blaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 19

blaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 19
blaðið FIMIVITUDAGUR 5. JÚLÍ 2007 27 Sendiherrar norrænnar matargerðar Norrænir matvælaráðherrar ásamt landbúnaðar- og sjávarútvegs- ráðherrunum hafa orðið sammála um að veita verðlaun fyrir nýja norræna matargerð, alls 100.000 danskar krónur. Verðlaunin má veita einstaklingi eða samtökum sem unnið hafa einstakt starf til að kynna og þróa norræna matargerð og matarmenningu. Verðlaunin verða veitt í fyrsta sinn árið 2007 á viðburði sem Norræna ráðherra- nefndin stendur fyrir og kallast Ný norræn matargerð, en þetta kemur fram á vef Norðurlandaráðs. Fulltrúar yfirvalda á Norður- löndum sem fara með matvælamál hittast reglulega á vettvangi nor- Fljótlegt kjúklingasalat Stundum hefur fólk lítinn tíma til að elda en þá getur verið ágætt að útbúa eitthvað fljótlegt í matinn sem jafn- framt bragðast vel. Hér er upp- skrift að kjúklingasalati með vínberjum. Kjúklinginn þarf að elda áður eða kaupa hann tilbúinn, eldaðan úti í búð. Það sem þarf: 1 steiktur kjúklingur 1 stór msk. estragon 110 g græn vínber, steinlaus, skorin til helminga 150 g majónes 75 ml sýrður rjómi 3 vorlaukar, fint skornir salatblöð, skoluð og þerruð salt og nýmalaður pipar Takið allt skinn af kjúk- lingnum og skerið kjötið niður í stóra skál, bragðbætið með salti og pipar. Setjið majóncs í aðra skál ásamt sýrða rjómanum og blandið vorlauknum saman við. Það má bæta í sinnepi eða öðrum eftirlætis- kryddum. Hellið sósunni yfir kjúklinginn og hrærið létt saman. Leggið salatblað á disk og salat þar ofan á. Dreifið vín- berjum yfir og skreytið með fersku kryddi eftir smekk. Hvítkál Hvítkál er eitt mest borðaða grænmetið á íslandi enda hefur verið auðvelt að rækta það hér á landi. Hvítkál kemur þó upphaflega frá Miðjarðarhafslöndunum og hefur verið þekkt í meira en 5000 ár. Sagt er að Rómverjar hafi tekið með sér hvítkál vítt og breitt um Evrópu og notað það í lækningaskyni. Hvítkál er ríkt af A- og C-vítamínum. Hægt er að matreiða það á margvíslegan hátt, borða hrátt, steikja, sulta, sjóða, nota það í súpur, jafninga eða sem meðlæti. Einnig er vinsælt víða erlendis að búa til súrkál úr því. rænu embættismannanefndarinnar um matvæli. Markmiðið með sam- starfi Norðurlanda í matvælamálum er að vernda heilbrigði neytenda, koma í veg fyrir villandi merkingar og að hvetja til neyslu hollari mat- væla. Samstarfinu er ætlað að stuðla að því að varðveita og þróa fagþekk- ingu og vísindalega sérfræðikunn- áttu á sviði matvæla. Nefndin tekur fyrir grundvallarspurningar sem snerta matvæli, matvælaeftirlit og Verkefnið hefurgengurvel. Meðal annars hefur verið komið á nánu samstarfi við Norrænu nýsköpun- armiðstöðina sem styrkti 6 nýsköp- unarverkefni á sviði matargerðar á tímabilinu 2007-2009. Alls hafa 12 milljónir danskra króna verið veittar til verkefnisins. Michael Björklund frá Álands- eyjum, Anne Sofia Hardenberg frá Grænlandi og Leif Sorensen frá Færeyjum voru skipuð sendiherrar nýrrar norrænnar matargerðar á norrænum ráðherrafundi í Björne- borg fyrir stuttu. Sendiherrarnir þrír bætast við þá ellefu sem þegar hafa verið skipaðir. Verkefni þeirra er að miðla þekkingu og vekja at- hygli á verkefni um nýja norræna matargerð. Sendiherrarnir hafa allir staðið fyrir átaksverkefnum til að koma norrænni matargerð og menningu á framfæri. i ns Norrænn matur þykir sérstakur Nýir matarsendiherrar ásamt ráð- herrum Danmerkur og Finnlands. Opnum sérverslun okkar að Laugavegi 27 í dag kl. 10 eftir breytingar. Verið velkomin wKmjk Wax--- ■ ■ ■7.' qááíMri 1 gMwfi Te & Kalli Sérverslun • l.aueaveei 27

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.