blaðið - 24.07.2007, Blaðsíða 6
FRETTIR
ÞRIÐJUDAGUR 24. JUU 2007
blaöiö
Hentugt við grillið
einnota borðbúnaður á tilboðsverði
Tilboðið gildir út júlí 2007
eða meðan birgðir endast.
Snæbjörn Árnason,
sölumaður hjá RV
y*vx.
Pappadiskar djúpir 19cm,
50stk (20ík)
'yC Rekstrarvörur
/HDára 1982-2007
Pappadiskar 18cm,
10Ostk (1 Oík)
Pappadiskar 23cm,
50stk (20(k)
Á t/lboði í
júlí 2007
Plasthnifapör, pappadiskar
°9 plastglðs
AAfoVtr.
Rekstrarvörur
- v/nna með þér
Réttarhálsi 2*110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala®rv.is • www.rv.is
VJð'-^intakort;
riSafc*0*
sam«'s
als'átt- .
Saf°^
V\ösk'Pta'
ER BILLINN
KLÁR í FRÍIÐ?
Láttu smyrja bílinn og athuga hjólbarðana hjá Hjól-
barðaþjónustu N1 og farðu áhyggjulaus í sumarfríið.
Réttarhálsi 2, Rvík, hjólbarða- og smurþjónusta 587 5588
Fellsmúla 24, Rvík, hjólbarðaþjónusta 530 5700
Fellsmúla 24, Rvík, smurþjónusta 530 5710
Ægrsíðu 102, Rvík, hjólbarða- og smurþjónusta 552 3470
Langatanga 1a, Mosfellsbæ, hjólbarða- og smurþj. 566 8188
Reykjavikurvegi 56, Hafnarfirði, hjólbarðaþjónusta 555 1538
Dalbraut 14, Akranesi, hjólbarðaþjónusta 431 1777
Tryggvabraut, Akureyri, smurþjónusta 462 1080
N1 BILAÞJONUSTA
SÆKTU UM VIÐSKIPTA- OG
SAFNKORT Á WWW.N1.IS
Hraðamyndavélar í gagnið
Á næstu vikum verða teknar í gagnið tvær rafrænar
hraðamyndavélar á þjóðvegi nr. i, báðar staðsettar í
Hvalfjarðarsveit. Vélarnar taka myndir af bílum sem
aka yfir löglegum hraða, og senda þær beint til sýslu-
mannsins á Stykkishólmi sem útbýr sektarboð til brot-
legra ökumanna. „Fyrirhugað er að búið verði að setja
upp 16 vélar á þjóðvegum landsins fyrir lok árs 2008, og
verða þær staðsettar á þeim stöðum þar sem mest þörf
þykir að minnka hraðakstur," segir Jónína Sigurðar-
dóttir hjá ríkislögreglustjóra.
Vilji ökumaður mótmæla sektinni mun hann þó ekki
þurfa að gera sér ferð til Stykkishólms. „Þeir sem fá sekt
geta skoðað myndirnar hjá lögreglunni í því umdæmi
sem þeir búa, en yfirmenn í hverju umdæmi munu fá
aðgang að myndunum."
hos
Hraðamæling
Fyrir lok næsta árs
er fyrirhugað að
rafrænar myndavélar
mæli hraðann á 16
stööum á
landsins.
Tugir þúsunda án
vatns og rafmagns
■ Mestu flóð í 60 ár 9 Tjónið áætlað 250 milljarðar króna
Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur
heida@bladid.net
Tugir þúsunda einstaklinga eru
án rafmagns og rennandi vatns í
Bretlandi vegna flóðanna undan-
farna daga. Gloucestershire í Eng-
landi hefur orðið einna verst út úr
flóðunum en þar eru á annað þús-
und heimila án rennandi vatns. Eru
um 43 þúsund heimili að auki án
rafmagns.
London gæti orðið næsta svæðið
sem verður flóðunum að bráð en
spáð er úrhellisrigningu í höfuð-
borginni. Óttast er að árnar Thames
og Severn flæði yfir bakka sína en
vatnsmagnið í þeim er nú þegar
orðið meira en í flóðunum miklu
sem urðu í mars árið 1947.
Severn gæti náð hámarki í dag
Umhverfisstofnun landsins hefur
Rúmenía
THAMES
► Áin Thames rennur í gegn-
um suðurhluta Englands
og er ein af helstu siglinga-
leiðum landsins. Hún er
346 kílómetrar að lengd og
er meðalrennsli hennar að
meðaltali 65,8 rúmmetrar á
sekúndu. Áin á upptök sín
í Kemble og rennur út í Norð-
ursjó. Thames rennur meðal
annars um London, Oxford,
Reading og Windsor.
gefið út átta viðvaranir vegna flóða-
hættu og segir ástandið tvísýnt.
Vatnsmagnið í ánni Severn gæti
náð hámarki sínu í dag, samkvæmt
Umhverfisstofnuninni, en Thames
í Oxford snemma á morgun. Hefur
íbúum á þeim svæðum þar sem
SEVERN
► Áin Severn er 354 kílómetra
löng og er lengsta breska
áin. Einnig er hún sú vatns-
mesta en meðalrennsli henn-
ar er 107 rúmmetrar á sek-
úndu. Severn á upptök sín í
Plynlimon í Wales og rennur
út í Bristolsund. Á leið sinni
rennur hún í gegnum mörg
ensk héruð. Standa bæirnir
Shrewsbury, Worcester og
Gloucester s meðal annars
á bökkum Severn.
flóðahætta er, verið gert að yfirgefa
heimili sín.
Mikið tjón hefur hlotist nú þegar
vegna flóðanna. Reikna tryggingafé-
lögin með því að borga bætur fyrir
allt að 250 milljarða króna vegna
flóðanna í júní og júlí.
Svíþjóö
Leita að olíu
við Gotland
Sænska fyrirtækið Oljepro-
spektering AB ætlar nú að
láta rannsaka sjávarbotninn
suðaustur af eyjunni Gotlandi
í Eystrasalti. Prófboranir hafa
gefið til kynna að þar sé olíu að
finna. Talið er að á svæðinu sé
það mikið magn af olíu að það
nægi til að fullnægja 20 pró-
sentum af olíuþörf Svía í 20 ár.
Svæðið sem leita á á er 120
kílómetrum fyrir suðaustan
Gotland og talsvert fyrir innan
efnahagslögsögu Svíþjóðar.
Samkvæmt sænskum fjöl-
miðlum eru Pólverjar þegar
farnir að dæla upp olíu I sinni
efnahagslögsögu í Eystrasalti.
Fimmtán látnir
í hitabylgju
Hitabylgja í Rúmeniu hefur
valdið dauða fimmtán manna, að
sögn yfirvalda þar i landi. Hitinn
verður í kringum 40 gráður í suður-
og austurhluta landsins næstu tvo
daga. Flest dauðsföllin eru vegna
vökvaskorts. Á einum sólarhring
leið yfir um 670 manns, þar af 160 í
höfuðborginni Búkarest.
I Búkarest og á fleiri stöðum hefur
tjöldum verið komið upp þar sem
fólki er gefið vatn og neyðarhjálp.
Þá hefur rafmagn farið nokkrum
sinnum af í borginni vegna álags á
kerfinu við mikla notkun á loftræsti-
kerfum. Opinberum stofnunum var
lokað á hádegi í gær og eldri borg-
urum ráðlagt að fara elcki út undir
bert loft.
mbl.is