Bændablaðið - 28.03.2006, Blaðsíða 43
43Þriðjudagur 28. mars 2006
Í vistvænni framleiðslu er áhersla
lögð á gæðastýringu og eftirlits-
kerfi til að tryggja uppruna og
ræktun nytjajurta þannig að afurð-
irnar uppfylli kröfur sem gerðar
eru til vistvænna landbúnaðaraf-
urða. Framleiðslan skal samræm-
ast góðum búskaparháttum og
markmiðum sjálfbærrar þróunar í
landbúnaði. Tryggja skal öflun
góðs neysluvatns, örugga meðferð
sorps og frárennslis svo og aðrar
mengunarvarnir og góða umhirðu
við framleiðslu landbúnaðaraf-
urða.
Við ræktun nytjajurta og afurða
þeirra skal notkun áburðar, lyfja
eða varnarefna vera í samræmi við
viðurkenndar reglur um hreinleika
og hollustu afurða og verndun um-
hverfis og í samræmi við ákvæði í
viðaukum fyrir einstakar afurðir.
Við framleiðslu vistvænna af-
urða skal árleg hámarksnotkun
köfnunarefnis miðast við 180 kg
N/ha. fyrir kartöflur og grænmeti.
Vinna skal sérstaka áætlun varð-
andi áburðargjöf, sem tekur mið af
þörfum viðkomandi plantna. Við
ræktun í jarðvegi skal áburðargjöf-
in taka mið af jarðvegssýnum. Öll
frávik skal skrá og rökstyðja.
Afurðir nytjajurta skulu merkt-
ar einstökum framleiðendum í
gegnum vinnslu og dreifingu. Ekki
er leyfilegt að markaðssetja sömu
grænmetistegund bæði undir
merkjum vistvænnar og hefðbund-
innar ræktunar.Hver grænmetis-
framleiðandi og afurðastöð, sem
óskar eftir viðurkenningu, skal
sækja um hana til garðyrkjuráðu-
nautar Bændasamtaka Íslands, sem
framkvæmir úttekt á framleiðslu-
aðstöðu umsækjanda. Komi í ljós
við skoðun eftirlitsaðila að fram-
leiðandi/afurðastöð hefur gerst
brotleg við ákvæði reglugerðarinn-
ar skal viðkomandi veittur fjögurra
vikna frestur til úrbóta. Hafi úrbót-
um að þeim tíma liðnum ekki ver-
ið lokið að mati eftirlitsaðila skal
viðurkenning hans afturkölluð.
Plöntuvernd skal grundvallast á
lífrænum vörnum og fyrirbyggj-
andi aðgerðum eftir því sem tök
eru á.
Plöntulyf má aðeins nota í
neyðartilvikum eða samkvæmt
notkunaráætlun. Í notkunaráætlun-
inni skal m.a. koma fram hvaða lyf
muni væntanlega verða notuð.
Einungis er leyfilegt að nota
viðurkennd plöntu- og illgresislyf
og í fullu samræmi við notkunar-
leiðbeiningar. Skrá verður á sér-
stök eyðublöð alla notkun plöntu-
og illgresislyfja frá og með byrjun
ræktunar.
Vinna skal sérstaka áætlun
varðandi áburðargjöf, sem tekur
mið af þörfum viðkomandi
plantna. Öll frávik skal skrá og
rökstyðja.
Við ræktun í jarðvegi í skal
áburðargjöfin taka mið af jarð-
vegssýnum.
Frekari upplýsingar, gátlisti og
nauðsynleg eyðublöð er á heima-
síðu Bændasamtaka Íslands:
h t t p : / / b o n d i . i s / l a n d b u n a d -
ur/wgbi.nsf/key2/gardyrkja-vist-
vaen_raektun
Vistvæn fram-
leiðsla grænmetis
Magnús Ágústsson,
ráðunautur
Bændasamtaka
Íslands
Önnur á nýlegum dekkjum hin með
bilaðar bremsur(varahlutir fylgja)
Verð 900 þús + vsk stykkið
Ræktunarsamband Flóa & Skeiða Ehf
Gagnheiði 35 - Selfossi
Sími 480 8500
Til sölu tvær
Cat 438 4x4
árg ´90 & ´91
Fjórhjól til sölu
Til sölu 10 stk Bombardier Traxter
Max 500cc, 2ja manna, árg.´03.
1 stk Quest 650cc árg.´04, 2ja manna.
1 stk. Quest 650cc árg ´03 eins manns.
Uppl: 892-9116