blaðið


blaðið - 24.07.2007, Qupperneq 15

blaðið - 24.07.2007, Qupperneq 15
blaöiö ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2007 27 LÍFSSTÍLLHEILSA heilsa@bladid.net Við erum með fimmtán stöðvar hérna, 14 stöðvar á Jótlandi og eina í Kaupmannahöfn. Við áætlum að opna fimm á Kaupmannahafnar- svæðinu á næsta ári og eina á Fjóni núna í janúar. Hjálmurinn bjargar Góð- ur öryggisbúnaður. einkum reiðhjólahjálmur, getur komið í veg fyrir alvarlega áverka i reiðhjólaslysum. Arangur fer eftir gæðum Hvaða Spirulina ert þú að taka? Bæklingur með ábendingum til foreldra Smáhlutir varasamir Sælgæti og smáhlutir geta reynst litlum börnum skeinuhættir og jafnvel valdið köfnun. Á hverju ári eru mörg börn hætt komin hér á landi vegna aðskotahluta í hálsi og eru þau flest undir 8 ára aldri. Nýlega var endur- útgefinn bæklingur með ábendingum og upplýsingum til foreldra um hvað skal varast þegar slíkir hlutir eru annars vegar en hann hefur verið ófáanlegur um margra ára skeið. Markmið bæklingsins er að vekja at- hygli á því að sælgæti og smáhlutir geta verið varasamir fyrir börn auk þess að benda á rétt viðbrögð vegna aðskotahlutar í hálsi. Þar er meðal annars að finna skyndihjálparviðbrögð með texta og skýringarmyndum bæði vegna ungbarna og barna sem eru eldri en eins árs. Bæklinginn má meðal annars nálgast á heilsugæslu- stöðvum sem og á netinu, til dæmis á vef Lýðheilsu- stöðvar lydheilsustod.is. Að útgáfu hans standa Lýðheilsustöð, Neytendastofa, Rauði kross Islands og Umhverfisstofnun. Köfnun af völdum smáhluta Sælgæti og smáhlutir geta valdið köfnun hjá litlum börnum. 29 vítamín og steinefni ■ 18 aminósýrur ■ Blaðgræna ■ Omega ■ GLA fitusýrur • SOD eitt öflugasta andoxunarensím líkamans Eingöngu lífræn næringarefni tryggja betri upptöku og nýtingu í líkamanum. Uppbygging innan- lands sem utan Súrefnistæmdar umbúðir vernda næringarefnin. Lifestream þörungarnir eru ómengaöir, ræktaðir i ferskvatni eftir ströngum gæðastaðli. IS09001 ■ IS014001 Fæst í apótekjum og heilsubúðum. www.celsus.is Worid Class reisir nýjar líkamsræktarstöðvar Inniheldur 22 valin bætiefni, 12 vítamín og 10 steinefni. heilsa -haföu þaö gott Greinilegur árangur eftir nokkra daga inntöku Aukið úthald, þrek og betri líðan Eigendur World Class Hjonin Hafdis Jónsdóttir og Björn Kr. Leifsson ásamt Birni Boða, syni sínum, í líkamsræktar- miðstöðinni í Laugum. Hjónin standa í mikilli uppbyggingu líkamsræktarstöðva um þessar mundir. Biafiið/ÞÖK Fæst f heilsubúðum og helstu matvörumörkuðum landsins Dreifing: Yggdrasill, S 544 4270, Suöurtirauni 12b, Garöabæ Hjálmar bjarga mannslífum Öruggar hjólreiðar Hjólreiðar eru heilsusamlegur og umhverfisvænn samgöngumáti enda ófáir sem nota reiðhjólið til að koma sér á milli staða, ekki síst á þessum árstíma þegar veðrið leikur við landsmenn. Hjólreiðar eru þó ekki með öllu hættulausar og því miður berast öðru hverju fréttir af slysum á hjólreiðamönnum. Hægt er að draga úr hættunni á slysum með því að sýna varkárni og aðgæslu í umferðinni og á það jafnt við um ökumenn, hjólreiðamenn sem aðra vegfarendur. Ef svo illa fer að slys eða óhapp verður gegnir góður öryggisbúnaður mikil- vægu hlutverki og þar skiptir reiðhjólahjálmurinn höfuðmáli. Höfuðmeiðsl eru alvarlegustu hofdu þaO gott áverkar sem verða við hjólreiða- slys og þó að hjálmurinn komi ekki í veg fyrir slysin dregur hann úr alvarleika þeirra eins og fjölmörg dæmi sanna. Talið er að notkun reiðhjólahjálms geti minnkað líkur á alvarlegum höf- uðmeiðslum við hjólreiðaslys um allt að 8o% og í sumum tilfellum hefur hann bjargað mannslífum. Ekki er þó nóg að setja hjálminn á höfuðið heldur þarf einnig að sjá til þess að hann sitji rétt á höfðinu og sé rétt stilltur því að annars veitir hann falskt öryggi. Þá verður fólk enn fremur að fara vel með hjálminn og gæta þess að hann verði ekki fyrir hnjaski enda getur slæm meðferð komið niður á gæðum hans. LÍFRÆNIR SAFAR MULTI-VIT Náttúruleg fjölvítamín með steinefnum Vattn bartitfm tyrir þarln kltndlng* 180 töflur World Class opnar þrjár líkamsræktarstöðvar á næstu mánuðum. Þar að auki stendurfyrirtækið að mikilli uppbyggingu líkamsræktarstöðva víða í Danmörku. Eftir Einar Örn Jónsson einar.jonsson@bladid.net Hafdís Jónsdóttir, aðstoðarfram- kvæmdastjóri, World Class var einmitt stödd í stöð fyrirtækisins í Horsens á Jótlandi þegar blaða- maður náði tali af henni. „Við erum að vinna í stöðvunum okkar í Dan- mörku. Sumarfriið hefur verið notað í þetta en maður hefur gaman að þessu,“ segir hún og hlær. „Við erum með fimmtán stöðvar hérna, 14 stöðvar á Jótlandi og eina í Kaup- mannahöfn. Við áætlum að opna fimm á Kaupmannahafnarsvæðinu á næsta ári og eina á Fjóni núna í janúar,“ segir Hafdís. Útsýni til Bessastaða Stöðvarnar sem eru i byggingu á höfuðborgarsvæðinu verða á Seltjarnarnesi, í Mosfellsbæ og í Smáranum í Kópavogi. Stöðin í Mos- fellsbæ er byggð upp í tengslum við hina nýju Lágafellslaug og verður opnuð í september. Stöðin á Sel- WORLD CLASS World Class var stofnað árið 1985 World Class í Laugum er stærsta heilsuræktarmið- stöð landsins en húsnæðið er rúmlega 7000 fermetrar. tjarnarnesi er einnig byggð upp í tengslum við sundlaug bæjarins og segir Hafdís að það sé skemmtilegt að tengja stöðvarnar við þá íþrótta- aðstöðu sem þegar er fyrir hendi þar sem hægt er að koma því við. „Þarna verða leikfimisalir og tækja- salir og mjög skemmtilegt útsýni yfir sjóinn og að Bessastöðum. Fólk getur notið þess meðan það tekur á,“ segir hún. Líkamsrækt í háloftunum Útsýnið í líkamsræktarstöð World Class í Smáranum verður heldur ekki amalegt enda verður stöðin á 15. hæð. „Hún verður þó ekkert tengd sundlaug," segir Haf- dís og hlær. „Þetta er mjög flott stað- setning og rosalegt útsýni. Þarna verður tækjastöð með fullkomnasta búnaði sem í boði er. Það verða gufu- böð inni i búningsherbergjunum en ekki nein sérbaðstofa." Heildar- flatarmál stöðvanna þriggja nemur um 5000 fermetrum en Hafdís segir að bygging þeirra snúist líka um að veita viðskiptavinum aukna þjónustu. „Við erum að koma svolítið út í hverfin til þeirra og stefnum á að gera meira af því. Þá getum við líka þjónustað fólk í námunda við heimilin og það getur nýtt sér aðrar stöðvar í grennd við vinnustaðinn,“ segir hún og bætir við að þetta snú- ist um fjölbreytni og betri þjónustu. „Við höfum mikinn hug á að efla heilsu landsmanna. Það verður allt skemmtilegra og betra í lífinu þegar heilsan er í lagi.“ Fjölskylduvænni stöðvar „Þegar við opnuðum í Laugum og reyndar líka þegar við opnuðum í Spönginni lögðum við áherslu á að það væri gott fyrir fjölskylduna að koma saman. Við bjóðum upp á dans og leikfimi fyrir börn allt frá tveggja ára aldri og svo tókum við inn shokk-kerfið í janúar fyrir krakka á aldrinum 8-15 ára,“ segir Hafdis. Shokk-kerfið er æfingakerfi þar sem notast er við æfingartæki sem eru áþekk hefðbundnum æf- ingatækjum en þyngd lóða og álag við notkun er mun minna og miðast við líkamsburði 8-14 ára. Oft hefur verið bent á forvarn- argildi þess að börn og unglingar stundi íþróttir eða aðra hreyfingu. Afarnir og ömmurnar koma jafnvel líka og það er ótrúlega gaman að sjá þetta,“ segir hún.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.