blaðið - 24.07.2007, Page 23

blaðið - 24.07.2007, Page 23
blaóió ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2007 35 ORÐLAUSTÍSKA ordlaus@bladid.net Að sögn ritstjóra tímaritsins þykir Marge hafa sérstakan og kvenlegan stíl og sómi sér því vel í hópi þekktra einstaklinga úr tískuheiminum. Simpson í Harper's Bazaar Marge Simpson, eiginkona Hómers Simpson, úr samnefndri teiknimyndaseríu situr fyrir í ágústhefti tímaritsins Harper’s Bazaar, en þar er Marge í fylgd með ofurfyrirsætunni Lindu Evangelistu og þekktum hönnuðum í átta síðna myndaseríu. Að sögn ritstjóra tímaritsins þykir Marge hafa sérstakan og kvenlegan stíl og sómi sér því vel í hópi þekktra einstaklinga úr tísku- heiminum. Á tískumyndunum hefur kjólunum sem Marge klæðist oftast í þáttunum verið skipt út fyrir hátískufatnað og klæðist hún meðal ann- ars fatnaði frá Chanel og Marc Jacobs. Reiðikast í auglýsingu Ofurfyrirsætan Naomi Campbell gerir grín að sjálfri sér í sjónvarpsauglýsingu fyrir fyrirtækið Dunkin’ Donuts þar sem hún auglýsir iste fyrir keðjuna. Campbell hefur verið tíður gestur á síðum blaðanna y tra undanfarin ár vegna tíðra reiðikasta en fyrirsætan hefur hlotið dóm fyrir líkamsárás, en hún réðst á aðstoðarkonu sína á síðasta ári eftir að hafa misst stjórn á skapi sínu. I auglýsingunni má sjá Campbell sinna garð- verkum í háum hælum og kjól og bregst hún illa við er hællinn brotnar og kastar skónum í gegnum glugga og nær ekki ró sinni aftur fyrr en henni er fært íste. Campbell þykir með þessu fá gott tækifæri til þess að breyta áliti almenn- ings á sér eftir að vinsældir hennar snarminnk- uðu á síðasta ári í kjölfar reiðikastanna. Litríkir ávaxta- og blómailmir Síðustu vikur hafa nokkrir nýir ilmir litið dagsins ljós á mark- aðnuin. Blaðið tók saman nokkra af nýjustu ilmunum, sem virðast hver öðrum betri. Ralph Rocks fyrir hana Kominn er á markað nýr Ralph-ilmur frá Ralph Lauren. Nýi ilmurinn er fullur af orku, litríkur og með blómaangan sem hentar vel ungum konum í dag. Ilmurinn inniheldur blöndu af stjörnuávöxt- um, beiskri appelsínu, einiberjum, páskalilju og fleiri skemmtilegheitum sem gefa frísklegan blæ. É A L PH- Liberté fyrir hana Li- berté-ilmurinn frá Cacharel, sem nýverið kom á markað, er blanda af appelsínu, peru, vetiver, Frangipani blómi og öðrum ávöxtum og blómum. Ilmurinn er ferskur og hressandi ásamt því að vera með rómantísk- um blæ og þokkafullum áhrifum. Ilmvatn sem hentar sérstaklega vel í sumar. Nina Ricci L'Eau du Temps Nina Ricci-tískuhús- ið hefur nú gert nýja útgáfu af hinu fræga ilmvatni L'air du Temps fyrir konuna. Ilmurinn, sem er aðeins tímabundið á markaðnum, er safarík blanda af sítrus- ávöxtum og kryddi. Hann inniheldur mandarínur, appels- ínur, bergamot, aðalbláber, piparkorn og kóríander. Attitude fyrir hann Attitude ilmurinn frá Giorgio Armani er klassískur og djúpur ilmur fyrir karla. Ilm- urinn er með mikla dýpt og inniheidur ferska og kryddaða tóna ásamt sedr- usviði frá Kína og ambertónum. Djúp- ur ilmurinn er með bæði kröftugu og fínilegu kryddi þar sem ferskleikinn fær að njóta sín, ekki síðui en þokki viðar og ambers. Allure Homme Sport fyrir hann The cologne Sport-útgáfan af Allure Sport herrailminum frá Chanel er nýr ilmur þar sem áherslan er lögð á hressandi ferskleika, ein- falda samsetningu og heilbrigða angan. Ilmurinn, sem er A L L U R E ferskur, mjúkur H o u m e og skemmtilega kryddaður, minnir á hreint loft og ferska sumargolu ásamt því að gefa _______ frá sér þægilega orku. Sætar stjömur í bleiku Bleiki liturinn alltaf í móð Bleiki liturinn hefur verið áberandi síðustu mánuði og virðist einhverra hluta vegna alltaf tolla í tísku. Ef marka má múnderingar Hollywood-stjarnanna hefur bleiki liturinn sótt mikið á og því um að gera að njóta sumarsins og notast við bleik og sumarleg klæði. Bleikur klæðnaður vekur hvarvetna athygli og setur skemmtilegan sjarma á heildarútlitið. Ólétt og flott Fyrirsætan Eva Herzigova var flott í bleikum kjól í Valentino teiti i Frakklandi á dögunum. Ber nafn með rentu Sjálf Pink klæðist að sjálfsögðu bleiku þegar tilefni gefst til og ber þvi nafn með rentu. Alltaf flott Eva Longoria kann svo sannarlega að klæða sig og klikkaði auðvitað ekki í brúðkaupinu sínu í París. í skærbleiku Eva Mendes mætti á CFDA verðlaunin í New York í glæsilegum bleikum kjól sem hún bar vægast sagt vel. Bleika Beckham Victoria Beckham var hin bleikasta við komuna til Los Angeles í vikunni og þótti glæsileg mjög. Tískuspekingar ytra hafa kappkostað að dásama dressið og greinilegt að frú Beckham sankaði að sér nokkrum stigum fyrir útlitið. Risaverslun á Regent Street Tískukóngurinn Giorgio Armani ætlar að opna nýja verslun á Regent Street í Lundúnum í sept- ember en um er að ræða stærstu Armani-verslunina til þessa. Búðin mun vera 11.000 fermetrar og verður á tveimur hæðum þar sem bæði verður hægt að fá karl- og kvenfatnað sem og fylgihluti. Viðskiptavinir munu einnig geta horft á myndbönd á risaskjám sem verða staðsettir í sérstökum rýmum verslunarinnar þar sem sýndar verða myndir af nýjustu vörunum. Glímir við lystarstol Allegro Versace, dóttir Donat- ellu Versace, hefur átt í erfiðri baráttu við lystarstol undanfarin ár en hún er nú 21 árs. Stúlkan leitaði sér nýlega hjálpar og segist móðir hennar fagna því að Allegro hafi ákveðið að takast á við sjúkdóminn. Allegro hefur átt í erfiðleikum með að takast á við athyglina sem hún hlaut í kjölfar þess að hún erfði helming tískuhúss frænda síns heitins, en Gianni Versace var myrtur árið 1997 og erfði hann systur sína og systurdóttur að tískumerki sínu. S>» 'fÍ: Levi í mál við Lauren Fyrirtækið Levi Strauss & Co. hefur kært fyrirtæki Ralp Lauren fyrir að stela hönnun þeirra en Levi Strauss framleiðir hinar vinsælu Levi’s-gallabuxur. Levi sakar Ralph Lauren um að framleiða gallabuxur sem eru eins og Levi’s gallabuxurnar þar sem allur frágangur líkist því sem Levi hefur haft einkarétt á siðan 1873. Forsvarsmenn Levi segja Lauren hafa lengi vel apað eftir hönnun þeirra og vilja nú fá skaðabætur.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.