blaðið - 29.06.2007, Blaðsíða 30

blaðið - 29.06.2007, Blaðsíða 30
FOSTUDAGUR 29. JUNÍ 2007 blaðið ORÐLAUSFÖSTUDAGUR ordlaus@bladid.net Það gekk mjög vel hjá okkur en sýningarnar á Woyzeck eru núna farnar að nálgast hundrað. HVAÐ Á AÐ GERA UM HELGINA? Spilar á Bar 11 „Ég ætla að skemmta mér með vinum mínum í kvöld en svo er ég að spila á Bar n annað kvöld," segir Birgir Örn Steinarsson, betur þekktur sem Biggi í Maus. Vegna tónleikanna þarf hann að sniðganga ættarmót á Tálkna- firði sem til stóð að eyða helginni í. „Foreldrar mínir voru að reyna að draga mig og ég ætlaði mér að fara þangað, enda hefði maður alveg verið til í að fara út úr bænum þessa helgi. Bjarni Haukur á líka að spila þarna og svona - synd að missa af því! En ég verð bara að bíða með að fara út á land. í staðinn tek ég eitthvað gott með vin- unum í kvöld og spila á morgun. Við félagarnir höfum reyndar ekkert ákveðið, enda verður það aldrei nógu skemmtilegt ef maður er búinn að ákveða allt fyrirfram." Með fjölskyldunni „Ég ætla að fara með fjölskyld- unni í bústaðinn okkar að Laugarási og við ætlum að vera þar í viku. Bróðir minn, Hugi, er nefnilega að koma frá Hollandi þar sem hann býr og er að læra tónsmíðanám. Hann kemur hingað til lands til þess að flytja lokaverkefnið sitt í Skálholti,“ segir Alma Guðmundsdóttir, söngkona stúlknasveitarinnar Nylon, og bætir við að tilhlökkunin sé mikil. „Ég hlakka mikið til að sjá lokaverkefni bróður míns og það er auðvitað æðislegt að fá hann hingað heim. Svo er líka gaman að hitta alla fjölskylduna og eyða með henni tíma úti á landi. Þetta verður örugg- lega ofboðslega gaman. Annars verður helgin með rólegasta móti og ekki mikið skrall. Það er allavega ekki á planinu núna.“ Rólegt fyrir boltann „Það verður mikið að gera hjá mér,“ segir útvarpsmaðurinn Heiðar Austmann sem hyggst eyða helginni í fótbolta, golf og heimsókn til mömmu. „I kvöld verð ég bara með lappirnar uppi í sófa því að það er leikur hjá okkur í iH, íþróttafélagi Hafnarfjarðar, í 2. deildinni á morgun. Við munum taka á móti Völsungi frá Húsavík og það þýðir auðvitað ekkert annað en að taka lífinu með ró þangað til og vera hress fyrir leikinn. Eftir leikinn á morgun ætla ég svo austur fyrir fjall og spila golf í góðra vina hópi. Mun eflaust koma við í sumarbústaðnum hjá mömmu og fá gott kaffi og bakkelsi hjá henni. Én svo þarf maður að bruna í bæinn fyrir miðnætti og koma sér fyrir á neðri hæðinni á Sólon þar sem ég ætla að sjá um tónlistina fram á nótt.“ Vesturport á Stóra sviðinu í haust Lífseigar sýningar Ekkert lát er á velgengi Vesturports en hópurinn sýndi Woyzeck á Spáni og hefur fengið boð um að sýna í Asíu. Eftir Hildu H. Cortez hilda@bladid.net Leikhópurinn Vesturport heldur áfram að gera góða hluti en hópur- inn er nýkominn frá Spáni þar sem þau sýndu Woyzeck á listahátíð í bænum Salamanca. Er þetta í þriðja skiptið sem hátíðin er haldin en þangað koma hundruð listamanna víðs vegar að úr heiminum. „Það gekk mjög vel hjá okkur en sýning- arnar á Woyzeck eru núna farnar að nálgast hundrað," segir Ólafur Egill Egilsson leikari. „Við erum búin að vera í London með Woyzeck en svo höfum við líka verið í Þýskalandi og Póllandi svo eitthvað sé nefnt. Þannig að þær eru lífseigar þessar sýningar okkar. Woyzeck er allavega ennþá í gangi og svo skilst mér að það sé komið í hús tilboð frá Asíu um að ferðast þar með sýninguna Rómeó og Júlíu og okkur hefur verið boðið til Tékklands í haust með Brim. Við höfum verið dugleg við að halda þessu gangandi, enda verður svo að vera þar sem stofn- kostnaðurinn er mikill og þetta verður að bera sig einhvern veginn Að sögn Ólafs eru farnar ótroðnar slóðir í vali á verkum til sýninga á listahátíðinni í Salamanca. „Það var æðislega fínt á Spáni en þeir marka sér sérstöðu í verkefnavali. Þarna voru þekkt nöfn í gjörningalist og svo var hluti borgarinnar lagður undir graffitílist og vár þetta mjög veglegt í alla staði. Það voru þarna fjölmargir listamenn alls staðar að úr heiminum, stór og flott nöfn í þessum bransa. Salamanca er líka falleg borg þar sem sjá má fjölda bygginga frá miðöldum sem gaman er að skoða. En hérna heima eru ýmis verkefni í pípunum þó Vesturport sé ekki að æfa neitt eins og er. í haust mun Þjóðleikhúsið taka Hamskiptin til sýninga á Stóra sviðinu, en það verk vorum við að sýna í London og fékk það afbragðsdóma þar og erum við líklega á leiðinni til London aftur eftir áramót með það verk. Það er nóg að gera hjá Vesturporti.“ Vesturport Leikhópurinn er nýkominn af listahátíö á SPáni Mynd/Golli Ömurlegt að missa af síðasta atriðinu „Þetta er alveg ömurlegt. Ég var bú- inn að hlakka mikið til að sjá Just- ice,“ segir Kristján Jón Pálsson en hann og fleiri sem keyptu Hróars- keldupakka Iceland Express þurfa að yfirgefa hátíðina áður en henni lýkur til að ná fluginu til baka heim til íslands. Paris frjáls eftir erfiða refsivist Paris Hilton fagnaði frelsinu á þriðjudag en þá var henni sleppt úr fangelsi þar sem hún hafði dvalið í 23 daga. Hún segir í viðtali við Larry King fangelsvistina hafa verið erfiða lífsreynslu sem hún óskar ekki neinum. Gríðarlegt tap á Galtalækjarhátíð Gríðarlegt tap var á Galtalækjarhá- tíðinni í fyrra. Éinar Bárðarson segir forsendur fyrir rekstrarmódeli há- tíðarinnar fyrir einkaaðila ekki vera til staðar. Óvíst er hvort hátíðin verði haldin í ár. * • Lay Low til eyja Hljómsveitirnar Á móti sól, 1 svörtum fötum, Sprengjuhöllin og Lay Low hafa boðað komu sína á Þjóðhátíð í ^y| Vestmannaeyjum í ár. J4! Nánari upplýsingar og bókaðu á www.icelandair.is Sölutimabil Special Ofler tilboóa: 22. júni-13. júli. Feróatimabil: 17. júlí-10. desember.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.