Orðlaus - 01.02.2004, Blaðsíða 16

Orðlaus - 01.02.2004, Blaðsíða 16
Langar þig að vita hvernig þú getur náð betri árangri í að daðra? Þetta snýst allt um að meta aðstæður og vera meðvitaður um viðbrögð manneskjunnar sem þú ert að daðra við. Að daðra er atburðarás, sem komið er af stað af annaðhvort kvenmanni eða karlmanni, en galdurinn er að skynja hvenær skotmarkið vill hætta leiknum, eða halda honum áfram. Daður hefst á því að þú reynir að nálgast manneskjuna, sýna henni athygli og vekja áhuga hennar. Ef þú finnur ekki fyrir gagnkvæmum áhuga þá er leikurinn dauðadæmdur frá upphafi. Galdurinn er að vera með góða tilfinningu fyrir því hvenær þú ert að fá jákvæð viðbrögð og hvenær neikvæð viðbrögð því þá geturðu forðað þér frá mörgum vandræðalegum mómentum þar sem þú ert að reyna og ekkert að gerast!!! Það eru til nokkrar leiðir tii aö byrja daðrið og sýna áhuga. Manneskja er að sýna þér áhuga ef hún til dæmis snýr sér oft að þér og lítur til þín, færir sig til þess að þú getir sest án þess að þú þekkir hana, snýr hausnum lítillega og brosir eða einfaldlega reynir að ná augnsambandi. Það sem virkar þó best ef þú ert I daðursstööunni og vilt vera áberandi með hvað þú vilt, að gera nokkra hluti í einu eins og að halia höfðinu aðeins, ná augnsambandi og brosa svo daðurlega. Þá ætti hinn aðilinn að gera sér fullkomlega grein fyrir hvað þú ert að gefa í skyn. Það er á þessum fyrstu skrefum sem þú kemst að því hvort að manneskjan vilji ganga lengra, ef hún þykist ekki taka eftir neinu þá er alveg víst að hún hafi engan áhuga og þá er bara að beila. Hvaö er nsssta skref? Þú finnur fyrir áhuga og ósjálfrátt byrjið þið að nálgast hvort annað. Þá hefst oftast spjall um tiltölulega óáhugaverða hluti sem er mjög eðlilegt þegar þú ert að spjalla við manneskju í kannski fyrsta sinn, þið tvö ein. Þið eruð ennþá að tékka hvort annað út og ekki farin að deila persónulegum hlutum ennþá heldur að athuga hvort hin manneskjan sé til í frekara spjall. Þer er 30 Q3nQ3 vel sf ...þú finnur fyrir því að hún sé að einbeita sér að þér. ...hún horfir á ÞIG þegar þið eruð að tala saman. ...brosir og fer að hlæja þegar þú segir eitthvað skemmtilegt. ...reynir að ná stöðugu augnsambandi við þig. Sigmar Hjálmarsson sjónvarpsstjarna Settirðu þér eitthvert áramótaheiti? Nei ekki beint, hef ekki haft tíma. Ég verð að setja mér mánaðarmótaheit janúar-febrúar. Hvað það er veit nú enginn, vandi er um slíkt að spá. Er eitthvað nýtt og spennandi að gerast hjá þér á nýja árinu? Já við Bryndfs (konan mín) vorum að flytja inn í nýja íbúð í janúar. Við ætlum Ifka að taka okkur langt og gott sumarfrí og sýna litla stráknum okkar stóra heiminn og kenna honum að labba og ganga. Hvers óskarðu þér helst á nýju ári? Það væri frábært ef nýja árið gæti fært mér kaffi í rúmið um helgar, annars er fullt af hlutum í buröarliönum þannig að þetta verður gott ár trúi ég. Hvers óskarðu þér helst á nýju ári? Hamingju, hagsældar og óttaleysi fyrir mig og mína. Þórunn Antonía söngkona Settirðu þér eitthvert áramótaheiti? Áramótaheitið mitt er að gera allt sem í mfnu valdi stendur til að koma banni á tónlist Simply Red. Er eitthvað nýtt og spennandi að gerast hjá þér á nýja árinu? Já ég hef klárað plötuna mína í The Honeymoon og fyrsta smáskifan kemur út í mars og svo tónleika ferðalög. Svo gef ég plötu út með haustinu. Þannig að það eru skemmtilegir hlutir framundan. Hvers óskarðu þér helst á nýju ári? Skemmtilega og óvænta atburði, mikinn húmor og gleöi takk. ...hún lítur mikið í kringum sig. ...hún er að leita að öðrum. ...hún spjallar við alla sem labba framhjá. ...hún virkar eirðalaus. ...snýr við þér baki þegar þú ert að tala við hana. Spjallið heldur áfram og umræðuefnin verða alvarlegri og persónulegri. Það eru oftast konur sem leika þennan leik, en það er að snerta mjúklega og "ómeðvitað" einhverja líkamsparta. Þetta verða að vera þægilegar og fíngerðar snertingar sem gætu allt eins þýtt ekki neitt en líka þýtt allt. Hann verður að skynja áhuga en ekki ör- væntingu eða taugaveiklun, og það sama á við um karlmenn ef þeir eru í snertingunum. Það er ekkert verra en að skynja að manneskja sem er að reyna við þig er stressuð og meðvituð um sjálfa sig, hrædd við að vera hafnað og búin að gefa upp vonina áður en hún veit svarið. Nú finnurðu hvernig þið byrjið að samhæfa allar hreyfingar og hreyfa ykkur með hvort öðru. Lfkamarnir eru farnir að tala saman og þið eruð komin í djúpar samræður. Þú finnur fyrir neistum ykkar á milli sem verða alveg yfirgnæfandi og þá býðurðu mann- Elma Lísa leikkona Settirðu þér eitthvert áramótaheiti? Nei. | Er eitthvað nýtt og spennandi að gerast hjá þér á nýja árinu? Já, ég frumsýndi Meistarann og Margarftu þann 6. janúar. Annað er leyndó. Hvers óskarðu þér helst á nýju ári? Áframhaldandi ást og hamingju. eskjunni út eða hallar þér að henni og kyssir hana. Þetta er vandmeðfarið og þú verður að lesa öll merki og vera viss um að þið eruð bæði að finna fyrir neistunum. Ef þú finnur fyrir að þið eruð á sömu bylgjulengd og hin mann- eskjan er jafn áhugasöm fyrir þér og þú fyrir henni þá taktu af skarið. Þú sérð meira eftir hlutum sem þú gerir ekki heldur en hlutum sem þú gerir. Þú verður að láta á það reyna Þetta er ekki handbók um hvernig þú átt að gera hlutina heldur til að leið- beina þér að skilja hvernig þetta ferli virkar. Skoða merkin og skynja þau. Um leið og þú hefur farið í gegnum það nokkrum sinnum og ert orðin góð/ur f að meta aðstæðurnar þá ertu með- vituð/aður um hvað er í raun og veru að gerast. Mikilvægast í þessu öllu saman er þó að vita að atburðarrásin gerist ekki af sjálfu sér, þú verður að hrinda henni af stað. Ef þú athugar ekki hvernig mann- eskjan bregst við þá veistu aldrei hvað gæti hafa gerst. Nú veistu, og þú vissir örugglega eitt- hvað af þvf áður, nákvæmlega hvað gerist þegar tvær manneskjur hittast. Ekki eyða tíma þínum framvegis í að þykjast ekki skilja hvað er að gerast þegar þú hittir nýja manneskju... em Reynir Trausta ritstjórnarfulltrúi og rithöfundur Settirðu þér eitthvert áramótaheiti? Nei, er löngu orðinn leiður á að brjóta áramótaheiti. Er eitthvað nýtt og spennandi að gerast hjá þér á nýja árinu? Nýja árið mun vonandi bera í skauti sínu ævintýri eíns og undanfarin ár. Að þessu sinni er stefnan sett á gamlar slóðir á Grænlandi þar sem ævintýrin eru við hvert fótmál og verða kortlögð með ákveðnum hætti. Hvers óskarðu þér helst á nýju ári? Hamingju, hagsældar og óttaleysis fyrir mig og mfna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Orðlaus

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.