Orðlaus - 01.02.2004, Blaðsíða 16
Langar þig að vita hvernig þú getur
náð betri árangri í að daðra? Þetta
snýst allt um að meta aðstæður og
vera meðvitaður um viðbrögð
manneskjunnar sem þú ert að daðra
við. Að daðra er atburðarás, sem
komið er af stað af annaðhvort
kvenmanni eða karlmanni, en
galdurinn er að skynja hvenær
skotmarkið vill hætta leiknum, eða
halda honum áfram.
Daður hefst á því að þú reynir að nálgast
manneskjuna, sýna henni athygli og
vekja áhuga hennar. Ef þú finnur ekki
fyrir gagnkvæmum áhuga þá er
leikurinn dauðadæmdur frá upphafi.
Galdurinn er að vera með góða
tilfinningu fyrir því hvenær þú ert að fá
jákvæð viðbrögð og hvenær neikvæð
viðbrögð því þá geturðu forðað þér frá
mörgum vandræðalegum mómentum
þar sem þú ert að reyna og ekkert að
gerast!!!
Það eru til nokkrar leiðir tii aö byrja
daðrið og sýna áhuga. Manneskja er að
sýna þér áhuga ef hún til dæmis snýr
sér oft að þér og lítur til þín, færir sig
til þess að þú getir sest án þess að þú
þekkir hana, snýr hausnum lítillega og
brosir eða einfaldlega reynir að ná
augnsambandi.
Það sem virkar þó best ef þú ert I
daðursstööunni og vilt vera áberandi
með hvað þú vilt, að gera nokkra hluti
í einu eins og að halia höfðinu aðeins,
ná augnsambandi og brosa svo
daðurlega. Þá ætti hinn aðilinn að gera
sér fullkomlega grein fyrir hvað þú ert
að gefa í skyn.
Það er á þessum fyrstu skrefum sem þú
kemst að því hvort að manneskjan vilji
ganga lengra, ef hún þykist ekki taka
eftir neinu þá er alveg víst að hún hafi
engan áhuga og þá er bara að beila.
Hvaö er nsssta skref?
Þú finnur fyrir áhuga og ósjálfrátt byrjið
þið að nálgast hvort annað. Þá hefst
oftast spjall um tiltölulega óáhugaverða
hluti sem er mjög eðlilegt þegar þú ert
að spjalla við manneskju í kannski fyrsta
sinn, þið tvö ein. Þið eruð ennþá að
tékka hvort annað út og ekki farin að
deila persónulegum hlutum ennþá
heldur að athuga hvort hin manneskjan
sé til í frekara spjall.
Þer er 30 Q3nQ3 vel sf
...þú finnur fyrir því að hún sé að
einbeita sér að þér.
...hún horfir á ÞIG þegar þið eruð að
tala saman.
...brosir og fer að hlæja þegar þú segir
eitthvað skemmtilegt.
...reynir að ná stöðugu augnsambandi
við þig.
Sigmar Hjálmarsson
sjónvarpsstjarna
Settirðu þér eitthvert áramótaheiti?
Nei ekki beint, hef ekki haft tíma. Ég
verð að setja mér mánaðarmótaheit
janúar-febrúar. Hvað það er veit nú
enginn, vandi er um slíkt að spá.
Er eitthvað nýtt og spennandi að
gerast hjá þér á nýja árinu?
Já við Bryndfs (konan mín) vorum að
flytja inn í nýja íbúð í janúar. Við ætlum
Ifka að taka okkur langt og gott sumarfrí
og sýna litla stráknum okkar stóra
heiminn og kenna honum að labba og
ganga.
Hvers óskarðu þér helst á nýju ári?
Það væri frábært ef nýja árið gæti fært
mér kaffi í rúmið um helgar, annars er
fullt af hlutum í buröarliönum þannig
að þetta verður gott ár trúi ég.
Hvers óskarðu þér helst á nýju ári?
Hamingju, hagsældar og óttaleysi fyrir
mig og mína.
Þórunn Antonía
söngkona
Settirðu þér eitthvert áramótaheiti?
Áramótaheitið mitt er að gera allt sem
í mfnu valdi stendur til að koma banni
á tónlist Simply Red.
Er eitthvað nýtt og spennandi að
gerast hjá þér á nýja árinu?
Já ég hef klárað plötuna mína í The
Honeymoon og fyrsta smáskifan kemur
út í mars og svo tónleika ferðalög. Svo
gef ég plötu út með haustinu. Þannig
að það eru skemmtilegir hlutir
framundan.
Hvers óskarðu þér helst á nýju ári?
Skemmtilega og óvænta atburði, mikinn
húmor og gleöi takk.
...hún lítur mikið í kringum sig.
...hún er að leita að öðrum.
...hún spjallar við alla sem labba
framhjá.
...hún virkar eirðalaus.
...snýr við þér baki þegar þú ert að tala
við hana.
Spjallið heldur áfram og umræðuefnin
verða alvarlegri og persónulegri. Það
eru oftast konur sem leika þennan leik,
en það er að snerta mjúklega og
"ómeðvitað" einhverja líkamsparta.
Þetta verða að vera þægilegar og
fíngerðar snertingar sem gætu allt eins
þýtt ekki neitt en líka þýtt allt. Hann
verður að skynja áhuga en ekki ör-
væntingu eða taugaveiklun, og það
sama á við um karlmenn ef þeir eru í
snertingunum. Það er ekkert verra en
að skynja að manneskja sem er að reyna
við þig er stressuð og meðvituð um sjálfa
sig, hrædd við að vera hafnað og búin
að gefa upp vonina áður en hún veit
svarið.
Nú finnurðu hvernig þið byrjið að
samhæfa allar hreyfingar og hreyfa
ykkur með hvort öðru. Lfkamarnir eru
farnir að tala saman og þið eruð komin
í djúpar samræður. Þú finnur fyrir
neistum ykkar á milli sem verða alveg
yfirgnæfandi og þá býðurðu mann-
Elma Lísa
leikkona
Settirðu þér eitthvert áramótaheiti?
Nei. |
Er eitthvað nýtt og spennandi að
gerast hjá þér á nýja árinu?
Já, ég frumsýndi Meistarann og
Margarftu þann 6. janúar. Annað er
leyndó.
Hvers óskarðu þér helst á nýju ári?
Áframhaldandi ást og hamingju.
eskjunni út eða hallar þér að henni og
kyssir hana. Þetta er vandmeðfarið og
þú verður að lesa öll merki og vera viss
um að þið eruð bæði að finna fyrir
neistunum. Ef þú finnur fyrir að þið
eruð á sömu bylgjulengd og hin mann-
eskjan er jafn áhugasöm fyrir þér og þú
fyrir henni þá taktu af skarið. Þú sérð
meira eftir hlutum sem þú gerir ekki
heldur en hlutum sem þú gerir.
Þú verður að láta á það reyna
Þetta er ekki handbók um hvernig þú
átt að gera hlutina heldur til að leið-
beina þér að skilja hvernig þetta ferli
virkar. Skoða merkin og skynja þau. Um
leið og þú hefur farið í gegnum það
nokkrum sinnum og ert orðin góð/ur f
að meta aðstæðurnar þá ertu með-
vituð/aður um hvað er í raun og veru
að gerast.
Mikilvægast í þessu öllu saman er þó
að vita að atburðarrásin gerist ekki af
sjálfu sér, þú verður að hrinda henni af
stað. Ef þú athugar ekki hvernig mann-
eskjan bregst við þá veistu aldrei hvað
gæti hafa gerst.
Nú veistu, og þú vissir örugglega eitt-
hvað af þvf áður, nákvæmlega hvað
gerist þegar tvær manneskjur hittast.
Ekki eyða tíma þínum framvegis í að
þykjast ekki skilja hvað er að gerast
þegar þú hittir nýja manneskju...
em
Reynir Trausta
ritstjórnarfulltrúi og
rithöfundur
Settirðu þér eitthvert áramótaheiti?
Nei, er löngu orðinn leiður á að brjóta
áramótaheiti.
Er eitthvað nýtt og spennandi að
gerast hjá þér á nýja árinu?
Nýja árið mun vonandi bera í skauti sínu
ævintýri eíns og undanfarin ár. Að þessu
sinni er stefnan sett á gamlar slóðir á
Grænlandi þar sem ævintýrin
eru við hvert fótmál og verða kortlögð
með ákveðnum hætti.
Hvers óskarðu þér helst á nýju ári?
Hamingju, hagsældar og óttaleysis fyrir
mig og mfna.