blaðið - 11.07.2007, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 2007
blaðiö
STUTT
• Fíkniefni Tveir karlar og kona
um tvítugt voru handtekin
með lyf sem þau gátu ekki gert
grein fyrir á sunnudagsmorgun.
Fólkið var í annarlegu ástandi og
var stöðvað við umferðareftirlit.
Fíkniefnahundur fann vandlega
falin fíkniefni í bílnum.
Henna hárvörurnar eru
unnar úr náttúrulegum
jurtum sem vinna með
hárinu þegar það er litað.
Hárið glansar af heilbrigði
Colour Powder
100% náttúrulegur litur
sem endist í 2-3 mánuði.
7 fallegir litir
Long Lasting Colour
Fastur háralitur hylur
100% grá hár.
18 fallegir litir
Sjampó og næring sem
viðheldur og frískar
háralitinn hvortsem hann
er náttúrulegur eða litaöur.
Án sodium laurenth
og lauryl sulfat.
Útsölustaðir:
Lyfja, Heilsuhúsið,
Ápótekið,
Heilsuhornió Akureyri
Fræiö Fjarðarkaupum,
Lyfjaval, Maður lifandi,
Apótek Vesturlands
Akranesi,
og Nóatún Hafnarfirði
. og Selfossi. _
---------------------4
Ómissandi
með gríllmatnum!
Slæmar eldvamir
ísumarbúðum
■ Úttekt á 21 byggingu í 10 sumarbúðum í fyrrasumar ■ Reynt að draga úr hagsmuna-
tengslum slökkviliðsstjóra með því að ráða eldvarnareftirlitsmann
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Ástand brunavarna í þeim sum-
arbúðum sem Brunamálastofnun
skoðaði í fyrrasumar var slæmt í
43 prósentum tilvika og sæmilegt í
57 prósentum tilvika. Guðmundur
Gunnarsson, yfirverkfræðingur hjá
Brunamálastofnun, segir stöðuna
ekki klapp á öxl slökkviliðsstjóra í
viðkomandi sveitarfélögum en þeir
tengist stundum rekstraraðilunum.
Hann efast jafnframt um að hann
myndi senda barn í sumarbúðir sem
fengið hafa ofangreindar einkunnir.
„Eg myndi allavega vera tvístíg-
andi,“ segir Guðmundur sem ekki
vill greina frá um hvaða sumarbúðir
er að ræða. „Foreldrar geta hins
vegar hringt í viðkomandi slökkvi-
liðsstjóra til að fá upplýsingar um
ástand brunavarna í sumarbúðum
því að málin heyra beint undir hann,“
tekur hann fram.
Hvergi ágætar varnir
{ fyrrasumar skoðaði Brunamála-
stofnun 21 byggingu hjá 10 rekstrar-
aðilum sumarbúða. Nær helmingur
af 21 byggingu sumarbúðanna fékk
einkunnina slæmt eða 43 prósent.
Einkunnina sæmilegt fengu 12 bygg-
ingar eða 57 prósent. Engin bygging
fékk einkunnina ágætt en engin
þótti heldur óviðunandi.
Einkunnagjöfin byggir á gildandi
byggingareglugerð en eldvarnareft-
irlit sveitarfélaganna hefur þurft að
taka tillit til eldri húsa sem byggð
eru samkvæmt eldri reglugerðum.
Oft er farið fram á að eigandi hús-
næðis geri langtímaáætlun um
bættar brunavarnir eða samþykki
► Brunamálastofnun hefur
skoðað byggingar kerfis-
bundið frá 1986 og sett
niðurstöður í gagnagrunn.
Hverju sinni beinist athyglin
að byggingum sem hýsa
tiltekna tegund reksturs.
Ástand brunavarna sumar-
búða hefur almennt staðið í
stað með nokkrum und-
antekningum frá skoðun
áranna 1988 til 1989.
hönnun þar sem vissum tækni-
lausnum hefur verið beitt þótt ljóst
sé að öll ákvæði gildandi reglugerðar
séu elcki uppfyllt.
„Nú er þess krafist að brunaviðvör-
unarkerfi sé í öllum þessum húsum
en slíkar kröfur voru ekki gerðar
fyrir um 20 árum eða svo. Það
þurfa jafnframt að vera óbrennan-
legar klæðningar í þeim,“ segir Guð-
mundur og bætir því við að reikna
megi með að ástandið í búðunum
sé betra nú en í fyrra. „Ef gerð hefur
verið athugasemd vegna viðvörun-
arkerfis hefur örugglega verið gerð
krafa um að það yrði lagað strax. Ef
um breytingar á sjálfu húsnæðinu er
að ræða fer það eftir eðli kröfunnar
hversu langan frest menn fá.“
25 mínúturáleiðinni
Sumarbúðirnar sem gerð var út-
tekt á í fyrrasumar eiga það nær allar
sameiginlegt að það tekur slökkvilið
yfir 25 mínútur að aka frá slökkvi-
stöð að þeim. I einu tilfelli er hægt að
segja að það taki um 15 mínútur. Þess
vegna eru gerðar strangar kröfur um
rýmingarleiðir, að sögn Guðmundar.
Viðbrögð flestra rekstraraðila
við athugasemdunum hafa verið
góð. „Þeir sem reka þessar búðir
hafa reynt að uppfæra þær eftir því
sem þeir hafa haft getu til en maður
nær aldrei 100% árangri með þetta.
Viðbrögðin við úttektinni sem við
gerðum í fyrra voru miklu meiri en
til dæmis við stórri úttekt sem gerð
var fyrir nær 20 árum. Þjóðfélagið er
orðið allt öðruvísi en var á þeim tíma.
Menn vilja ekki hafa hlutina í ólagi
hjá sér,“ tekur Guðmundur fram.
Hagsmunatengsl
Úttektir Brunamálastofnunar eru
meðal annars gerðar til að kanna
hvernig slökkviliðsstjórar standa
sig, að þvi er Guðmundur greinir frá.
„Þegar svona stór hópur fær einkunn-
ina slæmt þá er það kannski ekki
klapp á öxlina á slökkviliðsstjórum
um að þeir standi sig voða vel. Það
má líka lesa út úr þessu athugasemdir
við þeirra störf.“
Guðmundursegirslökkviliðsstjóra
í sumum tilfellum tengjast þeim sem
reka sumarbúðir og aðra starfsemi.
„Nálægðin í litlum sveitarfélögum er
alltof mikil. Þess vegna höfum við
verið að reyna að fá slökkviliðsstjóra
til að sameinast um að ráða einn
eldvarnareftirlitsmann fyrir mörg
slökkvilið. Ef hann tengist verkefn-
inu er reiknað með að við eða slökkvi-
liðsstjóri í öðru sveitarfélagi komi og
skoði fyrir hann. Það náðist mjög
góður árangur i þessu í fýrra. Það
eru mörg slökkvilið í viðræðum um
hvernig þau ætli að standa að þessu
til að draga eins mikið úr hagsmuna-
tengslum og hægt er.“
ÞEKKIR ÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
Norðausturvegur
Raufarhafnarleið
Norðausturvegur
Fremriháls-Sævarland
Strandavegur
Djúpvegur-Drangsnesvegur
itossvegur ^
Norðausturvegur
Dettifoss
Vestfjarðavegur
) i Þorskáfírði '
Norðfjarðargi
/Axarvegur
Suðurstrandarvegur
Jarðgöng
Arnarfjörður - Dýrafjörður
Vestfirðir
■ Kostnaður 1 milljarður
kr. fram til ársins 2010.
■ Framkvæmdum á Vest-
fjarðavegi lýkur 2010.
■ Framkvæmdum við
Arnarfjarðargöng lýkur
2010 í stað 2014.
Vestfjarðavegur
Kjálkafjörður-Vatnsfjörður
^Fróðárheiði
Vesturland
■ Kostnaður 600 milljónir kr.
■ Framkvæmdum lýkur 2009-2010.
Suðvesturiand
■ Kostnaður 1.400 milljónir kr.
á næstu 3 árum.
■ Framkvæmdum lýkur 2010 í stað 2015-2018.
Norðurland
■ Tenging Raufarhafnar
og Þórshafnar verði iokið
áriö 2010.
■ Framkvæmdum við
Dettifossveg verði lokið
árið 2010.
Austurland
Kostnaður við Norðfjarðargöng
2,3 milljarðar til ársins 2010.
Göngin verði tilbúin árið 2012.
■ Framkvæmdum við Axarveg
IJúkl 2011.
Tiilögur um flýtingu vegaframkvæmda
Ríkisstjómin veitir 6,5 milljarða til vegaframkvæmda
Aðrar framkvæmdir víki ekki
Ríkisstjórnin hyggst flýta vega-
framkvæmdum á ellefu stöðum
á landinu á næstu þremur árum.
Þetta er gert til að mæta skerðingu
á aflamarki þorsks á næsta fiskveiði-
ári. Allar framkvæmdirnar, utan
nýs vegar um Öxi, eru á samgöngu-
áætlun. Alls verða 6,5 milljarðar
króna veittir til verkefnanna fram
til ársins 2010.
Kristján L. Möller samgönguráð-
herra kynnti áætlunina í gær. Hann
ítrekar að einungis sé verið að flytja
til fjármagn innan núgildandi sam-
gönguáætlunar og að aðrar fram-
kvæmdir verða ekki látnar víkja.
„Margar þessara framkvæmda
munu valda allt að því byltingu.
Við sem komum af landsbyggðinni
þekkjum það vel að margir af þeim
vegum sem við erum að keyra um
eru í raun og veru ekki mönnum
bjóðandi/
Kristján hefur ekki áhyggjur af
því að framkvæmdirnar komi til
með að auka á þenslu í efnahagslíf-
inu. „Við munum hafa jafnvægi í
efnahagsmálum að leiðarljósi sem
og stöðu á verktakamarkaðnum og
annað slíkt. Þetta getur líka orðið
til þess að efla atvinnu- og efnahags-
líf á ákveðnum svæðum. Þannig að
við teljum að þetta hafi góð áhrif og
munum passa upp á að þetta valdi
ekki óþarfa þenslu,“ segir Kristján.
Hann bætir við að nú þegar fram-
kvæmdunum fyrir austan er að
ljúka, skapist gott tækifæri fyrir
vegaframkvæmdir. Til að mynda
verði auðveldara að fá verktaka til
vegagerðar en verið hefur hingað til.
magnus@bladid.net
lcelandair
Óttast
áhafnaleigur
Flugmenn Icelandair óttast að
áhafnaleigum fjölgi.
„Menn á þessum verktaka-
samningum búa ekki við
atvinnuöryggi auk þess sem
atvinnurekandi borgar engin
launatengd gjöld,l< segir Jó-
hannes Bjarni Guðmundsson,
formaður Félags íslenskra
atvinnuflugmanna.
Segist hann þekkja dæmi um
samninga þar sem flugfélagið
hafði leyfi til að senda flug-
mann heim án viðvörunar og
launa. Icelandair Group samdi
við FÍA á mánudagskvöld um
að draga til baka uppsagnir
ellefu fastráðinna flugmanna
hjá félaginu.
STUTT
• Handarbrot Héraðsdómur
Reykjaness hefur dæmt karl-
mann í 30 daga skilorðsbundið
fangelsi fyrir að sparka í dyra-
vörð fyrir uta'n veitingastað í
Kópavogi í mars í fyrra. Hann
handarbrotnaði. Árásarmaður-
inn var einnig dæmdur til að
greiða hinum manninum 145
þúsund krónur 1 bætur.