blaðið - 24.07.2007, Blaðsíða 2

blaðið - 24.07.2007, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2007 blaðió Ferðum Herjólfs ekki fjölgað Ferðum Herjólfs verður ekki fjölgað um verslunarmannahelg- ina. Sér Vegagerðin ekki ástæðu til þess að fara fram á það við Eimskip að fleiri næturferðir verði farnar milli lands og Eyja en nú þegar hefur verið ákveðið. Kemur þetta fram í skeyti frá Gunnari Gunnarssyni aðstoðar- vegamálastjóra til bæjaryfirvalda í Vestmannaeyjum. Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, hefur svarað Reynt að svindla á gististöðum Síðustu daga hefur ýmsum gisti- stöðum borist tölvuskeyti með bókunum þar sem ætlunin er svindla á viðkomandi stöðum og að hafa af þeim fé. Varar upplýs- ingamiðstöð Hólmavíkur við slíkum tölvupóstum og hefur birt dæmi um svindlbréf. Þetta kemur fram á fréttavefnum Strandir. í tölvupóstunum er pöntuð viku- gisting og spurt um kostnað. Er síðan að öllum líkindum borgað með stolnu korti eða banka- ávísun sem tekur langan tíma að leysa út. Ferðinni er svo aflýst og beðið um endurgreiðslu áður en kemur í ljós að greiðslan er fölsk. hbv 21 stútur undir stýri Tuttugu og einn ökumaður var stöðvaður fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuð- borgarsvæðinu um helgina. Af þessum ökumönnum voru sextán karlmenn. Tæplega þriðjungur karlanna er undir tvítugu. Þar af eru tveir sautján ára gamlir en annar þeirra var á stolnum bíl. Af þeim fimm konum sem voru teknar eru fjórar um tvítugt og ein rúmlega hálffertug. skeyti Gunnars og segist ætla að óska eftir skýrum svörum frá samgönguráðuneytinu um það hvort slík ákvörðun sé endanleg. mbl.is Réttindalaus á níræðisaldri Sautján ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu um helg- ina sem höfðu ýmist aldrei öðlast ökuréttindi eða verið sviptir. Fimm reyndust einnig vera ölvaðir og eru tveir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Ökumennirnir, fimmtán karlar og tvær konur, eru langflestir á þrítugs- eða fertugsaldri. Sá elsti í hópnum er á níræðisaldri. Ökklabrotnaði við Þingvallavatn Töluverður viðbúnaður var vegna veiðimanns sem ökklabrotnaði í Vatnsvík við Þingvallavatn um miðjan dag í gær. Slysið varð í um tveggja km fjarlægð frá næsta vegi og þurftu björgunarsveitarmenn að sækja i lanninn og bera hann út á veg þar sem sjúkrabíll beið eftir honum. Maðurinn var síðan fluttur á sjúkrahús í Reykjavík þar sem gert var að sárum hans. mbl.is Umferðarmerkjum stolið Umferðarmerkjum og keilum var stolið í Hveragerði aðfaranótt laugardags þar sem þau voru i notkun vegna framkvæmda. Talið er að verðmæti merkjanna sem var stolið sé um 200 þúsund krónur. í til- kynningu frá lögreglu kemur fram að líklegt sé að þetta hafi verið gert í ótuktarskap frekar en af hagnaðarvon. Engin handtökuskipun á hendur Ólafi Ekkert bendir til þess að maltnesk stjórnvöld hafi gefið út handtöku- skipun á hendur Ólafi Ragnarssyni, skipstjóra á Eyborginni. Þetta hefur utanríkisráðuneytið eftir ræðismanni íslands á Möltu. í fréttum Ríkissjónvarpsins um helgina var sagt frá því að samkvæmt malt- neskum fjölmiðlum hefði handtökuskipun verið gefin út á hendur Ólafi, fyrir að hafa tekið um borð 21 flóttamann frá Afríku. Flótamenn- irnir höfðu velt opnum bát sínum í líbískri lögsögu, en tókst að klifra upp í túnfiskflotkvíar sem Eyborgin var að sækja. Vísir.is sagði frá. blaöi Auglýsingasíminn er 510 3744 Sjöunda og síðasta bókin um Harry Potter rýkur út Uppseld á þremur dögum Sannkallað Harry Potter-æði hefur gripið um sig hér á landi eftir að nýjasta bókin um galdra- strákinn kom í verslanir á föstu- dagskvöld. Fólk á öllum aldri hefur lagt leið sína í bókabúðir til að tryggja sér eintak af síðustu bókinni í þessari vinsælu bókas- eríu. Er svo komið að bókin er upp- seld hér á landi og er von á nýrri sendingu í lok vikunnar. „Það er búið að vera brjálað að gera í Harry Potter,“ segir Elsa María Ólafsdóttir, verslunarstjóri í bókabúð Máls og menningar. Hún segir hátt í 700 eintök hafa runnið út yfir helgina. „Ég hef verið að snapa úr verslunum sem ekki voru opnar um helgina, því bækurnar hérna kláruðust á laug- ardag. Ég man ekki eftir að hafa selt jafnmikið af sama titli í svo stóru upplagi," segir Elsa María og segir að örtröðin um helgina hafi minnt hana á Þorláksmessukvöld. Enn sem komið er fæst bókin einungis á ensku, en samkvæmt upplýsingum frá bókaútgáfunni Bjarti er stefnt á að bókin komi út í íslenskri þýðingu þann 15. nóvember. mge Galdrar Nýjasta Harry Potter- bókin er sú síðasta í röðinni og jafnframt sú vinsælasta. Kerfið hefur afskrifað pabba ■ Segja föður sinn ekki fá tilhlýðilega meðferð við krabbameini vegna áfengissýki ■ Sífellt bent á yfirfullt gistiskýli Eftir Björgu Magnúsdóttur bjorg@bladid.net „Velferðarkerfið bregst þeim sem mest þurfa á því að halda,“ segir Laufey Bára Einarsdóttir og Karen Linda Einarsdóttir systir hennar er sama sinnis. Þær hafa þungar áhyggjur af föður sínum sem er 62 ára, nýgreindur með krabbamein en hefur í engin hús að venda og fær ekki tilhlýðilega meðferð. „Vegna þess að hann vill hvorki né getur farið í meðferð hefur samfélagið engin úrræði og hann gengur alls staðar á lokaðar dyr,“ segir Karen. „Hann greindist með beinfrum- æxli í mars, en hefur þó verið með sjúkdóm síðan 2001, án þess að við höfum vitað af því, sem virðist hafa staðnað þangað til núna,“ segir Laufey. Lengi á götunni Faðir þeirra er drykkjumaður sem búið hefur á götunni um ára- bil. „Hann þarf að mæta reglulega í skoðun og blóðprufur vegna sjúk- dómsins en þegar ég reyndi að afla gagna um fyrri læknisskoðanir hans virðast engin gögn vera til um hann,“ segir Karen. Þær systur segja föður sinn hafa fullkomlega siglt í strand. „Ég hef sent inn fyrirspurnir til fé- lagsráðgjafa varðandi lausnir," segir Laufey. Þeim systrum hefur ítrekað verið vísað á gistiskýli í miðborg Reykjavíkur sem sé ætlað útigangs- Karen Linda og Laufey Bára Einarsdætur Hafa þungar áhyggjur af föður sínum. BlaðiÖ/Sverrir mönnum. „Ég hringdi fyrir stuttu í gistiskýlið og var sagt að pabbi væri númer 7 á biðlista en þar eru aðeins 16 pláss. Þó getum við ekki sett hann á biðlista skýlisins, hann þarf að gera það sjálfur þrátt fyrir að hafa nánast ekki færi á því,“ bætir Karen við. Yfirfullt gistiskýli Sigurður Kristjánsson, vaktmaður gistiskýlisins í miðbænum segir að iðulega séu margir sem ekki fái þar pláss. „Það er misjafnt hversu mörgum þarf að vísa frá, það geta verið allt upp í 10 einstaklingar á nóttu.“ Sigurður segir að sífellt íjölgi þeim sem sækja um gistingu og sér- staklega færist það í aukana að ungir menn óski eftir næturstað. Dæturnar eru orðnar ráðþrota GISTISKÝLIÐ ► ► Er neyðarúrræði fyrir heimil- islausa karlmenn Er opið frá kl. 17 á daginn til 10 á morgnana á sumrin en allan sólarhringinn á veturna ý.-. - Er í Þingholtsstræti 25 vegna ástands föður þeirra og sjúk- dóms, sem fer versnandi og finnst ömurlegt til þess að hugsa að hann þurfi að eyða síðustu árum ævi sinnar, fárveikur á götum borgar- innar. „Eina lausnin sem við sjáum í stöðunni er að hann myndi kom- ast á heimilið á Njálsgötu þegar það opnar,“ segir Karen að endingu. VEÐRIÐ I DAG Þokuloft og súld Hæg austlæg eða breytileg átt og skýjað, en þokuloft eða súld úti við norður- og austur- ströndina og skúrir suðvestanlands. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast í uppsveitum suðvestanlands. ÁMORGUN Síðdegisskúrir Hæg austlæg eða breytileg átt og skýjað að mestu, en líkur á síðdegisskúrum, einkum vestanlands. Hiti 8 til 16 stig, hlýj- ast vestan til. Baráttan gegn eyðni að tapast Heimurinn er að verða undir í baráttunni gegn eyðni, segir Dr. Anthony Fauci, einn nánasti ráðgjafi Bush Bandaríkjaforseta. Þrátt fyrir að sjáanlegur árangur hafi náðst á undanförnum árum, þá sé fjöldi þeirra sem smitast af eyðni meiri heldur en sá fjöldi sem greinist og fái aðhlynningu. ,Fyrir hvern þann sem fer í með- ferð, smitast sex aðrir af eyðni. Þetta þýðir að við erum að tapa þessum leik,“ sagði Fauci á alþjóð- legri ráðstefnu í Sydney. Fyrir þremur árum höfðu 300 þúsund manns í þróunarlöndunum aðgang að lyfjum til að halda sjúk- dómnum í skefjum. Leiðrétt Ritstjórn Blaðsins vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2. VÍÐA UM HEIM Algarve 20 Halifax 28 New York 19 Amsterdam 19 Hamborg 21 Nuuk 13 Ankara 38 Helsinki 24 Orlando 23 Barcelona 28 kaupmanlíahöfn 19 Osló 18 Berlín 23 London 19 Palma 24 Chicago 31 Madrid 28 París 17 Dublin 16 Mílanó 31 Prag 25 Frankfurt 20 Montreal 19 Stokkhólmur 15 Glasgow 19 Miinchen 20 Þórshöfn 11

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.