Bændablaðið - 22.11.2005, Page 53
53Þriðjudagur 22. nóvember 2005
Árni Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri UD, lýsti því næst starfi UD
sem hófst árið 2002. Hann sagði
að staðið hefði verið fyrir nám-
skeiðum um tölvur og Internetið
fyrir bændur um allt land og hefðu
á þriðja þúsund manns sótt þessi
námskeið. Námskeiðin eru sam-
starfsverkefni UD, Bændasamtak-
anna, búnaðarsambanda, leiðbein-
ingarstöðva og símenntunarstöðva
um allt land. Menn komu með
tölvur sínar á námskeiðin sem
voru lagfærðar, hreinsaðar af víru-
sum og ormum og fólki kennt að
nota tölvurnar rétt. Árni sagði að
bændur hefðu verið hikandi í
fyrstu en síðan hefði orðið á mikil
breyting.
Kostnaður við UD og nám-
skeiðin fyrstu 3 árin nam um 50
milljónum króna. Þar af nam
kostnaðurinn árið 2004, þegar
flest námskeiðin voru haldin, 18
milljónum króna. Þetta fé kemur
frá stofnunum, fyrirtækjum og rík-
issjóði. UD mun starfa út árið
2006 en þá lýkur verkefninu.
Helstu verkefnin framundan eru
námskeið um netforrit Bændasam-
takanna og verkefni fyrir ferða-
þjónustubændur.
Yfir 4.000 km
ljósleiðaralögn
Ari Jóhannsson, verkefnastjóri hjá
Póst- og fjarskiptastofnun, hélt er-
indi um alþjónustu og þróun fjar-
skiptamarkaðar. Hann sagði að
Síminn væri að ljúka við að gera
öllum bændum landsins kleift að
fá ISDN-nettengingu. Hins vegar
væri ADSL-tengingin að koma æ
sterkari inn. Af um 100 þúsund
heimilum í landinu hefðu 56 þús-
und þeirra ADSL-tengingu.
Þá sagði Ari að ljósleiðaralagn-
ir í landinu væru nú um 4.000 km
að lengd en þá lögn vantaði þó
sums staðar á Vestfjörðum. Sjá
nánar viðtal við Ara annars staðar
í blaðinu.
Þórarinn Sólmundarson, sér-
fræðingur þróunarsviðs þróunar-
stofnunar Byggðastofnunar, talaði
í erindi sínu m.a. um að forsenda
fyrir fjarkennslu í landinu þegar
hún hófst árið 1998 hefði verið
byggðabrú. Hún lagðist af 2003
og ný tækni tók við. Hann ræddi
líka um hið rafræna samfélag og
verkefni sem heitir Birra. Með
þátttöku í því er vonast til að til
verði greiningartæki til að meta
stöðu sveitarfélaga á sviði upplýs-
ingatækni bæði hvað varðar
grunnkerfi fjarskipta og hagnýt-
ingu.
Menntun og miðlun
Ágúst Sigurðsson, rektor Land-
búnaðarháskóla Íslands, hélt er-
indi sem hann kallaði Menntun og
miðlun. Hann benti á nauðsyn
góðra fjarskipta fyrir háskóla sem
eru staðsettir úti á landsbyggðinni.
Landbúnaðarháskólinn sé til að
mynda með sjö starfsstöðvar á
landinu, nemendur séu um 300 og
að 60% af starfsemi LHÍ sé rann-
sóknastarf. Ríkur þáttur í starfi
skólans sé fjarnám og forsenda
þess sé gott fjarskiptasamband.
Sjá viðtal við Ágúst annars staðar
í blaðinu.
Grétar Þór Eyþórsson, prófess-
or í stjórnmálafræði við Viðskipta-
háskólann í Bifröst, hélt erindi
sem hann kallaði Einkavæðing,
arðsemi og dreifbýli á Íslandi.
Síminn -
upplýsingatækni í dreifbýli
Eva Magnúsdóttir, upplýsingafull-
trúi Símans, hélt fróðlegt erindi
þar sem hún kynnti starfsemi Sím-
ans.Þar greindi hún frá því sem
hún kallaði áttavita Símans sem
væri gildi, traust, heilindi, lipurð
og einfaldleiki. Þessu næst ræddi
hún um ADSL-dreifikerfið sem
hún sagði að næði til 98% þjóðar-
innar, sendarnir um landið í fyrra
hefðu verið 40 og langdrægni
þeirra væri alltaf að aukast.
Hún sagði að ISDN væri há-
gæða talsímalausn þar sem tvær
símalínur væru lagðar í húsin;
önnur fyrir talsíma en hin fyrir
tölvur. Innan skamms verður
dreifikerfi þess um landið 100%.
Hún sagði bændur hafa verið
óánægða með gjaldskrána en nú
þegar boðið er upp á áskriftarleið
fyrir ISDNplús og er áskriftar-
gjaldið 3.900 kr. á mánuði og inni-
falin væri 60 klukkustunda notk-
un.
Eva ræddi um samstarf Símans
við UD og Bændasamtökin og
fundarherferð með bændum sem
jók notkun á ISDN. Samstarfið
hefði verið farsælt og skipulögð
námskeið á vegum UD hefði auk-
ið tölvunotkun. Hún bar saman
ADSL og ISDN frá tæknilegu
sjónarmiði og sagði að ISDN væri
alveg jafnt fyrir þéttbýli sem
dreifbýli.
Síðan ræddi hún um ýmis til-
raunaverkefni sem væru í gangi
eins og þráðlaus kerfi og nefndi
þar sérstaklega WiMAX, sem er
þráðlaus fjarskiptatækni á ör-
bylgju. Tilraunir með kerfið hafa
farið fram hér á landi og lofa góðu
en WiMAX er enn ekki komið á
markað.
Rekstur og
samkeppni í dreifbýli
Stefán Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri eMAX, ræddi m.a.
um rekstur og samkeppni í dreif-
býli. Hann sagði fyrirtæki á lands-
byggðinni sem aðeins hafa ISDN
standa höllum fæti á. Sömuleiðis
væri aðstaða til fjarnáms í dreif-
býli lakari en í þéttbýli og fólk í
dreifbýli hefði mun minni aðgang
að afþreyingarefni en aðrir. Ljóst
væri að gera yrði betur við lands-
byggðina í þessum efnum ef ekki
ætti verr að fara. Hann lýsti því
næst starfi eMAX í dreifikerfa-
málum. Sjá viðtal við Stefán ann-
ars staðar í blaðinu.
Þór Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Nepal í Borgarnesi,
sagði að fyrirtæki sitt byði upp á
háhraðatengingar og fólk í dreif-
býli vildi hafa þær. Hann sagði há-
hraðatengingar tvíeggja vopn fyrir
landsbyggðina. Bankar fækki úti-
búum sínum eða leggi þau niður
vegna þess að þegar allir eru
komnir með háhraðatengingar fara
bankaviðskipti almennings inn í
tölvur. Sömuleiðis mun stór hluti
heilsugæslunnar fara í tölvur. Þór
sagði að tvímælalaust væri ör-
bylgjan framtíðin í þessum málum
fyrir dreifbýlið.
Netforrit bænda
Jón Baldur Lorange, forstöðu-
maður tölvudeildar Bændasamtak-
anna, rifjaði upp stefnu stjórn-
valda varðandi upplýsingasamfé-
lagið á liðnum árum þar sem mikil
áhersla er lögð á að markvisst sé
unnið að því að bæta upplýsinga-
tækni í dreifbýli. Þá fór hann yfir
hvernig þrýst hefur verið á Sí-
mann um lausnir er snúa að Inter-
nettengingum hjá bændum. Hann
sagði að sú samkeppni sem komið
hefði frá eMAX hefði verið til
góðs Hann fór yfir stefnu Bænda-
samtakanna í tölvumálum og þró-
un þeirra mála í síðastliðnum 14
árum. Hann kynnti svo netforrit
bænda sem tölvudeild BÍ býður
upp á sem eru WorldFengur,
MARK, Huppa og Net Fjárvís og
gaf hugmynd um hvaða forritin
hefðu upp á að bjóða.
Árni Gunnarsson þakkaði í lok-
in fyrir góða og fróðlega ráð-
stefnu.
Upplýsingatækni í dreifbýli
Fyrir árslok munu
allir sveitabæir í
landinu hafa aðgang
að ISDN-nettengingu
Nú býður Síminn viðskiptavinum sínum nýja
áskriftarleið – ISDN Plús gegn föstu gjaldi.
Mánaðargjaldið er aðeins 3.900 kr. og eru allt að
60 klst. innifaldar á mánuði sé önnur talrásin notuð.
Sæktu um ISDN Plús í síma 800 7000 eða í næstu
verslun Símans.
Kynntu þér málið á siminn.is
800 7000 - siminn.is
ISDN
Plús
Ný áskriftarleið
ISDN Plús
fast mánaðargjald.
Allt að 60 klst. innifaldar
3.900 kr.
Sítenging við Internetið
gegn föstu gjaldi
Upplýsingatækni í dreifbýli (UD) hélt ráðstefnu í Reykholti fimmtu-
daginn 10. nóvember sl. um upplýsingatækni í dreifbýli. Fundar-
stjóri var Eiríkur Blöndal, framkvæmdastjóri Búnaðarsamtaka
Vesturlands. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðhera setti ráðstefn-
una. Hann nefndi m.a. að 2,5 milljörðum kr. af söluandvirði Símans
verði varið til fjarskiptamála. Hann lofaði starfsemi UD sem hefði
þjónað öllum bændum og að nú væri svo komið að innan fárra vikna
yrðu allir bændur landsins komnir með ISDN-nettengingu.