blaðið - 13.07.2007, Blaðsíða 14

blaðið - 13.07.2007, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2007 blaðió blaði Útgáfufélag: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árogdagurehf. Ólafur Þ. Stephensen Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir ÞrösturEmilsson Elín Albertsdóttir Af hverju ekki þorskeldi? Talsmenn fyrirtækja í þorskeldi lýsa í Blaðinu í gær furðu sinni á því að í mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna stórfellds niðurskurðar á þorsk- aflaheimildum skuli hvergi vera gert ráð fyrir eflingu rannsókna í greininni. Þorskeldinu hefur vaxið fiskur um hrygg undanfarin ár. Það er út af fyrir sig merkilegur árangur að á síðasta ári hafi verið slátrað 1.400 tonnum af eld- isþorski hér á landi. En auðvitað þyrfti miklu meira að koma til, ætti þorsk- eldið að vega upp á móti þeim niðurskurði þorskkvótans, sem nú hefur verið ákveðinn. Hins vegar var í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar vegna ákvörðunar um þorsk- kvótann kveðið á um aðgerðir „til lengri tíma“. Og uppbygging þorskeldis hér á landi er einmitt langtímaverkefni. Það þarf þolinmótt fjármagn, eigi árangur að nást. Þórarinn Ólafsson, sjávarútvegsfræðingur hjá Hraðfrystihúsinu Gunnvöru í Hnífsdal, sem er annað stærsta þorskeldisfyrirtæki landsins, segir í Blaðinu í gær að hið opinbera verði að auka framlög til þróunar á þorskeldi. Þróunar- vinnan sé óhemjudýr. „Því miður hafa stjórnvöld ekki fylgt eftir þeim metn- aði sem er í greininni," segir Þórarinn. Annar sjávarútvegsfræðingur, Valdimar Ingi Gunnarsson, bendir á að eld- isþorskur sé betri afurð en villtur þorskur, ormalaus og ennfremur hægt að bjóða jafnt framboð allt árið þegar eldi sé komið á fullt. Stjórnvöld í Noregi, helzta samkeppnislandi Islands í sjávarútvegi, hafa und- anfarin ár lagt tugi milljarða króna í rannsóknir á þorskeldi. Þær rannsóknir eru byrjaðar að skila áþreifanlegum árangri og því er spáð að framleiðsla Norð- manna á eldisþorski, sem var í fyrra rúmlega 11.000 tonn, muni margfaldast á næstu árum. Útflutningur Norðmanna á eldisþorski til Frakklands, Spánar, Belgíu og Bretlands er orðinn nokkur og veitingahús í þessum löndum sýna honum talsverðan áhuga. í Noregi hafa stórir fjárfestar lagt fé í þorskeldið og telja mikla möguleika felast í því. Framlag stjórnvalda og einkageirans helzt þar í hendur. Æ stærri hluti þess fisks, sem fer á markað í heiminum, kemur úr eldi. I Austur-Asíu er gríðarlegur vöxtur í fiskeldinu. ísland hlýtur að verða að bregðast við þessari þróun, ætli það að halda stöðu sinni sem forysturíki í sjávarútvegi. Af hverju mundi enginn eftir þorskeldinu þegar ákveðnar voru langtímaað- gerðir til að bregðast við stórfelldum samdrætti í þorskveiðum? Hafa stjórn- völd ekki trú á greininni? Er efling rannsókna og þróunar í þorskeldi ekki nær- tækari viðbrögð við þeim vanda, að það vantar þorsk í sjónum, en að fjölga ríkisstarfsmönnum á Vestíjörðum? Ólafur Þ. Stephensen Gott til endurvinnslu Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar. Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á f réttadeild: 510 3701 Símbréf á augl ýsingadeild: 5103711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Háþrýstidælur Vinnuþjarkar ætlaðir til daglegra nota HD 6/16-4 M HD 6/16-4 MX ■ Vinnuþrýstingur ■ Stillanlegur úði 30-160 bör ■ Sápuskammtari ■ 230-600 Itr/klst ■ Túrbóstútur + 50% ■ 15 m slönguhjól HD 10/25-4 S Y ■ Vinnuþrýstingur ■ Stillanlegur úði 30-250 bör ■ Sápuskammtari ■ 500-1000 Itr/klst ■ Túrbóstútur + 50% SKEIFAN 3E-F • SÍMI 581-2333 • FAX 568-0215 • WWW.RAFVER.IS r-j Verslunarþjóðfélagið Arðránið á sjávarauðlindinni er loksins farið að segja til sín. Við höfum gengið svo svakalega á mat- arkistuna að það er allt að verða búið í sjónum, höfum skrapað botn- inn of lengi og dregið allt of mikinn fisk að landi. Þvert ofan í ráðlegg- ingar vísindamanna. Loksins hafa stjórnvöld séð að það er ekki hægt að halda svona áfram. Sem betur fer. En þegar svo mjög er dregið úr fiskveiðum hafa menn skiljanlega áhyggjur af stöðu sjávarbyggðanna. I fréttum þessa dagana er því mikið talað um mótvægisaðgerðir til að bæta skaða einstakra staða. Af um- ræðunni má skilja að sumir telji að- gerðirnar tímabundnar, að ofveiðin haldi svo bara áfram eftir fáein ár. Það þurfi bara að brúa þann tíma með opinberum plástrum. Verstöð verður að banka Ég er vissulega ekki fiskifræð- ingur, hef varla migið í saltan sjó, eins og sagt er. Eigi að síður leyfi ég mér að spá því að í framtíðinni ein- kennist fsland ekkert sérstaklega af sjávarútvegi. Verstöðin ísland er liðin tíð. Verstöðinni hefur verið breytt í banka. Kannski mun koma í ljós að boðaður niðurskurður á fiskveiðum reynist sérstök blessun. Sjálfsmynd þjóðarinnar er enn ansi tengd fiskveiðum og opinberar að- gerðir miða enn flestar að því að gæta hagsmuna sjávarútvegsins. Oft á kostnað annarra atvinnugreina. Á meðan við miðum enn allar að- gerðir við fisk hefur orðið hljóðlát bylting á atvinnuháttum landsins. Langt fram eftir liðinni öld stóðu fiskveiðar undir svo til öllum gjald- eyristekjum landsins. Á undan- förnum árum hefur hlutfall sjávar- útvegs hins vegar dregist stórlega saman og hlutur fjármálaþjónustu stigið fram úr sjávarútvegi. Alveg eins og fiskveiðisamfélagið tók við af gamla bændasamfélaginu hefur verslunarsamfélagið nú tekið við af sjávarútveginum. Þegar sjávarútvegur var að festast í sessi á Islandi höfðu margir efa- semdir um áhrif fiskveiða á íslenskt samfélag. Opinberum aðgerðum var þá markvisst beitt til að vernda gamla bændasamfélagið. Menn gengu jafnvel svo langt að setja á sérstakt vistarband til að halda vinnufólki í sveitum og meina fólki að starfa við sjávarútveg. Nú þarf að passa að opinberar aðgerðir verði ekki til að standa í vegi fyrir eðli- legri framþróun þjóðfélagsins. Eitt atvinnusvæði Andstaðan gegn eðlilegum at- vinnu- og þjóðfélagsbreytingum héldu á sinum tíma aftur af nú- tímavæðingu íslensks samfélags. Það var ekki fyrr en eftir síðari heimsstyrjöld að menn fóru loks að sætta sig við þurrar búðir í lorpum, bæjum og borgum. haldssemin og þráin eftir hinu öngu liðna bændasamfélagi hefur enn hamlandi áhrif í íslensku samfélagi, fjötrar fortíðar birtast ekki síst í einhverju vitlausasta landbúnaðarkerfi sem þekkist á byggðu bóli, landbúnaðarkerfi sem veldur hæsta matvælaverði sem þekkist. Allt of lengi stóðu afturhalds- söm viðhorf í vegi fyrir þeim miklu framförum sem fylgdu sjáv- arútvegnum. Langt fram eftir lið- inni öld hélt þorskurinn svo lífinu í þessari þjóð, alveg eins og sauð- kindin hafði gert áður. En nú eru komnir nýir tímar. Islenskt þjóðfé- lag byggir ekki lengur tilveru sína á fiskveiðum heldur á allra handa verslun og viðskiptum, ekki síst alþjóðlegum fjármálaviðskiptum. Með nútímavæðingu viðskiptanna verður landið allt að einu atvinnu- svæði. Fyrir byggðir landsins er þvi orðið mikilvægara að efla menntun, fjarskipti og samgöngur heldur en að færa til einhverja byggðakvóta. I stað hólfaskiptra smáskammtalækninga í einstaka plássum þarf nú að hugsa aðgerðir í byggðamálum með heildstæðum hætti, það skiptir nefnilega ekki öllu máli hvar fólk býr ef aðstæður og innviðir eru í lagi. Þá fyrst geta menn raunverulega valið þann lúxus að búa úti á landi. Höfundur er stjórnmálafræöingur KLIPPT 0G SK0RIÐ Bréf í Kaupþingi hafa hækkað mikið undanfarið og stendur hlut- urinn nú í um 1200 krónum. Þeir sem nýttu sér kaup á bréfum í Bún- aðarbankanum þegar bankinn fór á markað á sínum tíma hafa því hagnast verulega á kaup- unum, t.d. Finnur Ingólfsson og Ólafur Ólafsson sem stóðu fyrir S-hópnum á sinum tíma og fleiri. Þeir keyptu upphaflega 45,8 pró- senta hlut í bankanum af ríkinu fyrir 11.9 milljarða. Almenningur átti kost á því árið 1999 að kaupa hluti i Búnaðarbanka á genginu 2,15. Þeir sem nýttu sér það þá og eiga bréfin enn hafa því fjárfest vel með kaupum sínum. Siv Friðleifsdóttir er ekki bara mótorhjólaskvísa. Hún hefur brennandi áhuga á byssum og skotfimi. Á heimasíðu sinni heldur hún úti dagbók og þar má sjá að Siv er á fullu að æfa skotfimi eða fylgjast með öðrum skotmönnum. Á miðvikudaginn skaut Siv í fyrsta skipti úr riffli og segir skotfimi sína með ágætum. „Allavega hitti ég spjaldið á 100 metra færi í ann- arri tilraun þótt ekki hafi það verið mjög nálægt miðjunni,“ segir hin skotglaða framsóknarkona. Björn Ingi Hrafnsson var manna duglegastur að blogga á Moggablogginu undanfarna mánuði og fékk því viðurnefnið ofurbloggarinn. Björn Ingi kvaddi Moggabloggið 19. júní og sagðist vera farinn yfir á eyjan.is. Menn hafa þó tekið eftir því að allur vindur er úr kappanum því hann hefur ekkert skrifað síðan 24. júní. Kannski Björn Ingi sé í sumarfríi en gárungarnir segja að Bingi, eins og hann er kallaður, hafi lent á eyðieyju! elin@bladid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.