blaðið - 24.07.2007, Side 11

blaðið - 24.07.2007, Side 11
blaóió ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2007 FRETTIR 11 Vinnuferð Ingibjörg Sólrún á leið að skoða spítala í Amman ásamt Mohammed Al-Hadid, forseta Rauða hálfmánans I Blaðið/Þórður r Jórdaníu (t.v.) ixla Jórdanskir ráðamenn hafa kvartað yfir því að hljóta ekki nægjanlegan stuðning alþjóðasam- félagsins til að takast á við þennan vanda. Ingibjörg Sólrún segist skilja þær umkvartanir. „Það fylgir þessu gríðarlegt álag á jórdanskt samfé- lag. Þessi flóttamannastraumur hafði í för með sér mikla hækkun á húsnæðisverði, landverði og vöru- verði. Þetta er álag á heilbrigðis- og skólakerfið og gerir það að verkum að þjóðfélagsgerðin er að breytast. Fólkið hérna er ekkert mjög sátt við þessa stöðu og finnst áhrif hennar á líf þess vera til hins verra. Stjórn- völdum hér finnst því skorta ábyrgð og stuðning frá alþjóðasamfélaginu, jafnt gagnvart Jórdaníu og Sýrlandi. Auðvitað verður að skoða Sýrland líka. Þeir eru að taka við langmestu af þessum flóttamannastraumi og eru þeir einu sem eru með landa- mæri sín opin í dag fyrir flótta- mönnum frá Irak.“ Getum gert ýmislegt Utanríkisráðherrann segir að það sé ýmislegt sem Island geti gert til að hjálpa þessum ríkjum. „Við getum auðvitað aldrei tekið á móti flóttamönnum í einhverju magni, en við gætum þó gert eitthvað af því. Það koma upp einstök mál hérna sem er erfitt fyrir þá að leysa. Þá sögðu þeir mikilvægt að eiga ein- hverja eins og Islendinga sem gætu hjálpað þeim með að taka á móti fólki í einstökum tilvikum. Þetta á til dæmis við um palestínska flótta- menn í Irak, sem höfðu stöðu flótta- manna þar, en eru í dag komnir upp að landamærum Iraks og Jórdaníu á flótta. Þeir komast ekki inn í landið. Þeir komast hvergi. Það gætu verið Mér finnst ég hafa meðtekið þekkingu og reynslu á þessari viku sem ég hefði ekki getað aflað mér með lestri bóka og skýrslna á mjög löngum tíma. einstaklingar sem við gætum lið- sinnt. Svo getum við auðvitað lagt okkar af mörkum í einstök verkefni. Við eigum að axla okkar ábyrgð í þessu máli því við erum hluti af þessu vandamáli.11 Ingibjörg Sólrún fór og hitti nokkur fórnarlömb Iraksstríðsins sem dvelja á jórdönskum spítala á sunnudag. Hún sagði það hafa haft mikil áhrif á sig. „Það að sjá alla þessa borgara sem verða fórnarlömb þessara átaka án þess að eiga nokkurn hlut að máli var átakanlegt. Þarna var fólk sem var að keyra í strætó á leið til vinnu þegar sprengja var sett í vagninn. Við hittum konu sem lenti í því að það var ráðist inn á heimili hennar. Við hittum fólk sem varð fyrir bíla- sprengjum. Þetta eru allt óbreyttir borgarar. Þeir eru fórnarlömb þess- ara átaka og maður sér ekkert fyrir endann á því.“ Berum siðferðilega ábyrgð ísland var á sínum tíma eitt þeirra landa sem voru á lista ríkja sem studdu Iraksstríðið. Ingibjörg Sól- rún segir íslensk stjórnvöld því bera ákveðna ábyrgð á ástandinu í írak. „Við berum auðvitað siðferðislega ábyrgð á því sem þarna gerðist þar sem við vorum á lista hinna viljugu þjóða. Til að athuga hvað við getum gert. Ekki vegna þess að íslenska Við getum auðvitað aldrei tekið á móti flóttamönnum í einhverju magni, en við gætum þó gert eitthvað af því... Við eigum að axla okkar ábyrgð í þessu máli. tjóðinn beri ábyrgðina. Hún studdi 5etta stríð ekki. En íslensk stjórn- völd gerðu það. Við getum ekki horft fram hjá fortíðinni, hverjir svo sem það voru sem áttu hlutdeild í henni. Þess vegna kom ég hingað. Ég kom til að athuga hvað við getum gert, hvað við getum lagt af mörkum og hvernig við getum axlað okkar ábyrgð.“

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.