Bændablaðið - 28.08.2007, Blaðsíða 1
,,Ein frostnótt og nánast öll
kartöflugrös eru fallin í Þykkva
bænum. Þar með er ljóst að upp
skerubrestur verður hjá okkur
og skortur á íslenskum kart
öflum fyrirsjáanlegur á næsta
ári. Þetta gerðist aðfaranótt laug
ardagsins 18. ágúst,“ sagði Sigur
bjartur Pálsson, bóndi á Skarði
í Þykkvabæ og stjórnarmaður í
Landssambandi kartöflubænda.
Hann segir að í örfáa daga eftir
að grösin eru fallin bæti kartöflurn
ar við sig en það sé afar lítið. Aftur
á móti sé skynsamlegt að bíða
nokkra daga með að taka kartöflu
rnar upp og leyfa þessu að jafna
sig, eins og hann komst að orði.
Varðandi kartöflustærðina, nú
þegar spretta er hætt, sagði Sigurbjart
ur að hann efaðist um að gullauga
og íslenskar rauðar kartöflur næðu
meðalstærð, þær hefðu þurft að fá að
vaxa í svo sem tvær vikur í viðbót.
Það munaði svo mikið um síðustu
vikurnar varðandi sprettuna.
,,Sumarið hefur verið hlýtt og
gott en það hefur ekki nýst vegna
þess að vætuna hefur alveg vantað,
sem að sjálfsögðu kemur niður á
vexti kartaflnanna. Það hefur ekki
rignt hér síðan snemma í vor og allt
sem grær líður fyrir það. Enda þótt
uppskeran verði ekki hörmung þá
verður hún afar döpur og ljóst að
kartöflubændur verða fyrir miklu
tjóni,“ sagði Sigurbjartur.
Um 70% í Þykkvabæ
Í Þykkvabæ eru ræktuð um 70%
af kartöfluframleiðslunni í land
inu og því alveg ljóst að skortur á
íslenskum kartöflum verður hér á
næsta ári. Þegar kartöfluuppskeran
er í góðu meðallagi dugar það ekki
fyrir innanlandsmarkað.
Sigurbjartur segir að ástandið sé
heldur ekki gott í kartöfluræktinni
fyrir norðan því þar hafi verið bæði
þurrt og kalt í sumar og sprettan því
verið fremur lítil. Ef veður hlýnar
og eitthvað vætir á næstunni geta
næstu tvær vikur bjargað miklu
á Norðurlandi á meðan grös falla
ekki.
S.dór
14
Deilt um
vatnsréttindi
í Jökuldal
24
Mannmergð og
menningarhús
í Eyjafirði
14. tölublað 2007 l Þriðjudagur 28. ágúst l Blað nr. 265 l Upplag 17.000
10
SveitaSæla á
Sauðárkróki er
komin til að vera
Þessi húnvetnsku hross brugðu á leik fyrir Jón Eiríksson bónda á Búrfelli í Miðfirði sem er oftar en ekki með
myndavélina á lofti þegar mikið liggur við í náttúrunni. Bændasamtök Íslands geyma ljósmyndasafn Jóns en í
sumar var unnið að flokkun og varðveislu safnsins. Myndirnar eru allar á skyggnuformi en unnið er að því jafnt
og þétt að koma þeim á stafrænt form til þess að gera þær aðgengilegri. Ljósm. Jón Eiríksson.Ærslafull ágústnótt
Nýir pistlar
Gróður og garðamenning
er heitið á nýjum pistlum
sem hefja göngu sína í þessu
Bændablaði. Höfundur þeirra
er Kristín Þóra Kjartansdótt
ir sagn og félagsfræðingur í
Akureyrarakademíunni sem
nú stundar garðyrkjunám við
Landbúnaðarháskóla Íslands.
Í pistlunum verður víða leit
að fanga, bæði í tíma og rúmi.
Garðrækt er gömul listgrein
sem á sér mikla sögu – en jafn
framt ný á hverju vori. Í fyrsta
pistli Kristínar er fjallað um
fjölmenningargarða í Berlín
sem gegna veigamiklu hlut
verki í aðlögun innflytjenda
frá framandi löndum að þýsku
samfélagi. Sjá bls. 34
Uppskerubrestur á kartöflum í Þykkvabæ
Skortur á íslenskum kartöflum
fyrirsjáanlegur á næsta ári
„Sumarið hefur verið yndislega
gott veðurfarslega séð og það
hefur verið gott veður á hverj
um degi. Það var tregt fyrst í vor
í ferðamennskunni og framan af
sumri. Það hefur verið töluverð
aukning milli ára hjá okkur og
okkur sýnist að umfjöllunin um
Breiðavíkurdrengina hafi ekki
mikil áhrif. Veðurblíðan vegur
þyngst í góðri aðsókn,“ segir
Keran St. Ólason, ferðaþjón
ustubóndi í Breiðavík.
Gáttaður á skilaboðunum
Í sumar kom svissneskur ferða
maður í Breiðavík og greindi
Keran frá því að á bílaleigunni
hefði honum verið ráðið frá því að
fara á Vestfirði.
„Þetta er hlutur sem ég hefði
viljað að yrði tekið á af einhverjum
eins og til dæmis Ferðaþjónustu
bænda. Það eru náttúrlega forkast
anleg vinnubrögð að innlendar
bílaleigur vari ferðamenn við að
fara á Vestfirði vegna vega, eða ég
vona að það sé ekki vegna annars.
Við höfum heyrt áður ávæning
af þessu en nú fengum við þetta
beint í æð frá ferðamanninum.
Hann hafði kjark til að koma á
Vestfirði og var alveg gáttaður
á þessum skilaboðum sem hann
fékk og sagðist ekki skilja hvað
væri að óttast,“ segir Keran sem
ekki vildi nafngreina bílaleiguna
en hann hyggst tilkynna þetta til
aðila sem hafa með þessi mál að
gera. ehg
Skagafjörður
Bændur fá að flytja
eigið fé til slátrunar
Í viðtali sem Bændablaðið átti
við Jóhann Má Jóhannsson,
bónda í Keflavík í Skagafirði, í
vor er leið kom fram að bændur
í Skagafirði mættu ekki flytja fé
sitt til slátrunar á Sauðárkróki
þótt þeir hefðu til þess fullkomin
flutningatæki.
Fyrir tæpum tveimur mánuðum
var Jóhann boðaður á fund hjá
Kaupfélagi Skagfirðinga til skrafs
og ráðagerða um þetta mál. Í fram
haldi af því var boðaður fundur
með stjórn Félags sauðfjárbænda
og sláturhúsráði þar sem tilkynnt
var að ákveðið hefði verið að snúa
af þessari braut vegna óánægju
bænda með að mega ekki aka sjálf
ir fé sínu til slátrunar ef þeir hefðu
tæki og tól til þess.
,,Niðurstaðan varð sú að tilkynnt
var á fundi með viðskiptavinum
kaupfélagsins nokkru síðar að nú
mættu allir bændur aka með sitt
fé til slátrunar, hefðu þeir til þess
rétt tól og tæki,“ sagði Jóhann Már
þegar Bændablaðið leitaði frétta af
þessu máli á dögunum.
Hann sagði bændur þakkláta
fyrir að hlustað var á það sem þeir
sögðu og fóru fram á í þessu máli.
Jóhann sagði það til fyrirmyndar
hjá kaupfélaginu. S.dór
Innlendar bílaleigur vara við Vestfjörðunum
Ferðasumarið í Breiðavík á Barðaströnd hefur verið mjög gott að sögn
staðarhaldara sem undrast jafnframt þá umfjöllun og slæm meðmæli sem
Vestfirðir virðast fá hjá sumum bílaleigum.