. Dunga hlaut skítkast
fyrir val sitt í landsliðið en þrátt
íyrir að þar vanti menn eins og
Ronaldinho er liðið stappfullt af
stjömum. Leikaðferð Dunga dugði
þó skammt gegn eitruðum Mexí-
kóum sem áttu sigurinn skilinn.
Einuleikmanna-
hreyfingarn-
ar virðast
gerast á Spáni þessa
síðustuogverstu.
Atletico Madrid
hefur að sögn
spænskra fjölmiðla náð samkomu-
lagi við Villarreal um kaup á þeim
Diego Forlán og Juan Antonio
Riquelme fyrir 2,5 milljarða króna.
Ef rétt reynist em það kjarakaup.
Forlán hefur gengið vel í vetur og
Riquelme er að slá í gegn í Argentínu.
Nicholas
Anelka eða
Obafemi
Martins? Þessir
tveir em helst nefnd-
ir sem eftirmenn
IhierryHenryhjá
Arsenal og kemur nokkuð á óvart
enda Wenger þjálfari fundvfs á nýjar
stjömur og óhræddur að nota þær.
Henry var einmitt sjálfur lítið og illa
notaður hjá Juventus á sínum tíma.
Forsvarsmenn Newcastle kannast
ekkert við meintan áhuga á Martins.
Frakkar njóta
vegs og virð-
ingarvíðaum
heimfyrirnokkuð
algeng skyndiverk-
föllsínþegarárétt
þeirra er gengið
að þeirra mati. Knattspyrnumenn
em af sama meiði og hika alls
ekki við að fara í verkfall sé ekki
farið að vilja þeirra. Eric Abidal
hefur verið í slíku hjá Lyon og nú
er aðalstjarna Bordeaux, .einnig
farinn í verkfall þar sem hann fær
ekki að fara til Glasgow Rangers.
Agierlykilorð
þjálfara Bay-
em Miinchen
þessa dagana en
Ottmar Hitzfeld
virðist ætla að vera
áfram með liðið þó
aðeins hafi verið gerður tímabund-
inn samningur við hann i vetur
til sumars. Liðið hefur á stundum
verið uppnefnt FC Hollywood vegna
lífemis leikmanna en Hitzfeld ætlar
að taka fyrir það. Hyggst hann fjölga
æfingum til muna og sýna öllum
þeim hörku sem ekki lúta reglum.
Sendibílar
til leigu
Leikurinn úti
Þjálfarinn sendur heim Sigur í deildinni dugði ekki til
Það er álitamál hvort sú ákvörðun
forsvarsmanna Real Madrid að
sparka Fabio Capello þjálfara og
henda út rauða dreglinum fyrir
Bernd Schuster er góð eða slæm.
Hún er slæm fyrir þjálfara því ef
sigur í erfiðustu deild Evrópu dugir
ekki til þá er ekkert til sem heitir
atvinnuöryggi. Á hinn bóginn er
þetta frábært fyrir áhugamenn
vegna þess að karlinn er ekki að fá
reisupassann af þvf hann stóð sig
svo illa heldur af því stórlið Real
spilar leiðinlegan bolta.
Fallöxin hefur hangið yfir Ital-
anum frá því í janúar en fyrri hluta
leiktíðarinnar þótti Real Madrid
stálheppið að vera í efri sætum.
HVERERFABIO?
Fabio Capello hefur tvívegis
þjálfað Real Madrid
Hann hefur tvívegis unnið
spænska titilinn
Capello hefur unnið fjórtán
titla með liðum sínum
Heppnissigrar voru margir og
jafnvel þegar verst gekk náði liðið
stigi. Það fór hins vegar mjög fyrir
brjóstið á aðdáendum að leikmenn
léícu með hálfum huga og skemmt-
anagildið á leikjum var minna en á
Goldfinger á mánudagsmorgni.
Sumir vilja einnig meina að yfir-
lýsingar Capello vegna David Beck-
ham hafi verið síðasti naglinn í kistu
hans. Tók hann djúpt í árinni hvað
Englendinginn varðar í vetur þegar
hann sagði Beckham ekki spila
meira með Real. Það varð hann að
éta ofan í sig aftur og að mörgu leyti
er það Beckham að þakka að liðið
vann titilinn á lokasprettinum.
Engin þörf er að vorkenna Cap-
ello. Um hann er setið sem þjálfara
og hann mun næstu tvö árin fá
greiddar þrjár milljónir króna viku-
lega úr sjóðum Madrid. Hægt að
tóra bærilega á því á ströndum Ta-
ílands þangað sem karlinn er farinn
í sumarfrí.
Tvö þúsund marms á Shellmótinu í Eyjum:
Glimrandi veður fyrsta daginn
„Bestu fréttirnar eru að veðrið er frábært en því hefur
ekki verið að heilsa á mótinu í fjögur ár,” sagði Einar
Friðþjófsson, framkvæmdastjóri Shellmótsins í Vest-
mannaeyjum, en alls tvö þúsund keppendur og gestir
eru í Eyjum vegna mótsins sem hófst í gær.
Á mótinu keppa strákar úr 6. flokki knattspyrnuliða
og koma félög hvaðanæva af landinu enda er þetta í 24.
skipti sem mótið er haldið og er það með vinsælustu
mótum á landsvísu. í þetta sinn sendu 20 félög stráka
til leiks en 25 félög sendu lið sín þegar best lét fyrir
nokkrum árum.
Hræringar hjá íshokkíliðum:
Íshokkíleikmenn flýja klakann
„Vandamálið er að íslenskir ís-
hokkíleikmenn spila að jafnaði
aðeins 60 mínútur á ísnum og það
er einfaldlega allt of lítið til að vera
ásættanlegt,” segir Ed Maggiacomo,
þjálfari Skautafélags Reykjavíkur
og íslenska landsliðsins í íshokkí.
Einn efnilegasti leikmaður hans er
á leið til útlanda þar sem fáir leikir
og skortur á samkeppni koma í veg
fyrir að hann geti blómstrað hér á
landi í grein sinni.
Maggiacomo hefur 40 ára reynslu
af þjálfun bæði í heimalandinu Kan-
ada og eins á Norðurlöndunum
og veit mætavel hvað hann talar
um. Hann hvetur efnilega menn
að fara út hafi þeir tækifæri til því
mikið vantar upp á að hér séu að-
stæður fyrir hendi fyrir afreksfólk
í íshokkíi.
Sá sem nú leggur land undir fót er
hinn leikni Þorsteinn Björnsson en
hann mun spila með dönsku félagi
á næstu leiktíð. í þeirri deild spila fé-
lög um 40 leiki á leiktíð samanborið
við 16 leiki hér á landi. Maggiacomo
á fastlega von á að 2-3 efnilegir ís-
lenskir leikmenn til viðbótar fari
utan næstu misserin.
Lágu flatir
íslandsmeistarar FH fengu
sinn fyrsta skell í langa hríð
gegn Val í Landsbankadeild
karla þegar liðið tapaði 4-1.
Hafnfirðingarnir hafa ekki
fengið slíka flengingu síðan
í september 2004 þegar þeir
lágu á heimavelli gegn þýska
liðinu Alemannia Aachen í
Evrópukeppni félagsliða.
Framtíðarsýn
Sjónvarpsstöðin Sýn mun
halda úti sérrás vegna enska
fótboltans á næstu leiktíð en
réttinn keyptu þeir dýrum
dómi frá Skjá einum sem
sýndi enska boltann á síðustu
leiktíð. Sýna á 380 leiki í heild-
ina eða alla Ieiki úrvalsdeild-
arinnar sem er vatn á myllu
harðra aðdáenda en gæti
fallið í grýttari jarðveg hjá
öðrum á heimilum landsins.
Ný mexíkósk
stjarna
Lorena Ochoa er næsta nafn
sem heyrast mun í tengslum
við kvennagolfið næstu árin
en þessi auðmjúka 25 ára
stúlka frá Mexíkó er að bræða
alla sem nálægt henni koma.
Veðbankar vestanhafs telja
víst að hún muni vinna sinn
fyrsta stóra titil næstu miss-
eri enda ljósárum á undan
systrum sínum hvað tækni
varðar.
Vesen á
Wimbledon
Flóð og stanslitlar rigningar
hafa sett stórt strik í reikning
staðarhaldara í Wimbledon
þar sem vinsælasta tennismót
heims fer fram. Hefur hvað
eftir annað þurft að stöðva
mótið alveg og þegar leikir
fara fram er þeim mörgum
frestað í miðjum klíðum
vegna áframhaldandi úrkomu.