Orðlaus - 01.02.2004, Blaðsíða 28
•NZIO
Uti að borða með Mick Jagger
í g-streng\tneð\!!í
Við ákváðum að forvitnast aðeins um bransann og fengum þaer í viðtal...
Hvað gerir þú í New York þegar þú átt frídag?
Mér finnst ótrúlega gaman að fara í allskonar
tlma eins og í yogatíma eða danstíma.
Ertu að verða milli?
Mmm ... nei ég mundi ekki segja það. En
maður lifir allavega á þessu og hefur gaman a
f, það er það sem skiptir máli. Þessi bransi er
þannig að maður veit ekki neitt, einn daginn
getur maður fengið milljóna króna verkefni,
sem gerist ekki oft, en hinn daginn þá er maður
að skrapa saman fyrir sígó.
X/íð
Við sáum Dior auglýsingu með þér á
baksíðunni á Vogue?
Nei, þetta er ekki ég. Fyndið samt, því mamma
hringdi í mig ógeðslega spennt, Edda, það er
ekkert verið að segja mér að þú hafir verið
að vinna fyrir Dior." En það var ekki égl! Það
sem er reyndar fyndnast við þetta er að við
erum ekkert Ifkar, nema á þessari mynd.
Stærsta verkefnið?
Ég hef gert auglýsingu fyrir Pepper Jeans oq
Body Lotion auglýsingu á Kúpu fyrir Loreaí.
Ég held að það sé þao stærsta.
En hvað með skóla?
Ég er nú bara ennþá að leita. Ég er nýbúin að
kynnast stelpu sem er í ótrúlega flottum listaskóla
sem heitir Parsons, en hann er bara ótrúlega dýr.
Það er einhvern veginn allt opið eins og er. Það
tekur líka tíma að aðlagast New York, hún er
rosalega stór og það er svo mikið af fólki þar og
margt hægt að gera. Mér finnst eiginlega
erfiðara að vera búin að ferðast svona mikið þvl
þá opnar maður svo ótrúlega margt og það er
svo erfitt að velja á milli. Maður er alltaf alveg;
"Vá, þetta er geðveikt!" og síðan hittir maður
einhvern annan og hann er að gera eitthvað
alveg miklu geðveikara. Þannig að maður er
alltaf að skipta um skoðun!
~Hvað af New York er áhugaverðast að skoða?^
Ég er ótrúlega hrifin af Brooklyn, Williamsburg.
Ég var að uppgötva það hverfi og finnst það
alveg frábært. East- og West Village eru líka
frábær hverfi, þar eru skemmtileg kaffihús og
matsölustaðir. Ég er reyndar ótrúlega léleg í því
að "túristast" og skoða hluti. Það er ótrúlega
leiðinlegt að segja frá þvl en ég er til dæmis
ekki búin að sjá rústirnar eftir Wold Trade Center,
kGround Zero.
Hver er frægasta manneskja sem þú hefur hitt? ’
Mick Jagger. Við fórum fjórar stelpur út að
borða með honum og vini hans, þetta var
frekar plebbalegt. Við sátum þarna eins og
skftar ... eða nei nei þetta var allt í lagi. Við
borðuðum með honum og kíktum með
honum á djammið. En maður var ekkert
eitthvað "blessaður Mickl".
Er mikið um það að þið séuð beðnar um að'
fara út að borða með einhverjum stjörnum?
Nei, alls ekki. Ég geri það ekki oft... það kemur
einstaka sinnum fyrir. Það er meira að maður
bara hitti eitthvað svona lið á skemmtistöðum,
eins og um daginn þá hitti ég Dolce and
Gabbana. Ég reyni samt að forðast þetta,
ég er komin með svo mikið ógeð á þessum
kokteilboðum sem eru uppfull af einhverjum
. snobbuðum plebbum.
Færðu aðdáendabréf ?
Nei ekki í dag. En þegar ég var yngri þá fékk
ég stundum aðdáenda bréf. Oft var eitthvað
I þeim eins og til dæmis hálsmen. Ég fékk líka
skrýtna tölvupósta og ógeðsleg símtöl sem var
ekki skemmtilegt. Þá var ég bara 14 ára og
fannst þetta bara krípi og ógnvekjandi.
Tónlistarsmekkur?
Mazzy Star, Sigur rós og Björk. Ég er ótrúlega
mikið fyrir íslenska tónlist og ég er ótrúlega
dugleg að tjá mig um íslenska tónlist þegar ég
er úti. Ég er alltaf bara "Singapore Sling it's my
brother here." og talandi um Sigur Rós og svona.
Ég alveg fíla íslenska tónlist í botn.
rHversu mikið eru umboðsaðilar að fá fyrir
sinn snúð?
0
Það er ótrúlega misjafnt. Hérna heima taka
þeir eiginlega ekki neitt, bara 10% en úti taka
þeir alveg 30 - 40%. En þeir eiga það líka skilið
þv( þeir eru alveg að vinna fyrir sínu. Ég gæti
aldrei gert þetta án þeirra ef ég ætla að græða
eitthvað á þessu. I dag eru allir með stofu en
ég man þegar ég var yngri og þá voru stelpur
að fara um einar með einhverjar möppur! Ég
held að það myndi aldrei ganga upp, allavega
ekki í dag því skrifstofan reddar öllu.j
/
Hjá hvaða skrifstofu ertu?
Ég er hjá Ford f bæði Parfs og New York.
fá?
á
Hvaða verkefni er leiðinlegast að
Þetta starf hefur náttúrulega sfna kosti og galla.
Ég er til dæmis búin að vera að vinna frekar
mikið fyrir Calvin Clein við að gera svona
"showroom" og ég var fyrst geðveikt spennt
fyrir því en þetta var alveg leiðinlegasta verkefni
sem ég hef upplifað. "Showroom" gengur
út á það að sýna föt fyrir verslunarstjóra í stórum
búðum eins og Bloomingdales. Maður situr f
einhverju herbergi frá þvf klukkan átta um
morguninn til ca. sjö um kvöldið og er sfðan
kallaður fram til að fara í einhver föt við og
við til að sýna þau. Ég ráðlegg öllum að fara
l alls ekki í þennan pakka.
Edda, Erla og Malla hafa unnið sem fyrirsætur út um allan heim.