Orðlaus - 01.02.2004, Blaðsíða 46
Hvað þér finnst gott getur öðrum fundist verra, en það sem gerir kynlíf skemmtilegt er að komast að því hvað fullnægir mótleikaranum og gerir hann ánægðan.
Það er alltaf talað um forleik í sambandi við konur en ég vil frekar hugsa um forleik sem nauðsynlegan hluta af kynlífinu. Það vill líka oft gleymast að strákar
hafa jafn gaman af forleik eins og stelpur, auðvitað, þannig að það er um að gera að leika sér með hvort öðru og upplifa spennandi hluti saman. Leggjumst
því öll á eitt við að útrýma orðinu forleikur.
Snerting er eitt það mikilvægasta í kynlífi. Snerting segir svo mikið um stemmninguna sem myndast. Þú getur snert manneskju bliðlega og laust og þá er
gott að liggja bara og strjúka hvort öðru. Snerting getur einnig verið lostafengin og áköf og þá ertu að biðja um það sama frá hinum aðilanum, þú vilt spennu
og lostafullt kynlíf. Til að verða góður í snertingum þá verðurðu að skynja hvað hinn aðilinn vill ásamt því að reyna að sýna hvað þú vilt.
í SturtU er hægt að byrja mjög spennandi kynlíf, bara það að afklæðast fyrir framan hvort annað og þurfa að standa þétt upp að hvort ööru undir vatnsbununni
er getnaðarlegt og kemur ykkur til.
Ég mæli ekki með baði ef þið viljið sofa saman en ef þið eruð bara að fara að kela þá er baðið tilvalið. Þetta getur verið frekar brussulegt en líka mjög fyndið
að tveir fullorðnir einstaklingar verði eins og tveir litlir krakkar að sulla. Maður þarf bara að hafa húmor fyrir þessu og þá er þetta fínn leikur, þar sem þú losnar
við stress um leið og þú byrjar að hlæja.
er aigerlega vanmetin, hún segir svo mikið um stemmninguna sem þið viljið hafa. Fólk á það til að skella bara á play á þeim geisladisk sem síðast
var hlustað á en það er alger misskilningur. Þú verður að velja réttu tónlistina fyrir þann/þá sem þú ert að sofa hjá. Það er Kka svo rosalega misjafnt í hvernig
skapi maður er, einn daginn viltu kannski vera með rómantíska stemmningu en hinn daginn vera með ögrandi tónlist.^yrjaðu á þvi að finna þína tónlist sem
þér líkar við og svo geturðu fært þig yfir í að finna tónlistina fyrir hann/hana.
Ég mæli ekki með mat til að ögra kynferðislega nema þú sért alveg viss um
að þú viljir það því þetta getur orðið frekar vandræðalegt ef illa fer.
En ef þig langar að prófa þig áfram er gott að byrja á einhverju einföldu
eins og súkkulaði, það er bragðmikið og endist lengi þarna niðri. Minta
er líka rosalega sniðug, það er meðfæranlegt fyrir þann sem er með það
upp í sér og hefur rosalega örvandi áhrif á munaðarsvæðin.
Það er mjög gaman að gera sér upp í kynlífi, það þarf ekkert að vera
einhverjir rosalegir kynlífsleikir, bara eitthvað sem ögrarykkur báðum. Það
getur flokkast undir leik að bara stríða og ögra hinni manneskjunni,
og það gerir ykkur bæði spenntari fyrir því sem á eftir kemur.
Það er rosalega örvandi að fara framhjá kynÖrvandl svæðum líkamans, og það
á við um báða aðila, strákum finnst það jafn gott og stelpum. Þá er sniðugt að
strjúka mikið, upp bakið og niður aftur, fara alveg niður en fara síðan framhjá
og alveg niður á læri og fikra þig svo nær og nær takmarkinu en fara ekki
alla leið. Þannig myndar þú spennu milli ykkar sem verður óbærileg
á endanum.
OrVEit( olía er kannski frekar gömul klisja, en er samt alltaf klassísk. Þetta
verður að vera gert við rétt tækifæri og það er ekki sniðugt að brydda upp á
þessu þegar það er ekki rétta stemmningin. Til að koma olíunni inn í leikinn þá
er sniðugt að olían sé dálítið tilfallandi og þú minnist á þetta sem nudd sem síðan
auðvitað leiðir að öðru. Bakið, hálsinn, upp að eyrunum, hnakkinn og upp í
hársvörðinn, ennið og fætur eru staðir sem sniðugt er að byrja á.
Við lifum á þeim tíma sem i er hluti af okkar daglega lífi og það er tæki sem við getum
nýtt okkur þegar kemur að kynlíf. Að klæmast á msn, gegnum email eða sms áður en haldið er
heim vekur spennu og eftirvæntingu beggja aðila og þá er leikurinn byrjaður
kannski mörgum tímum áður en kynlífið hefst.
Það getur skipt miklu máli þegar manneskja finnur að það er búið að hafa fyrir henni. Það getur
gert rosalega mikið, þú mætir á staðinn og það er búið að taka til, elda, kveikja á kertum, óvænt
gjöf o.s.frv. Þá veistu að manneskjan vill þig og er tilbúin til að gera leggja sig fram við að gera þig
ánægða/n.
Að vera með fjgnsamband allan tímann er öðruvísi og lætur þig finna fyrir
hverri einustu hreyfingu hjá ykkur báðum.
Afklæða sig, ein manneskjan berháttar sig og hin fylgist með. Þið getið svo skipst á að taka hlutverkin að
ykkur en það er ekkert skemmtilegra en að horfa á manneskjuna sem þú girnist klæða sig úr hverri einustu
spjör og fylgjast með öllum hennar hreyfingum.
EM
\ -
'
.
i