blaðið - 17.08.2007, Qupperneq 16
16
FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2007
blaðiö
FÉOGFRAMI
vidskipti@bladid.net
Ég er stundum skammaður fyrir það að hafa
ekki þvegið blokk þegar ég hef nýlokið við
verkið. Þá áttar fólk sig ekki á því að skíturinn í
gluggunum er innan á.
WELEDA
Að hugsa um sjálfan sig •
með einföldum aðferðum,
er fyrirbyggjandi
Venadoron
Fótagel fyrir þreyttar fætur,
styrkir æðar og losar bjúg,
gott við fótapirringi
Footbalm
Fótakremið fyrirbyggir
sveppamyndun er
mýkjandi og dregur úr
fótraka og eyðir likt
Skin food
Græðandi alhliða krem,
gott á útbrot, sprungnar
fætur og hendur, krem
sem hægt er að mæla
með
Lífrænt ræktað án aukaefna
Apótek
Heilsuverslanir,
Barnaverslanir og í
Heilsuvörudeildum
stórmarkaóa
Væntu
meiri gróða
Hagnaður Icelandic Group nam
2,2 milljónum evra á fyrri hluta
ársins en félagið var rekið með
o,i milljónar evra tapi á öðrum
ársfjórðungi. Björgólfur Jóhann-
esson, forstjóri Icelandic Group,
segir afkomuna ekki í samræmi
við væntingar. mbi.is
Verð á hvítum
fiski áfram hátt
Verð á hvítum fiski í Bretlandi
mun að öllum líkindum haldast
hátt næstu vikurnar og er búist
við því að framboð á slíkum
fiski verði lítið þessa vikuna.
Helsta ástæðan fyrir verðlaginu
þar í landi er minna framboð á
fiski frá íslandi. Betra veður og
hræðsla við gin- og klaufaveiki
hefur einnig áhrif. hbv
íslenska krónan
lækkar áfram
íslenska krónan veiktist um tæp
þrjú prósent í gær. Líklegt er að
gengi íslensku krónunnar haldi
áfram að lækka en Paul Biszko,
hjá greiningardeild RBC Capi-
tal Markets, segir í samtali við
Market Watch að ekki sé fullvíst
að það uppnám sem hefur ríkt
undanfarið á skuldabréfamörk-
uðum sé liðið hjá.
Biszko ráðleggur þeim sem vilja
fara varlega í gjaldeyrisviðskipti
að halda sig við rússneska rúblu
og tékkneska krónu. Segir hann
að gjaldmiðlar sem hafa gefið
mikið af sér eins íslenska krónan,
brasilíska ríalið og tyrkneska
líran muni líða fyrir það þegar
fer að draga úr vaxtamunarvið-
skiptum. hbv
FÖSTUDAGAR
510 3744 blaðið=
LÍFSSTÍLLBÍLAR
Auglýsingasíminn er
Háhýsafjöld kætir
gluggaþvottamenn
■ Gluggaþvottamaður segir starfið ekki hættulegt ■ Þvær glugga
í öllum veðrum ■ Stundum er skítur innan á rúðunum
Eftir Björgu Magnúsdóttur
bjorg@bladid.net
Mikil fjölgun háhýsa í höfuð-
borginni, bæði skrifstofu- og
íbúðabygginga, hefur aukið verkefni
gluggaþvottamanna og skapað
grundvöll fyrir ný fyrirtæki. „Það
þarf að þvo þetta allt saman. Allt
er þetta gler og það eykst verulega
sem til er af glerinu,“ segir Óskar
Jóhannsson gluggaþvottamaður.
Óskar hefur þvegið glugga í fimm
ár og hyggst halda því áfram um
ókomna tíð. Hann rekur Glugga-
hreinsun Óskars en þar eru tveir
fastir starfsmenn ásamt einum
varamanni sem er til kallaður þegar
mikið liggur við.
„Ég þvæ glugga í alls konar bygg-
ingum, allt frá litlum einbýlishúsum
upp í margra hæða byggingar," segir
Óskar.
Óskar leigir stóra körfubíla eða
krana til að komast upp í hæstu
hæðir. Hann segir eitt helsta
vandamálið við sum nýju háhýsin
að eftir að þau eru byggð átti menn
sig á því að erfitt sé að aka hringinn
í kringum þau og ekki hægt að
komast að gluggunum.
Aldrei hefur Óskar lent í stór-
felldum háska. „Þetta er ekkert
hættulegt starf þar sem búnaður
er allur mjög góður.“ Óskar segist
geta fundið glugga til að þvo í öllum
veðrum en það sé helst vindáttin
sem skipti máli í bransanum. „Það
er aðalmálið að finna skjól svo hægt
sé að þvo gluggana og það er alltaf
einhvers staðar. f grimmri norðan-
átt er til dæmis mjög fínt að þvo
glugga í miðbæ Hafnarfjarðar."
Misjafnt hversu oft er þrifið
„Það er misjafnt eftir viðskipta-
vinum hversu oft gluggar eru
þrifnir. Sum fyrirtæki vilja láta
þvo glugga sína einu sinni í viku,
sum tvisvar í mánuði en önnur á
þriggja mánaða fresti.“
Gluggaþvottamaðurinn Óskar
FJÖLGUN HÁHÝSA
►
►
Stór glerhýsi eru í byggingu
víða á höfuðborgarsvæðinu.
Hæsta hús landsins er að
rísa í Smáranum í Kópavogi
og annað er væntanlegt
við Smáralind. Grand Hótel
hefur reist háan glerturn.
►
Vinsælt er að reisa háhýsi
við sjó og þar þarf að þrífa
seltu af rúðum reglulega.
hefur lent í ýmsum óvæntum uppá-
komum á ferlinum. „Égerstundum
skammaður fyrir það að hafa ekki
þvegið blokk þegar ég hef nýlokið
við verkið. Þá áttar fólk sig ekki á
því að skíturinn í gluggunum er
innan á.“
ÞEKKIR ÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
MARKAÐURINN í GÆR
Hlutabréfaviðskipti með skráð bréf hjá OMX á íslandi, 16. ágúst 2007 • úrvaisvísitalan lækkaði um rúm
Viðskipta- Hlutfallsl. Dagsetning Fjöldi Viðskipti Tilboð í lok dags:
Félög 1 úrvalsvísitölu verö breyting viösk.verðs viöskipta dagsins Kaup Sala
Atorka Group hf. 8,67 -3,45% 16.8.2007 30 176.735.048 8,70 8,74
Bakkavör Group hf. 62,90 -4,12% 16.8.2007 57 302.345.695 62,20 62,90
Existahf. 29,20 -8,32% 16.8.2007 200 1.313.379.763 29,20 29,45
FL Group hf. 24,20 -5,10% 16.8.2007 123 1.811.871.614 24,05 24,20
Glrtnir banki hf. 26,60 -3,27% 16.8.2007 104 895.192.685 26,50 26,60
Hf. Eimskipafélag Islands 37,95 -4,05% 16.8.2007 17 75.268.189 37,95 38,30
lcelandair Group hf. 25,05 -S£3% 16.8.2007 23 363.018.225 24,85 25,05
Kaupþing banki hf. 1056,00 -3,91% 16.8.2007 275 3.385.926.382 1056,00 1061,00
Landsbanki (slands hf. 37,50 -2,09% 16.8.2007 167 2.551.721.031 37,50 37,60
Mosaic Fashions hf. 17,50 - 13.82007 - -
Straumur-Burðarás Fjárf.b. hf. 18,85 -2,84% 16.8.2007 135 1.070.100.070 18,85 18,90
Teymi hf. 5,16 -7,69% 16.8.2007 37 94.029.618 5,16 5,18
össurhf. Önnur bróf á Aðallista 102,50 -2,38% 16.8.2007 18 19.259.871 103,00 104,00
365 hf. 2,84 - 16.8.2007 7 10.120.000 2,82 2,85
ActavisGrouphf. - 20.7.2007 - -
Alfesca hf. 5,82 -0£4% 16.8.2007 5 7.178.598 5,79 5,82
Atlantic Patroloum P/F 1013,00 -5,50% 16.8.2007 13 7.606.666 1000,00 1016,00
EikBanki 662,00 -5,29% 16.8.2007 31 43.243.847 653,00 668,00
Flaga Group hf. 1,71 228,00 - 9.8.2007 - - 1,70 1,72
FaroyaBank 0,00% 16.8.2007 38 13.295.303 228,00 231,00
lcelandic Group hf. 5,96 - 13.8.2007 1 13.470 5,90 5,98
Marelhf. 91,10 -1,30% 16.8.2007 9 19.303.978 91,10 91,50
Nýtverji hf. 21,90 - 9.8.2007 - - 21,90
Tryggingamiöstöðin hf. 39,80 0,00% 16.8.2007 3 2.233.680 39,80 40,20
Vmnslustöðin hf. First North á íslandi 8,50 ■ 25.7.2007 “
Century Aluminium Co. 2830,00 -3j1% 16.8.2007 15 120.616.600 2809,00 2850,00
HBGrandihf. 11,00 - 18.7.2007 - - 11,50
Hampið|anhf. 6,50 * 20.6.2007 - “ 6,75
4 prósent; úr 7-847.4 stigum í 7.571,9
stig.
• Mestu viðskipti dagsins voru
með bréf í Kaupþingi banka hf.,
fyrir 3.385.926.382 krónur á geng-
inu 1.056,00. Þar á eftir komu
viðskipti i Landsbanka íslands
hf., fyrir 2.551.721.031 krónur á
genginu 37,5.
• Mesta lækkun dagsins var á
bréfum Exista hf. Gengi bréfa í Ex-
ista stóð í 29,2 stigum í lok dags og
lækkaði um 8,32 prósent.
• Krónan veiktist um tæp þrjú
prósent í dag og er þetta mesta
veiking á einum degi síðan lækk-
unarhrinan sem nú stendur yfir
hófst í lok júlí, samkvæmt upplýs-
ingum frá Glitni.