Bændablaðið - 22.11.2005, Side 33
33Þriðjudagur 22. nóvember 2005
Þeir Kjartan Þorkelsson, sýslu-
maður á Hvolsvelli, og Eymund-
ur Gunnarsson, atvinnu- og
ferðamálafulltrúi, kynntu nýlega
fyrir sveitarstjórn Rangársþings
eystra hugmyndir um að koma
upp safni almannavarna.
Eymundur sagði í samtali við
Bændablaðið að fyrir tilstuðlan
sýslumannsins í Rangárvallasýslu
hefði verið gert gríðarmikið hættu-
mat vegna Kötlu og Mýrdalsjök-
uls. Í þetta var eytt miklu fé og að
verkefninu kom hópur sérfræðinga
og vísindamanna sem fjölluðu um
málið frá öllum hliðum.
,,Við sýslumaður vorum að
ræða þetta eitt kvöldið og fannst
það skelfileg tilhugsun ef öll sú
vinna og fé sem lögð var í þetta
hættumat yrði ekki nýtt eitthvað
meira. Þá fæddist hugmyndin um
að búa til hamfarasafn. Við rædd-
um þetta oft og lengi og ýmsar
hugmyndir fæddust og loks var
hugmyndin mótuð og kynnt,“
sagði Eymundur.
Það þarf að hýsa safnið og það
er nauðsynlegt að hafa aðkomu
sveitarfélagsins Rangárþings
eystra að þessu og þess vegna var
farið á fund með sveitarstjórninni
og hugmyndin kynnt þar. Eymund-
ur sagði að sveitarstjórn hefði tek-
ið mjög jákvætt undir að áfram
yrði haldið við að þróa hugmynd-
ina og sú vinna er nú hafin.
Hér yrði ekki um safnmuni að
ræða heldur það efni sem fyrir
liggur í rituðu máli. En Eymundur
segir að menn séu sammála um að
enginn maður myndi nenna að
ganga um og lesa bara af einhverj-
um spjöldum.
,,Í apríl næsta vor verður haldin
allsherjar almannavarnaæfing hjá
lögreglu, björgunarsveitum og al-
mannavörnum í Rangárvallasýsl-
unum og Mýrdal. Við höfum
hugsað okkur að taka æfinguna
upp á myndband. Þá gætu gestir
hamfarasafnsins skoðað mynd-
bandið og hlustað á talað mál með
því og lesið texta sem verður á
spjöldum í safninu. Þar með gæti
fólk séð hvað getur gerst,“ segir
Eymundur.
Hann segir þá hafa skoðað
húsakosti sem kæmu til greina
undir safnið og nefndu fyrst Goða-
land í Fljótshlíð. Á fundinum með
sveitarstjórninni kom fram að til
er ónotað húsnæði í Sögusetrinu á
Hvolsvelli. Með því yrðu slegnar
tvær flugur í einu höggi því nú
þegar er starfsmaður í Sögusetrinu
og því yrði þetta ekki dýrt fyrir
sveitarfélagið.
,,En við viljum ekki hætta
þarna, þar sem saman kominn
verður mikill fróðleikur um jarð-
fræði, náttúrusögu og fleira. Við
sjáum að þetta geta orðið fræðaset-
ur fyrir nema frá erlendum háskól-
um, Háskólunum á Íslandi, Land-
búnaðarháskóla Íslands og vís-
indamönnum. Þar með væri þetta
orðið bæði safn og fræðasetur,“
sagði Eymundur Gunnarsson.
Rangárþing eystra
Hugmynd um að koma
upp safni almannavarna
eMax minnkar að-
stöðumun dreifbýlis
Í Bændablaðinu 11. tbl. 11. árg.
7. júní sl. er á blaðsíðu 25 viðtal
við Jón Baldur Lorange, forstöðu-
mann tölvudeildar Bændasamtaka
Íslands. Þar segir hann um samn-
inga sveitarfélaga við eMax:
„Forystumenn þeirra sveitarfé-
laga, sem gengið hafa frá samn-
ingum við eMax um þráðlausa há-
hraðatengingu, sýna með þessu
djörfung og fyrirhyggju. Þetta
mun bæta samkeppnisaðstöðu
sveitarfélaganna og halda fólki í
byggðarlaginu og draga að nýja
íbúa.“
Jón Baldur fagnar einnig því
að eMax sjái sér fært að bjóða upp
á þráðlaust netsamband í dreifbýli
á viðráðanlegu verði.
Það var okkur hjá eMax mikið
gleðiefni að sjá þessa grein í
Bændablaðinu þar sem metnaður
okkar hefur staðið til að bjóða
íbúum í dreifbýli og sumarbú-
staðaeigendum upp á gott netsam-
band þar sem þeir eru staddir.
Þetta er metnaðarfullt starf og að
mörgu þarf að hyggja og því er
ánægjulegt þegar fagmaður á
sviði tölvumála bænda tekur svo
sterkt til orða sem Jón Baldur ger-
ir í Bændablaðinu. Við erum
þakklát fyrir þessi viðbrögð sem
verða okkur hvatning í enn öfl-
ugra starfi við að tengja þráðlaust
netsamband í dreifbýli.
(Af heimasíðu eMax)