Orðlaus - 01.02.2004, Blaðsíða 54
Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar)
Þú laðar að þér fólk þannig að þú átt auðvelt með að
vera með yfirhöndina í samskiptum viö annað fólk. Þú
þarft að nýta þér þennan hæfileika til að velja og hafna
fólki sem þú vilt umgangast. Þú ert mikil
metnaðarmanneskja en stundum þarftu að virkja þennan
metnað í þér með því að setja þér takmörk. Það þýðir
ekki að bíða eftir að hlutirnir gerist, þú verður að gera
þá. Ástarlífið tekur smá kipp í febrúar en ekki búast við
of miklu, þetta kemur þegar það kemur. Þú átt það til
að bakka ef þér mislíkar framkomu einhvers þegar á
reynir en það er einmitt tíminn sem þú átt að vera til
staðar. Ef þér mislíkar við hlutina er best að ræða þá við
viðkomandi og þá færðu lausn á málinu og þú stendur
eftir sem betri manneskja fyrir vikið. Reyndu að virkja
sjálfa/n þig, hlaða batteríin.
Fiskar (19. febrúar - 20. mars)
Fiskar eru þekktir fyrir að gefa mikið af sér. Þeir eru alltaf
tilbúnir að hjálpa vinum sínum og kunningjum þannig
að fólk í kringum þig á það til að taka þig sem sjálfsögðum
hlut. Þú verður að passa vel upp á að hugsa ekki of mikið
um aðra þar sem þú verður að hugsa fyrst og framst um
sjálfa/n þig. Þú munttaka góðar og skynsamar ákvarðanir
í þessum mánuði ef þú leyfir þér að vera opin/n og
jákvæð/ur fyrir nýjum hlutum sem þér er bent á. Ástarlífið
er í pásu núna, febrúar mánuður er meira hugsaður sem
afslöppunarmánuður fyrir þig og tími til að hugsa um
þig. Þú átt það skilið.
Hrútur (21. mars - 19. apríl)
Þetta er þinh mánuður, ástin tekur stakkaskiptum. Þú
hittir manneskju sem gersamlega heillar þig upp úr
skónum. Þú ert ekki viss hvort þú eigir að hætta þér í
djúpu laugina en það er þess virði. Til hvers að að standa
í þessu ef maður tekur ekki áhættu. Þú veist aldrei hvað
gerist! Þú ert kannski stressuð/aður en ekki láta það á
þig fá, maöur tapar aldrei á því að reyna. Fólk sér meira
eftir hlutum sem það gerir ekki heldur en hlutum sem
það gerir. Og það á sérstaklega við um ástarmál.
K
Naut (20. apríl - 20. maí)
Þetta verður mánuður tíðinda hjá þér. Það er allt að
gerast og þú veist ekki í hvorn fótinn þú átt að stíga. Það
koma svo mörg spennandi tilboð inn um lúguna hjá þér
og þú þarft að velja núna sem verður erfitt þar sem
nautið er þekkt fyrir að vilja gera öllum gott í kringum
sig en þú getur aldrei gert allt. Þú hefur ekki tíma til að
einbeita þér að öllu sem er að gerast í kringum þig þannig
að þú verður einfaldlega að velja og hafna. Taktu þér
tíma til að finna hvað þú vilt gera til að vera viss þegar
þú velur. Mundu að besta leiðin til að taka ákvarðanir
er að vera einn með sjálfri/um sér því það er enginn annar
en þú sem getur ákveðið hvað þú vilt gera.
íl
Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Þú átt á hættu að detta ofan í gryfju draumóranna þegar
veturinn er sem erfiðastur og einungis er bjart í nokkra
klukkutíma á dag. Þú verður bara að gera þér grein fyrir
tímanum sem þú eyðir í draumana því hann er dýrmætur.
Ef það er þó einhver sem getur látið drauma sína rætast
þá er það fólk fætt undir merkjum Ijónsins. Þú ert
sjálfstæð/ur og ættir að komast hvert sem er ef þú leggur
metnaðinn þinn í það. Mundu þetta núna og einbeittu
þér að halda þér á jörðinni og lifa lífinu í dag ekki því
lífi sem þú vilt að þú eigir eftir að eiga.
m.
Sporðdreki (24. október - 21. nóvember)
Þú átt í deilum við vin þinn sem gæti orðið alvarlegt ef
ekkert verður að gert. Ekki láta minniháttar vandamál
eyðileggja vinskapinn þvf það er ekki þess virði.
Sporðdrekar eiga erfitt með að lifa af veturinn vegna
lítillar birtu en þú ert samt heldur bjartsýnari en fyrri ár.
Þetta verður fljótt að líða og áður en þú veist af verður
komið sumar og þú átt eftir leika við hvern þinn fingur.
EF það er eitthvað að gerast í ástarmálunum þá áttu að
setja það á hold. Þú munt upplifa mun meira spennandi
hluti í sumar sem þú missir af ef þú lætur verða af þessu.
Taktu því rólega, vertu sátt við vini þína og pása á
ástarmálin í bili.
n
Tvíburar (21.maí - 21.júní)
Nú er tíminn til að líta fram á við. Það styttist í sumarið
og Iffið er of stutt til að vera með eftirsjá eða að horfa
um öxl og hugsa um allt sem þú hefðir átt að gera. Það
þarf að hugsa um það sem er hægt að gera. Þetta er
ekki auðvelt en febrúar er mjög góður mánuður fyrir
róttækar breytingar. Þú ert með einstaklega mikinn
baráttuvilja núna og það er gott að nýta hann í þetta.
Það er aldrei of seint að byrja að taka til í lífinu, betra
er seint en aldrei.
m
Meyja (23.ágúst - 22.september)
Meyjan vill oftast stjórna aðstæðunum í kringum sig.
Þetta á við bæði hvað varðar vinnu og einkamál. Febrúar
verður einkum erfiður þar sem þú kynninst nýrri hlið á
vini þínum þar sem hann stendur uppi í hérinu á þér og
segir þér til syndanna. Ef það er eitthvað verra fyrir
meyjuna en að ráða ekki yfir aðstæðunum þá er það að
vera gagnrýndur eða að einhver sé ósammála henni.
Þetta verður þvf hörð viðureign fyrir þig en besta ráðið
er að hlusta í þetta skiptið. Það gæti verið margt sem
þér finnst rangt en það getur líka verið margt satt. Þú
kynnist manneskju af gagnstæðu kyni á næstunni sem
vekur áhuga þinn en þú ert ekki viss hvernig áhugi það
er, hvort um vinskap eða rómantfk sé að ræða.
X”
Bogamaður (22. nóvember - 21. desember)
Þú þarft að hugsa vel um fjármálin á næstu mánuðum
og passa budduna vel. Eyðslan um jólin fór alveg með
þig og nú er kominn tími til að spara. Það er erfitt en
einhvern tímann er allt fyrst og nú er það að spara. Þú
er uppfull/ur af verkefnum og þú verður að passa að
gera ekki of mikið af hlutum í einu. Þú stendur þig
mun betur ef þú einbeitir þér að því að skipuleggja
þig og forgangsraða. Hvað skiptir þig mestu máli að
gera, það fyrst og síðan koll af kolli. Það gerast
spennandi hlutir í ástarlífinu í lok mánaðarins. Þá er
að muna að opna þig ekki of mikið því það getur reynst
fráhrindandi. Það fer þér vel að vera dularfull/ur þannig
að einbeittu þér að því.
©
Krabbi (22. júní - 22. júlí)
Þú stendur þig vel þegar þú ert á vinnumarkaði en
einnig þegar þú ert í skóla. Krabbinn er duglegur en á
það oft til að vera rosalega duglegur í stuttan tíma og
vera svo það ánægður með árangurinn að hann detti
niður í leti. Erfiðasta sem við glímum við er að vera á
stöðugri ferð því við þurfum að reyna að jafna út
athafnasemina okkar. Því gott skipulag og góður tími
til að gera hlutina gerir okkur mun auðveldara fyrir.
Það er eitthvað sem þú þarft að einbeita þér að núna
það er að koma á reglu og fastheldni í líf þitt, árangurinn
verður mun meiri en þig grunar.
Vog (23.september - 23.október)
Þú átt erfitt með að taka ákvarðanir núna þannig að það
er best að bíða með afdrifaríkar ákvarðanir þangað til
að betur stendur á. Ef fólk vill fá þig til að ákveða eitthvað
myndi ég reyna að sannfæra það um að gefa þér tíma
til að hugsa. Þú átt að einbeita þér að smáu hlutunum
sem gera þig hamingjusama/n núna og gleyma öllu sem
þú ert að hafa áhyggjur af. Áhyggjur eru fyrir framtíðina,
ekki þegar við erum ung og megum leika okkur. Slepptu
fram af þér beislinu í áhyggjuleysinu og gerðu allt sem
þig er búið að langa til að gera en hefur ekki gert.
Steingeit (22. desember - 19. janúar)
Það er mikið að gera hjá þér þessa dagana og núna átt
þú að fylgja hjartanu við þær ákvarðanir sem þú þarft
að taka. Það gæti komið smá þrýstingur á þig út af
verkefni sem þú hefur tekið þér fyrir hendur en þú átt
eftir að standa þig vel. Þú ert á mikilli ferð núna en það
er ekki langt í að þú róist aftur. Það á þó eftir að taka
þig smá tíma að ná þér niður aftur en njóttu þess að vera
full/ur af orku á meðan þú getur. Það er betra, ef þú ert
á lausu, að láta ástarmálin eiga sig í febrúar. Þú gætir
ekki einbeitt þér að þeim þó svo að þig langaði til þess.
Reyndu að halda heimilinu hreinu þannig að þér líði vel
þegar þú kemur heim eftir erfiðan vinnu- eða skóladag.