blaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 10

blaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2007 blaðió Útgáfufélag: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árogdagurehf. Ólafur Þ. Stephensen Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir Merkingarleysið í malbikinu Blaðið hefur undanfarna daga birt, lesendum sínum til glöggvunar, kort af fyrirhuguðum malbikunarframkvæmdum í Reykjavík í sumar. Þessar upplýsingar eru annars ekki birtar opinberlega á vegum borgarinnar, þrátt fyrir að malbikunarframkvæmdir valdi iðulega mikilli röskun á umferð- inni. Var þó varla á umferðarhnútana í höfuðborginni bætandi. í Blaðinu í fyrradag kom fram að engin áætlun er til um það hvenær til- teknar götur verði malbikaðar. Það ræðst af veðri, sem er út af fyrir sig skilj- anlegt. Verktakar á vegum borgarinnar ákveða að kvöldi hvaða götur skuli malbika daginn eftir. Ef horfur eru á löngum blíðviðriskafla malbika menn langa götu; ef veðurspáin er tvísýn velja þeir stutta götu. í Blaðinu í gær gagnrýnir Runólfur Olafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenzkra bifreiðaeigenda, verklagið hjá borginni og verktökum hennar harð- lega. Hann segir að merkingar við malbikunarframkvæmdir þverbrjóti allar reglur og séu í algjöru lágmarki miðað við það sem gerist í nágranna- löndunum. „Hér er lenska að ökumaður sé kominn alveg að framkvæmda- svæði þegar hann verður merkinga var, meðan í nágrannalöndunum eru merkingar yfirleitt staðsettar þannig að menn vita af framkvæmdasvæði löngu áður en komið er að því,“ segir Runólfur. Hann gagnrýnir líka að fólk sé ekki látið vita af framkvæmdum í tæka tíð. Hann bendir réttilega á að verktökum hljóti að vera í lófa lagið, jafnvel þótt ekki sé ákveðið nákvæmlega hvenær gata verður malbikuð, að setja upp merkingar með einhverra daga fyrirvara og benda á hjáleiðir. Út af fyrir sig þarf engan sérfræðing til að segja fólki að þessi mál séu í ólagi. Ökumenn upplifa nánast daglega, sérstaklega yfir sumarið, að götum er lokað fyrirvaralaust og án þess að fólk sé varað við í tíma. Af hverju er ekki hægt að koma þessum málum í lag? Af hverju virðist íslenzkum verktökum fyrirmunað að standa rétt að merkingum við fram- kvæmdir fyrst verktökum í útlöndum tekst það? Skortur á merkingum við gatnaframkvæmdir eykur bæði á umferðarteppurnar og veldur slysahættu. I fyrra varð banaslys á vegarkafla, þar sem merkingum við framkvæmdir var augljóslega ábótavant. Þurfa að verða fleiri slys áður en Vegagerðin, sveit- arfélög, lögreglan og aðrir, sem eiga að hafa eftirlit með merkingum, sjá til þess að reglunum sé framfylgt? Stundum er eins og skipulags- og agaleysið, sem þetta vinnulag við gatna- framkvæmdir ber aðallega vitni um, sé nauðsynlegur þáttur í þjóðarkarakt- ernum. En getur fólk ekki orðið sammála um að þessir eiginleikar Islend- inga fái að njóta sín á sviðum, þar sem þeir trufla hvorki umferðina né leggja fólk í lífshættu? Ólafur Þ. Stephensen Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aöalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Hluthafafundur Fasteignafélagsins Stoöa hf. Hluthafafundur Fasteignafélagsins Stoða hf. verður haldinn fímmtudaginn 12. júli nk. Reykjavík, sal G. Fundurinn hefst kl. 17.0CS Hótel Nordica, Suðurlandsbraut 2, Dagskrá: 1. Breyting á samþykktum félagsins: Tillaga um að veita stjórnfélagsins heimild til að hækka hlutafé félagsins með útgáfunýrra hluta, um allt aö fjárhæö 4.000.000.000 kr. aðnafnviröi til að mæta greiöslum til þeirra hluthafa KEOPSA/S sem taka yfirtökutilboöi félagsins og óska eftir greiðslufyrir hlut sinn með hlutum í Fasteignafélaginu Stoöum.Munu áskrifendur greiöa fyrir hlutina meö hlutum sinum ÍKEOPS A/S. I tillogunni felst aö hluthafar falli fráforgangsrétti sinum til áskriftar að hinu nýja hlutafé. Skalheimild þessi gilda fram til næsta aðalfundar félagsins enfalla þá niður að því leyti sem hún hefur ekki verið nýtt. Skalstjórn félagsins einnig veitt heimild til að framkvæma þærbreytingar á samþykktum félagsins sem þarf vegna heimildarþessarar og hækkunar. 2. Breyting á samþykktum félagins: Tillaga um aö veita stjórnfélagsins heimild til að hækka hlutafé félagsins með útgáfunýrra hluta, um allt að fjárhæð 250.000.000 kr. að nafnviröitil að mæta greiðslum við frekari fjárfestingar og til aðmæta kaupréttarsamningum. í tillögunni felst að hluthafarfalli frá forgangsrétti sinum til áskriftar að hinu nýjahlutafé. Skal heimild þessi gilda fram til næsta aðalfundarfélagsins, en falla þá niður að þvi leyti sem hún hefur ekkiverið nýtt. Skal stjórn félagsins einnig veitt heímild til aðframkvæma þær breytingar á samþykktum félagsins semþarf vegna heimiidar þessarar og hækkunar. 3. Kosning stjórnar og varastjórnar. 4. Önnur mál. Framangreindar tillögur liggja frammi á skrifstofu félagsins til frekari kynningar fyrir hluthafa. FASTEIGNAFÉLAGIÐ STOÐIR HF. Krinjtlunni 4-12 • IS 103 Rcykjavíl. . keljiul Sími/Tel. 4- 354 575 9000 • Fax ♦ 354 575 9001 GtElK H. MérVÆCi tíAPG 1 K'P/K RÍ^iSSTJÓR^ATÍ í5LANl>£ SICFÍI& •v l V4 « --- /IFLAHElMJtM ÓKtY... TLflTEyRl tæR UviFFttMR.TFpPl/M W K.ítNóLUMýRRflBWI/f 'ISffFJáRí't/IL PtK. HLÍMM MeÍ ÖLUl StT?ÆTóphx!1INií. x poLUNfo rV/r:t®1 Svifiúk;^ pv ÖS HÓLWAV5K F/FR MýU§TAPti lt> li?tahá§k?ia Forvarnir í grasrótinni Forvarnir snúast í stuttu máli um að undirbúa börn og unglinga þannig fyrir lífið að þau lendi ekki í ógöngum sem hægt er að forð- ast. Tækifærin sem fólk stendur frammi fyrir í lífinu eru óteljandi, en frelsið til að velja getur flækt lífið fyrir mörgum og þar þarf ekki ungar og óharðnaðar sálir til. Leiðirnar út af beinu brautinni eru ansi margar. Til þess að vel megi takast til í forvörnum, þurfa allir að leggjast á eitt; heilbrigðiskerfið, skólakerfið, þeir sem stunda rannsóknir, frjáls félagasamtök og fjölskyldur. Ábyrgð foreldra á börnum sínum hlýtur að vega þar þyngst, hlutverk fjölskyldna má ekki færast yfir á aðra aðila í skjóli þess að utanaðkomandi fagaðilar séu best til þess fallnir að vinna í forvörnunum. Með fullri virðingu fyrir slíkum sérfræðingum má hið mikilvæga hlutverk foreldra og annarra í grasrótinni ekki falla í skuggann. Það eru forvarnir þegar við foreldrarnir fylgjumst með ung- viðinu okkar af hliðarlínunni við íþrótta- eða tómstundaiðkun, hvetjum þau til dáða, kynnumst þeim við nýjar aðstæður, áttum okkur á því hvernig þau bregðast við aðstæðum sem við sjáum þau ekki í annars og lærum að hvetja þau til dáða við slíkar aðstæður. Það eru líka forvarnir þegar við kennum börnum og unglingum að setja sér markmið og ýtum undir metnað þeirra í því sem þau kjósa að taka sér fyrir hendur. Þessi at- riði eru auðvitað langt frá því að vera bundin við íþrótta- eða tóm- stundaiðkun, en margir fullorðnir þekkja það að hafa í gegnum slíka iðkun vanist því að nálgast lífið á þennan hátt og búa að því alla tíð. Einnig því að bera virðingu fyrir öðrum, taka nauðsynlegt tillit til annarra og almennt að vinna saman í hóp. Þetta eru forvarnir. Fyrir utan almenn jákvæð áhrif Hanna Katrín Friðriksson iþrótta á líkama og sál, er ómetan- legt fyrir börn og foreldra að upp- lifa þau góðu tengsl við aðrar fjöl- skyldur sem myndast í kringum íþróttaiðkun ungviðisins. Þar skiptir reyndar minnstu hvaða íþróttagrein eða tómstundir um ræðir, en tengslin sem myndast á þennan hátt þar sem foreldrum gefst kostur á kynnast vinum barna sinna og foreldrum þeirra og börnum gefst að sama skapi kostur á að kynnast foreldrum vina sinna - þau eru ómetanleg. Þarna hefjast forvarnirnar í raun. Síðastliðið haust var haldinn forvarnardagur í öllum grunn- skólum á landinu að frumkvæði forseta íslands. Unglingar í öllum 9. bekkjum komu þar á framfæri skoðunum sinum á því hvernig for- vörnum væri best háttað. Tilvitnanir í unglingana sýna svo ekki verður um villst hve þáttur foreldra og fjölskyldulífs al- mennt er mikilvægur í forvarnar- starfinu: „Vinna minna og tala við börnin sín.” „Kaupa minna hús, þá þurfa foreldrar ekki að vinna eins mikið og allir eru meira saman.” „Ekki endalausar ræður, heldur venjuleg samtöl.” Mikilvægi vettvangsstarfs er aldrei ofmetið í tengslum við forvarnir. Forvarnarstarf verður aldrei unnið eingöngu ofan frá, heldur þarf frumkvæði félagasam- taka að fá að blómstra í nánu sam- bandi við foreldra. Sérfræðingar eru auðvitað nauðsynlegir til að styðja við starfið og sjá um rann- sóknir, mat og eftirfylgni í krafti sérþekkingar sinnar og reynslu, en það má ekki gerast að málum sé þannig fyrir komið að sérfræð- ingsskipulagið virki hamlandi á forvarnarstarf og drepi niður það frumkvæði og þann kraft sem grasrótin gefur. Slíkt fyrirkomu- lag virðist líka til þess fallið að draga úr aðkomu þeirra sem mesta ábyrgð bera, foreldranna. Höfundur er aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra KLIPPT 0G SK0RIÐ Gissur Sig- urðsson, fréttamaður á fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgj- unnar, virtist ekki par ánægður með Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmála- ráðherra í viðtali við þau Bítisfólk í gærmorgun. Þau voru að fara yfir fréttayfirlitið klukkan hálfníu. Hann gagnrýndi Jóhönnu fyrir að lækka lánshlutfall Ibúðalánasjóðs úr níutíu prósentum í áttatíu þegar hún hefði sjálf mótmælt þeirri að- gerð árinu á undan og svo hækkun- inni er Magnús Stefánsson hækkaði lánshlutfallið rétt fýrir kosningar. Gissur fylgdi orðum sínum eftir með frétt um viðsnúning Jóhönnu í hádegisfréttatímanum, þeirri fyrstu í röðinni þann daginn. ][ óhanna ritaði á | heimasíðu sína 29. júní í fyrra: innulaus áróður bankanna sl. 2-3 ár gegn íbúðalána- sjóði er að bera ár- angur. Það staðfesta svokallaðar efnahagsaðgerðir ríkisstjórnar- innar. Það er reyndar með ólík- indum að ríkisstjórnin telji það mikilvægt til að slá á verðbólguna að lækka lánshlutfall úr 90% í 80% og lækka hámarkslánin um 1 milljón. Bankarnir eru þeir einu sem græða á þessari aðgerð, enda trúi ég því að bankastjórar og eigendur bankanna hafi opnað kampavínsflösku og tekið bakföll af hlátri yfir því hvernig þeir eru búnir að plata stjórnvöld og hafa að fíflum.“ En er bönk- unum skemmt? „Við fögnum þessu,“ sagði Guðjón Rúnarsson, fram- kvæmdastjóri Sam- taka fjármálafyrirtækja, við RÚV í hádegisfréttum í gær. „Þetta er jákvætt skref og nýr tónn í mál- efnum sjóðsins. Það er ljóst að það hefur verið alveg nauðsynlegt að reyna með einhverjum hætti að stuðla að efnahagslegu jafnvægi hér á íslandi. Stjórnvöld eru að senda ákveðin skilaboð." Hvers banka sé svo að ákveða hvaða vexti húsnæðislánin þeirra eigi að bera. gag@bladid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.