blaðið - 17.08.2007, Blaðsíða 17
blaðiö
FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2007
25
LÍFSSTÍLLHELGIN
helgin@bladid.net
gm Danirnir sem sáu um verslunina voru Séð og
heyrt-lið síns tíma. Almúginn vildi náttúrlega
líkjast þeim og fór að sletta dönsku og vera
svolítið eins og fræga fólkið og fallega.
UM HELGINA
• Blint kaffihús Blint kaffihús
verður haldið í Blindrafélags-
húsinu í Hamrahlíð 17 (2. hæð)
laugardaginn 18. ágúst kl. 14-18.
Fólk getur pantað sér eitthvað að
borða og drekka og neytir þess
síðan í svartamyrkri.
• Teflt í Árbæjarsafni Árlegt
stórmót Árbæjarsafns og Taflfé-
lags Reykjavíkur verður haldið
í Árbæjarsafni sunnudaginn
19. ágúst kl. 14. Tefldar verða
sjö umferðir með sjö mínútna
umhugsunartíma.
Fjör á Dönskum dögum Uppboð
Lionsmanna á notuðum hlutum er fast-
ur liður á dagskrá Danskra daga en
ágóðinn rennur í líknarsjóð klúbbsins.
• Kántrýdagar um helgina
Fjölskyldu- og tónlistarhátíðin
Kántrýdagar verður haldin
á Skaga-
strönd
helgina
17.-19 ágúst.
Þar verður
boðið
upp á fjölbreytta tónlist, allt
frá kántrí til gospels og afrísks
trumbusláttar.
Þá verður einnig boðið upp á
skemmtidagskrá fyrir yngri kyn-
slóðina svo sem dorgveiðikeppni
á hafnarbakkanum, skemmtidag-
skrá með Bjarna töframanni og
ýmis leiktæki.
Landbúnaðarsýning og bændahátíð á Sauðárkróki
Hátíð fyrir bændur og börn á Sveitasælu 2007
Það ættu allir að finna eitthvað
við sitt hæfi á Sveitasælu 2007 sem
haldin verður á Sauðárkróki um
helgina, hvort sem þeir eru bændur,
börn eða áhugamenn um mat eða
landbúnað. Á stórri vélasýningu má
meðal annars sjá stærstu dráttarvél
í Evrópu og fylgjast með beltagröfu
opna pilsnerflösku. Þá verður efnt
til dýrasýninga af ýmsu tagi og
meðal annars munu börn úr hérað-
inu leiða kálfa í gegnum þrautabraut
á laugardag.
„Á laugardag og sunnudag verður
tekið vel á móti gestum í Birkihlíð,
rétt fyrir utan Sauðárkrók, þar sem
hátæknifjós verður opið. Á laugar-
deginum verður einnig opið hús í
mjólkursamlaginu og kjötafurða-
stöð KS sýnir nýja sauðfjárrétt sem
verið var að taka í notkun í slátur-
húsinu,“ segir Jón Þór Bjarnason
sýningarstjóri.
Þetta er i þriðja sinn sem land-
búnaðarsýningin og bændahátíðin
Sveitasæla er haldin og segir Jón Þór
að meiri áhersla sé lögð á mat að
þessu sinni en á fyrri hátíðum.
„Við erum með tvö stór matar-
verkefni. Annars vegar verkefni
á vegum Bændasamtakanna sem
heitir Beint frá býli og hins vegar
samstarfsverkefni í Skagafirði þar
sem afurðastöðvar, veitingahús,
verslanir og fleiri leggja áherslu á
skagfirskt hráefni og matargerð.
Veitingastaðir hafa verið með þetta
í nokkur ár og merkja sérstaklega
rétti á matseðlinum sem eru úr skag-
firsku hráefni," segir hann.
Jón Þór segir að vaxandi áhugi sé
meðal fólks um að gera matargerð
og hráefni hvers héraðs fyrir sig
hærra undir höfði.
„Við vitum það sjálfir að þegar við
erum á ferðalagi í einhverjum sveita-
héruðum úti þá er þetta hluti af því
að vera á staðnum, að kynnast því
sem er verið að búa til, hvort sem
það er vín, ostar eða annar matur,“
segir Jón Þór Bjarnason að lokum.
Nánari upplýsingar um sýning-
una má nálgast á vefsvæðinu horse.
is/landbunadarsyning.
Sveitasæla á Sauðárkróki
Fjölbreytt dagskrá verður í
boði á landbúnaðarsýningunni
Sveitasælu 2007 sem fram fer
á Sauðárkróki um helgina.
• Lágmenningar-
nótt Hljómsveit-
irnar Mínus og
Dr. Spockleika
á sérstakri lág-
menningarnótt á Gauki á Stöng í
kvöld. Húsið verður opnað kl. 22
og kostar 1000 krónur inn.
• Á móti sól Hljómsveitin Á
móti sól með Magna í broddi
fylkingar leikur fyrir gesti
Gauks á Stöng á Menningarnótt.
Frítt inn til miðnættis en 1000
kr. eftir það.
• Tónleikar á Bar 11 Hljóm-
sveitin Rhondda & the Rune-
stones heldur tónleika ásamt
Steina á Bar 11 í kvöld kl. 22:30.
Aðgangur er ókeypis.
• Myst og
Bermúda
Hljóni-
sveitin Myst
heldur tón-
leika í Víkurbæ á Bolungarvík í
kvöld kl. 20:30. Síðar um kvöldið
leikur hljómsveitin Bermuda
fyrir dansi á sama stað.
• Austfjarðatröllið 2007
Sterkustu menn landsins reyna
með sér í aflþrautum víða um
Austurland í dag og á morgun
þar sem fram fer keppnin
Áustfjarðatröllið 2007. Meðal
annars verður trukkadráttur og
uxaganga á Egilsstöðum í dag
kl. 14 og á morgun kl. 16 verður
Herkúlesarhald og steinatök á
Breiðdalsvík.
• fslandsmót í strandblaki ís-
landsmót Blaksambands Islands
í strandblaki fer fram í Fagra-
lundi í Kópavogi laugardaginn
18. ágúst kl. 10-16.
® Sólheima-
tónleikarSópr-
ansöngkonan
Þórunn Elín
Pétursdóttir
og píanóleikar-
inn Anna Rún Atladóttir halda
tónleika á Sólheimum laugardag-
inn 18. ágúst kl. 14. Aðgangur er
ókeypis og eru allir velkomnir.
LÁTTU VITA
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
Hólmarar blása til Danskra daga
Tívolístemning í Stykkishólmi
Brottfluttir Hólmarar
vitja heimahaganna og
heldri frúr sletta dönsku í
tíma og ótíma á Dönskum
dögum í Stykkishólmi
sem hefjast í dag.
Eftir Einar Örn Jónsson
einar.jonsson@bladid.net
Danskir dagar eru haldnir víðar
enn í Hagkaupum og Nóatúni. Um
helgina blása íbúar í Stykkishólmi
til árlegrar bæjarhátíðar undir
þessu nafni og skrýðist bærinn
rauðu og hvítu af því tilefni. Bæjar-
búar rifja upp barnaskóladönskuna
og veitingahús bjóða upp á danskan
mat. Reynt verður að skapa tívolíst-
emningu í miðbænum og þar verða
götuspilarar, leiktæki og skemmti-
atriði. Þó að hátíðin kallist Danskir
dagar segir Daði Sigurðarson, skipu-
leggjandi hátíðarinnar, að í margra
DANSKIR DAGAR
► Hátíðin stendur
17.-19. ágúst.
► Þetta er í fjórtánda skiptið
sem hún er haldin.
► Búist er við 5-6.000
gestum að þessu sinni.
augum sé sunnudagurinn þó hinn
eiginlegi danski dagur.
Stolt af bakgrunninum
„Sagan segir að Hólmarar klæði
sig upp á og tali dönsku. Við erum
svolítið stolt af þessum bakgrunni.
Þetta teygir sig aftur til tíma einok-
unarverslunarinnar þegar Stykk-
ishólmur var miðstöð verslunar á
Breiðafirði og í raun á Vesturlandi.
Danirnir sem sáu um verslunina
voru Séð og heyrt-lið síns tíma. Al-
múginn vildi náttúrlega líkjast
þeim og fór að sletta dönsku og vera
svolítið eins og fræga fólkið og fal-
lega. Það þykir enn þann dag í dag
voðalega sjarmerandi þegar heldri
frúr draga fram dönskuna," segir
hann.
Danir setja enn svip sinn á Stykk-
ishólm og má sem dæmi nefna að
þjálfari körfuboltaliðs bæjarins og
einn leikmaður sama liðs eru frá
Danmörku. „Þeim líður greinilega
vel hérna, Dönunum,“ segir Daði.
„Eins og heima hjá sér.“
Mútugreiðslur og söngur
Aðaldagskrá Danskra daga
fer fram á laugardag og verður
meðal annars boðið upp á leg-
ókeppni, tónleika, bryggjuball og
ljósmyndasamkeppni.
Veislan hefst þó í dag með hinu
árlega hverfagrilli. „Ibúar bæjarins
eru búnir að skreyta hverfin og kom-
inn hátíðarblær á allt. Þá taka þeir
á móti gestum sínum þannig að í
öllum hverfum bæjarins eru litlar
hverfahátíðir," segir Daði og bendir
á að um leið séu hverfin að keppa sín
á milli. „Flottasta hverfið er valið og
það er dæmt eftir stemningu, söng,
mútugreiðslum og öðrum þáttum.
Þetta er mjög skemmtileg hefð og
fyrir heimafólk eiginlega toppur
helgarinnar," segir hann.
Danskir dagar hafa mikið gildi
fyrir bæjarfélagið að sögn Daða.
Gildi hátíðarinnar felst ekki aðeins í
þeim fjölda ferðamanna sem leggur
leið sína í bæinn heldur einnig í
því að hún þjappar heimamönnum
saman.
„Það vinna allir saman að einu
verkefni og þetta fær okkur líka til
að huga að upprunanum og frænd-
garðinum. Hingað koma brottfluttir
Hólmarar sem nota tækifærið til að
heimsækja gamla bæinn sinn og
huga að rótunum.
Þetta hefur ávallt tekist vel og við
erum mjög stolt af þessum dögum.
Þetta gefur líka bænum góða ímynd
og það er nokkuð sem ekki er hægt
að setja verðmiða á,“ segir Daði Sig-
urðarson að lokum.