blaðið - 24.07.2007, Síða 20
32
ÞRIÐJUOAGUR 24. JÚLÍ 2007
blaöið
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@bladid.net
'qBgl Heljarinnar Stoke-æði greip um sig á íslandi og fjárfestu fjöl-
margir íslendingar í liðinu. Óhætt er að fullyrða að enginn
hafi hagnast á því ævintýri og er liðið komið úr íslenskri eigu.
Stoke reyndist vera djók eins og Ceres 4 söng svo eftirminnilega.
SKEYTIN INN
KR-ingar
þurfa að sjá
á eítir einum
af sínum efnileg-
ustu leikmönnum,
Guðmundi Reyni
Gunnarssyni, tilVí-
etnam fyrir leikinn gegn Breiðabliki
á morgun. Ekki það að Guðmundur
hafi verið seldur til ACB Ha Noi,
heldur er hann í islenska landsliðinu
í stærðfræði sem tekur þátt í Ólymp-
íumóti ungmenna þar í landi. Þetta
er annað árið í röð sem Guðmundur
er í Ólympíuliðinu, því hann keppti
fyrir íslands hönd í Slóveníu í fyrra.
Framarar hafa
verið óheppnir
með meiðsh
i sumar, en það
horfir til betri
vegarhjá Safamýr-
arpiltum. Þeir
Patrik Redo, Hans Mathiesen,
Iheodór Óskarsson og Hjálmar
Þórarinsson eru allir að verða leik-
færir eftir að hafa misst af síðustu
leikjum liðsins. Fram mætir Víkingi
í miklum fallslag annað kvöld.
WestHam
heíur
keypt
sænska landshðs-
manninum Freddy
Ljungbeg frá
Arsenal.Fregn-
ir á Englandi herma að Eggert
Magnússon hafi þurft að punga
út 3 milljónum punda fyrir kapp-
ann, eða tæpum 400 milljónum
króna. Ljungberg, sem hefur verið
f herbúðum Arsenal síðan 1998,
lék 325 leiki fyrir liðið og skoraði
í þeim 72 mörk. Hann hefur átt í
stökustu vandræðum með meiðsli
undanfarin misseri. Ljungberg
hefur einnig getið sér gott orð sem
undirfatafyrirsæta hjá Calvin Klein.
Steven Gerr-
ard segist
sannfærður
um að Liverpool
veiti Chelsea og
Manchester United
harða keppni um
Englandsmeistaratitihnn á næstu
leiktið. Reyndar hafa fyrirliðar
Liverpool óspart haldið þessu fram
undanfarin ár, en bjartsýnin er
óvenjumikil þetta árið. Rafael Benít-
ez hefur fjárfest grimmt í framherj-
um á borð við Fernando Torres og
Ryan Babel, en sóknarhnan hefur
verið höfuðverkur liðsins undanfar-
in ár.„Við enun ekki langt frá þeim
stað þar sem við viljum vera. Með
nýjum leikmönnum eru spennandi
tímar framundan,“ segir fyrirliðinn.
Leikvöllur ólígarka
og kexkónga
Auðkýfingar um allan heim keppast við að kaupa ensk knattspyrnulið
Gullæðið í enska bolt-
anum er í hámarki og er
Arsenal síðasta iiðið til
að verða bendlað við er-
lenda yfirtöku. Amerískir
stórkapítalistar, rúss-
neskir ólígarkar, útskúf-
aðir taílenskir stjórnmála-
menn, arabískir furstar
og íslenskir kexkóngar
hafa rutt sér leið út á hinn
stóra leikvöll með mis-
góðum árangri. Hér á eftir
gefur að líta nokkrar af
athyglisverðustu yfirtök-
unum í Englandi.
Eftir Magnús Geir Eyjólfsson
magnus@bladid.net
WIMBLEDON
Það voru Norðmenn sem hófu inn-
rásina í England með kaupunum
á „brjálaða genginu" i Wimbledon
FC árið 1999. Markmiðið var að
byggja á glæstum árangri norska
landsliðsins og var Egil „Drillo“
Olsen fengin til að stýra verkefn-
inu. Yfirtakan var gjörsamlega
misheppnuð og var upphafið að
hruni liðsins. Wimbledon féll úr
úrvalsdeildinni árið 2000 og nú,
sjö árum sfðar, er liðið í neðstu
deild. í millitíðinni færði liðið sig
um set og heitir nú Milton Keynes
Dons. Hörðustu stuðningsmenn
Wimbledon sneru baki við liðinu
og stofnuðu AFC Wimbledon sem
leikur í utandeildinni.
STOKE CITY
íslendingar fylgdu fordæmi Norð-
manna, en voru þó ekki jafn stór-
huga. Stoke City, annað elsta félag
heims, varð fyrir valinu og Guðjón
Þórðarson átti að koma liðinu úr 2.
deild upp í þá efstu. Guðjón landaði
titli á sínu fyrsta tímabili er liðið
vann bikarkeppni neðrideildarliða.
Það tók hann hins vegar þrjú ár að
koma liðinu upp í 1. deild. Þrátt
fyrir það var Guðjón látinn fara og
hefur liðið siglt lygnan sjó í 1. deild
síðan.
Heljarinnar Stoke-æði greip um
sig á íslandi og fjárfestu fjölmargir
íslendingar í liðinu. Óhætt er að
fullyrða að enginn hafi hagnast
á þvf ævintýri og er liðið komið
úr íslenskri eigu. Stoke reyndist
vera djók eins og Ceres 4 söng svo
eftirminnilega.
blaöi
Auglýsingasíminn er
510 3744
Harrington hirti gullið úr greipum Garcia á Camoustie
Nautabaninn stóðst ekki pressuna
Padraig Harrington frá írlandi
stóð uppi sem sigurvegari á Opna
breska meistaramótinu á Carno-
ustie-vellinum í Skotlandi. Lengi
vel leit út fyrir að Sergio Garcia
frá Spáni tækist loksins að sigra
á sínu fyrsta risamóti. Hann var
efstur frá byrjun og hafði þriggja
högga forystu er hann sló af fyrsta
teig á sunnudaginn. Hann var mis-
tækur á fyrri 9 holunum á meðan
Harrington og Andres Romero frá
Argentinu léku eins og enginn væri
morgundagurinn. Romero gerði
afdrifarfk mistök á 17. holu og var
þar með úr leik. Harrington skaut
tvisvar í lækinn á 18. holu og allt í
einu hafði Garcia sigurinn í hendi
sér. Hann þurfti par á síðustu
holunni, en fékk skolla eftir að
lokapúttið hafði dansað á holubarm-
inum. Leikurinn fór í bráðabana þar
sem spennan varð Garcia ofviða.
Skál Padraig Harríngton teygar kam-
apavin úr Claret-skálinni frægu sem
hann hlaut aö launum fyrir sigurinn. Auk
skálarinnar fékk Harrington rúma eina
og hálfa milljón dollara, sem nemur 96
milljónum króna.