Bændablaðið - 16.05.2006, Síða 15
15Þriðjudagur 16. maí 2006
!"#$%
&
'( )*#+) + ,
-). Hvanneyri • 311 Borgarnes • s. 433 5000 • www.lbhi.is
Landbúna›arháskóli Íslands
Úr búfræ›inámi vi› LBHÍ útskrifast
nemendur sem búfræ›ingar.
Búfræ›i er einnig hægt a› taka
í fjarnámi.
Búfræ›inám vi› LBHÍ – tækifæri fyrir flig?
Kynntu flér starfsmenntanám vi› LBHÍ,
fla› gæti henta› flér. www.lbhi.is
Fjölmennur hópur stund-
ar bjargsig á Langanesi
Austur á Langanesi stundar stór
hópur manna bjargsig á vorin
og nú nýverið úthlutaði Þórs-
hafnarhreppur heimildum til
bjargnytja í Skoruvíkurbjörg-
um. Halldór Halldórsson er einn
af þeim sem stundað hefur
bjargnytjar á Langanesi í mörg
ár. Hann hefur, ásamt þremur
öðrum mönnum, stofnað félags-
skap um þessa starfsemi sem
heitir Eggjafélagið. Eggjatakan
stendur þrjár til fjórar vikur frá
því um miðjan maí. Þeir félagar
tína eingöngu svartfuglsegg sem
seld eru um allt land. Mikil eftir-
spurn er eftir eggjum, einkum í
byrjun vertíðarinnar.
Halldór segir að svartfugls-
eggjatínslan sé umtalsverð búbót
fyrir þá sem hana stunda enda eru
tínd á milli 70 og 80 þúsund svart-
fugls- og rituegg í venjulegu ár-
ferði. Á milli 30 og 40 menn koma
að bjargsigi á Langanesi vor hvert.
Í fyrra var lítil eggjatínsla vegna
þess hve fáir svartfuglar og ritur
verptu og eggjafjöldinn ekki nema
fjórðungur þess sem tínt er í venju-
legu áferði. Ástæða þessa var, að
sögn fuglafræðinga, átuleysi í
sjónum. Halldór segir að nú sé
mikið um æti og því er búist við
góðri eggjatöku. Svæðið sem Eg-
gjafélagið hefur til umráða heitir
Skipagjá.
Menn ekki lengur á vað
Nú er það ekki lengur hópur
manna sem er á vað, eins og það
var kallað hér áður fyrir þegar sig-
ið var björg eftir eggjum, heldur er
notast við bæði bifreiðar og
dráttavélar til að hífa sigmennina
upp úr bjarginu. Halldór segir að
það sé þó nokkuð af lunda á
Langanesi en menn stundi samt
ekki lundaveiðar með háf.
Fyrir utan þá sem eru með al-
vöru útgerð í svartfuglseggjatöku
eru aðrir sem tína bara rituegg.
Einn þeirra er Rúnar Konráðsson á
Þórshöfn og sagði hann að hjá
þeim væri um tómstundagaman að
ræða og ekki eins mikið undir og
hjá þeim sem síga eftir svartfugls-
eggjum. Hann sagði að ritueggin
væru mjög vinsæl og eftirspurn
eftir þeim mikil. Varp ritunnar
hefst á svipuðum tíma og hjá
svartfuglinum.
Lífið gengur eitthvað svipað fyrir
sig í fuglabjörgum landsins. Hér
má sjá fýla í Krísuvíkurbjargi.