blaðið - 11.07.2007, Page 2

blaðið - 11.07.2007, Page 2
2 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 2007 blaóið Fyrrverandi heilbrigðisráðherra lét vinna fyrir sig skýrslu um leiðir til að lækka lyfjaverð Tillögur um markviss skref að lægra lyfjaverði I nóvember á síðasta ári kom út skýrslan Hugmyndir og tillögur til lækkunar á lyfjakostnaði sem unnin var af sjálfstæðum aðila, Þorvaldi Inga Jónssyni, að frumkvæði Sivjar Friðleifsdóttur, þáverandi heilbrigð- isráðherra. { skýrslunni eru settar fram hugmyndir að breytingum sem gætu bætt lyfjanotkun og lækkað lyfjaverð en í henni kemur fram að. Islendingar greiddu 40% meira fyrir lyf árið 2005 en Danir og Norðmenn þegar miðað er við meðal- lyfjakostnað landsmanna. Það er trú höfundar skýrslunnar að hægt sé að minnka þennan mismun þannig að hann verði ekki meira en 10-15 pró- sent árið 2010. 1 Breyta þarf lyfjalöggjöfinni þanníg að afslættir lækki bæði lyfjakostnað sjúklings og hins opinbera. Því verði aðeins leyfðir afslættir vegna lyfja sem verið er að selja hverju sinni. Þá er lagt til að greiðsluþátttakan miðist við lyfjaverð eftir að búið er að taka tillit til afslátta I apótekinu. Afslættir þurfa að vera sýnilegri sjúklingunum og gagnsæir. Stjórnvöld þurfa að sjá til þess að reglulega verði gerðar verð- kannanir í apótekum og þær kynntar almenningi á svipaðan hátt og verðkannanir Alþýðu- sambands íslands. Mánaðarlega ætti að gefa út fréttabréf um lyfjamál. Þar yrði meðal annars birtur listi yfir þau 20 til 30 lyf sem ódýrust eru í þeim lyfja- flokkum sem kostnaðarsamastir eru. 2 3 Koma þarf á virkri samkeppni um verð f lyfjaverðskrá. Læknar verða því almennt að ávísa fyrst á ódýr reynd lyf. Bæta þarf upp- lýsingakerfi lækna þannig að á fljótlegan hátt sé hægt að kalla fram góðar upplýsingar um lyfin, ábendingu um hagstæðasta verðið og greiðsluþátttökuna. Þá þarf álagning í smásöiu að mið- ast frekar við hærra fast gjald en að prósentuálagning lækki. Auka þarf samstarf sjúkrahúsa, heilbrigðisstofnana og hjúkr- unarheimila um lyfjainnkaup, meðal annars með útboðum. Tryggja þarf að langveikir hafi gott aðgengi að ódýrum, reyndum lyfjum. Þá þarf að efla og endurmeta hlutverk stofn- ana sem koma að stjórnsýslu og eftirliti með lyfjum auk þess að leita leiða til að einfalda um- sóknir um markaðsleyfi fyrir lyf. 4 Læknirinn hættur störfum Þorsteinn Njálsson læknir sagði fyrir alllöngu upp stöðu sinni á Kárahnjúkum. Samningur Þorsteins rennur út um mánaðamót. „Hann var með tímabundinn samn- ing. Við hefðum framlengt samninginn við hann hefði hann viljað,“ segir Einar Rafn Haraldsson, framkvæmda- stjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Þorsteinn deildi í vor við Impregilo og Landsvirkjun vegna talna um manna sem urðu fyrir eitrun í aðrennslisgöngum. ibs 18 mánaða fangelsi Dæmdur fyrir kynferðisbrot Karlmaður var í gær dæmdur f átján mánaða fangelsi og til að greiða um 800 þúsund kr. í skaðabætur fyrir að hafa haft samræði við konu sem ekki gat spornað við vegna ölvunar og svefndrunga. Idómnum segir að konan hafi vaknað á stofudýnu í ókunnu húsi við að hinn dæmdi haf i haft samræði við hana og annar maður hafi staðið við hlið hans og fróað sér. aí Þagði í 40 ár ■ Nafngreinir gerendur á netinu ■ Notaður til að sýna barsmíðar Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur heida@bladid.net „Sannleikurinn er sár en hann verður að koma fram,“ segir Vfg- lundur Þór Víglundsson en hann var vistaður í Breiðavík árin 1966 til 1968. Hann, ásamt fleirum sem hafa dvalið á upptökuheimilum, skrifar á heimasíðu Breiðavíkursam- takanna um reynslu sína af heimil- unum. Ákvörðun var tekin um að nafngreina alla gerendur þar og tak- ast á við afleiðingarnar ef einhverjir verða ósáttir við það. „Það er auðvitað sárt fyrir afkom- endur gerendanna að lesa slæmar lýsingar um skyldmenni sín en þetta er líka sárt fyrir okkur og okkar af- komendur.“ Margir sem dvöldu á upptökuheimilum hafa gefið sig fram eftir opnun síðunnar í fyrra- dag og viljað ganga í samtökin. Víglundur var sjö ára þegar hann var fyrst sendur í vistun vegna erfiðra heimilisaðstæðna. Hann segir enga óreglu hafa verið á heim- ili sínu heldur hafi móðir hans orðið þunglynd eftir skilnað. „Hún kynnt- ist svo öðrum manni og hef ég á til- finningunni að ég hafi verið fyrir.“ Þegar Víglundur var ellefu ára var hann sendur til Breiðavíkur. „Ég hafði náttúrlega ekki hugmynd um hvað beið mín. Þetta var alveg allt í lagi fyrst en svo kynntist ég mann- vonsku af verstu gerð.“ Allan tímann í Breiðavík mátti Vf glundur sæta miklum barsmíðum. „Mín dvöl var algjör martröð. Þegar ég hitti strákana aftur sem voru með mér í Breiðavík þá voru þeir hissa á að ég skyldi hafa lifað þetta af og væri enn á lífi. Ég hlýt bara að hafa verið svona sterkur.“ Þegar lfða tók að lokum dvalar Víglundar var hann orðinn elstur þar. Segir hann forstöðumanninn þá hafa notað sig til þess að sýna hinum strákunum hvað væri gert til þess að ala fólk upp. „Hann barði mig ekki f einrúmi heldur alltaf fyrir framan alla. Stundum varð ég svo bólginn að andlitið á mér var allt afskræmt“. Fékk viðurnefnið Villi tígull Ein sterkasta minning Víglundar er þegar hann gerði tilraun til að strjúka. Var hann þá settur í glugga- laust herbergi þar sem var kolniða- myrkur, heitt og algjör þögn. „For- VÍGLUNDUR ► Var vistaður á upptökuheim- ilum með hléum frá 7 til 14 ára aldurs. ► Dvaldi á Breiðavík, Fitjum, Keldum, Reykjahlíð og Sil- ungapolli. stöðumaðurinn gekk svo illa frá mér eftir strokutilraunina að meira að segja konan hans kom og reyndi að stoppa hann. Hún skipti sér vana- lega ekki afbarsmíðunum." I marga mánuði eftir þetta var hann með tígullaga far eftir steininn í hring forstöðumannsins á gagnauganu og fékk þá viðurnefnið Villi tígull. Verðbreytingar í verslunarkeðjum desember 2006 til maí 2007 Ótækt fyrir neytendur Vérslanir lækkuðu verðið ekki nóg „Hagstofa íslands mat það þannig að lækkun á annars vegar virðis- aukaskatti matvæla og hins vegar vörugjöldum hefði átt að leiða til lækkunar meðalmatarkörfu heimil- isins um 8,8%,“ segir Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur ASÍ. ASÍ birtir nú verðlækkanir í fimm verslanakeðjum frá desember 2006 til maí 2007 sem voru á milli 1,6% og 6,4%. Lækkunin var frá 4,2 til 6,7% í lágvöruverðsverslununum. Algerlega óásættanlegt „Niðurstöðurnar eru algerlega óá- sættanlégar fyrir neytendur," segir Ólafur Dárri þar sem engin verslana- keðjanná lækkar vöruverð í takt við útreikninga Hagstofunnar. Samkvæmt mælingum ASÍ hafa verslanakeðjurnar fimm hækkað vöruverð sitt enn frekar, eða um o,i%-o,8% frá mars til maí 2007. „Það kemur mér verulega á óvart að verslanir hafi hækkað verð frá mars til maí en við áttum von á því að sjá verðlækkanir, meðal annars vegna þess að krónan hefur styrkst," segir Ólafur Darri og bætir við að langsamlega öflugasta aðhald við verslanir séu meðvitaðir neytendur. bjorg@bladid.net VEÐRIÐ í DAG Hlýjast vestantil Fremur hæg austlæg átt og þykknar nokkuö upp suðvestanlands síðdegis. Hiti 6 til 20 stig, svalast á annesjum norðan- og austan- lands, en hlýjast vestantil. ÁMORGUN Víða bjart Hæg austlæg átt og víða bjart veður, en sums staðar pokubakkar með norður- og austurströndinni. Síðdegisskúrir sunnan- lands. Yfirleitt hlýtt, einkum inn til landsins. STUTT • Gæsluvarðhald Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúr- skurð yfir síbrotamanni sem er grunaður um að hafa brotist inn í bíla og íbúð í Reykjavík í upp- hafi júlímánaðar. Maðurinn skal samkvæmt úrskurðinum sæta gæsluvarðhaldi til 16. júlí. aí • Sundabraut Skipulags- stofnun hefur borist tillaga Vegagerðar og Reykjavíkur- borgar að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum 2. áfanga Sundabrautar. Að- gerðirnar snerta marga og getur almenningur lagt fram skriflegar athugasemdir við til löguna eða óskað eftir eintaki hennar hjá Skipulagsstofnun til 10. ágúst næstkomandi. Leiðrétt cs. Rit6tjóm Blaðsins vill léiðrétta hvaðejna, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2. VIÐA UM HEIM Algarve 27 Halifax 21 New York 29 Amsterdam 20 Hamborg 14 Nuuk 12 Ankara 36 Helsinkl 18 Orlando 27 Barcelona 25 kaupmannahöfn 18 Osló 18 Berlín 14 London 18 Palma 24 Chlcago 24 Madrid 29 París 13 lfl|ublin t m L r, M'ianö íí V 27 .. . Prag w. 1 Frankfurt 16 Montreal 20 Stokkhólmur 19 Glasgow 14 Miinchen 17 Þórshöfn 13

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.