Bændablaðið - 13.01.2009, Síða 1

Bændablaðið - 13.01.2009, Síða 1
Sem kunnugt er fara búgreinar landbúnaðarins misjafnlega illa út úr þeirri efnahagskreppu sem íslenskt atvinnulíf glímir nú við. Almennt hefur verið rætt um bága stöðu kúabúa í þessu sam- hengi þar sem töluvert hefur verið fjárfest í þeirri grein á und- anförnum misserum og skuld- setning því umtalsverð. Skuldsett grein Formaður Búnaðarsambands Skagafjarðar, Sigurður Baldursson, sagði t.a.m. í viðtali við Auðlindina í Ríkisútvarpinu Rás 1 á miðviku- daginn sl. að hann vildi að rík- isbankarnir felldu niður hluta af skuldum kúabænda. Sagði hann að ef ekkert verði að gert muni þeir kúabændur sem hafa staðið í fram- kvæmdum eftir árin 2002-2003 ekki hafa rekstrargrundvöll fyrir sín bú. Í umfjöllun Auðlindarinnar um málið og skuldsetningu kúabú- anna í landinu kom fram, að ekki væri ólíklegt að ætla að meðalbúið skuldaði um þrefalda ársveltu og hætta væri því á að mörg búanna verði gjaldþrota. Bændablaðið leitaði til ráðu- nauta á tveimur stærstu starfssvæð- um nautgriparæktarinnar í land- inu til að taka stöðuna á grein- inni; þeirra Vignis Sigurðssonar, ráðunautar hjá Búgarði – ráðgjaf- arþjónustu á Norðausturlandi, og Runólfs Sigursveinssonar hjá Bún- aðarsambandi Suðurlands. Tveir þriðju hlutar búa á Suðurlandi í góðum rekstri Á Suðurlandi er staðan þannig að af rúmlega 260 kúabúum eiga um 40-50 kúabú í verulegum erf- iðleikum en ekkert bú hefur neyðst til að hætta rekstri vegna fjárhags- erfiðleika. Runólfur segir að það komi nokkuð á óvart að ekki stærri hluti búanna standi verr en raun ber vitni. „Fjöldinn segir þó ekki allt heldur er það mjólkurmagnið sem skiptir líka máli – greinilegt er að þau bú sem hafa verið í stækk- unarferli undanfarin ár og staðið í endurbótum á aðstöðu, kaupum á framleiðslurétti o.s.frv. eru eðlilega skuldsettari. Hins vegar kemur nú í ljós við þessar öfgafullu aðstæð- ur hvernig grunnurinn var í upp- hafi, þ.e. hversu mikið eigið fé var til staðar og hvernig staðið var að undirbúningi,“ segir hann. Nær öll þau 40-50 bú sem eiga í erfiðleikum með skuldbindingar sínar hafa fengið frestun á afborg- unarhluta erlenda lánahlutans og sumir einnig á vaxtaþættinum. „Misjafnt er hver frestunin er til langs tíma, oft eru þetta tveir mán- uðir upp í sex mánuði. Hvað svo tekur við er mjög erfitt að greina á þessari stundu. Þó er ljóst að LIBOR-vextir hafa farið lækkandi og ættu smám saman að hafa áhrif á vaxtastigið á erlendu lánunum. Ég hygg að af hálfu bankanna verði leitað allra mögulegra leiða til að halda starfsemi kúabúanna áfram en spurning er hvaða bakland þeir síðan hafa til þess, ef ekki verður breyting á genginu. Þá bíður einnig innan skamms ákvörðun um fjár- mögnun áburðarkaupa sem verður ýmsum búum mjög erfið. Trúlega ekkert síður í sauðfjárræktinni,“ segir Runólfur. Önnur 40-50 bú eru allverulega skuldsett en munu komast í gegn- um ástandið án skuldbreytinga eða annarra sértækra ráðstafana. Tæplega tveir þriðju hlutar búanna, um 170 talsins, eru hinsvegar lítið skuldsett og sigla þannig tiltölulega lygnan sjó í gegnum kreppuna. „Til lengri tíma er það nauðsyn- legt að gengi íslensku krónunnar komist á eitthvert „eðlilegt ról“ og að vaxtaþróun hér innanlands verði skaplegri en á undanförnum árum – allt til dagsins í dag. Ástæða þess að kúabændur, líkt og aðrir atvinnurekendur og heimili, fóru í erlenda lántöku var að innlendi markaðurinn bauð einfaldlega ekki upp á kjör sem hægt var að búa við,“ segir Runólfur. Tveir þriðju hlutar búa á Norðausturlandi í góðum rekstri Á starfssvæði Vignis, hjá Búgarði – ráðgjafarþjónustu á Norðaustur- landi, eru starfandi 162 kúabú. Eins og á Suðurlandi hefur ekkert bú hætt rekstri í kreppunni og áætl- ar Vignir sömuleiðis að um tveir þriðju hlutar búanna, um 100 tals- ins, séu ekki í rekstrarvanda vegna skuldastöðu. „Ríflega þriðjungur er mikið skuldsettur, þar af gætu verið um 15-20 bú sem eru í verulegum rekstrarerfiðleikum vegna skuld- setningar, en almennt hefur gengið vel að semja við lánastofnanir um frestun á afborgunum á erlendum lánum. Þetta er þó tímabundin ráð- stöfun, oftast til 4-6 mánaða,“ segir Vignir. Hann segir alveg óljóst hvernig málin munu þróast eða til hvaða ráðstafana verður gripið þegar greiðslufrestur þeirra lána sem fryst voru rennur út. „Ljóst er að komandi ár verður bændum þungt í rekstri nema gengi krón- unnar styrkist á næstu mánuðum. Búast má við verulegum hækkun- um á áburði og erfiðleikum við að fjármagna áburðarkaup og kaup á öðrum rekstrarvörum.“ –smh 11 Frjáls verslun með búvörur og sjúkdóma- varnir fara saman 16 Framtíð land- búnaðarstefnu ESB 1. tölublað 2009  Þriðjudagur 13. janúar  Blað nr. 296  Upplag 17.500 6-8 Einörð andstaða bænda gegn ESB Jólin kvödd Kúabóndi setur upp fréttavef „Mér fannst vanta fréttavef héðan úr sveitinni, Þingeyjarsveit er mjög stór, nær yfir stórt lands- svæði og það er oft sem menn vita ekki af því hvað aðrir innan sveit- ar eru að gera,“ segir Hermann Aðalsteinsson kúabóndi í Lyng- brekku í Reykjadal en hann held- ur úti nýjum vef með fréttum og fróðleik úr Þingeyjarsveit á slóð- inni www.123.is/641. Á síðunni er að finna fréttir úr sveitarfélaginu, myndaalbúm, greint er frá ýmsum atburðum, gott tenglasafn er á síðunni, þar er pláss fyrir aðsent efni, hlaupastelpan, aug- lýsingabréf sveitarinnar er þar að finna sem og gestabók. „Viðtökurnar hafa verið góðar, ég er ánægður með þær,“ segir Hermann, en allt að 100 heimsókn- ir eru á vefinn á degi hverjum og 2-300 flettingar. Kostnaður er í lágmarki, enda er Hermann ekki með sérhýsingu á vef sínum, „en ég sé til þegar fram líða stundir hvort grundvöllur er fyrir að setja upp alvöruvef,“ segir Hermann. Hann segir tilgang vefsins þann að flytja sveitungum sem og öðrum áhugasömum um málefni Þingeyjarsveitar fréttir af gangi mála heima í héraði, þjappa mönn- um saman og auka samheldni í sveitarfélaginu. Sjálfur sé hann mikill áhugamaður um slíkt og hann hafi mjög gaman af því að halda þessum vef úti. Hann held- ur utan um tvo vefi aðra, Goðann sem flytur fréttir af skáklífi sveit- arinnar sem og bloggsíðu. „Ég vona bara að menn verði dugleg- ir að senda mér efni, ég get ekki kvartað yfir móttökunum og ég vona að þetta verði bara líflegur vettvangur skoðanaskipta í sveitar- félaginu,“ segir Hermann og bætir því við að fréttaöflunarsvæðið sé Suður-Þingeyjarsýslan sunnan Húsavíkur með Reykjahverfi (sem tilheyrir að vísu Norðurþingi) en án Mývatnssveitar. MÞÞ Íbúar í Reykjadal fjölmenntu á árlega brennu á Stafni á þrettándakvöld, en hefð er fyrir því að heimilisfólk kveðji jólin með brennu og nágrannarnir flykkjast að og eiga saman góða stund í upphafi árs. Upplýsinga- vefur um íslenskan landbúnað og ESB Á vef Bændasamtakanna, bondi.is, er búið að opna sérstakan vefhluta um Evrópusambandsmálin sem byggður verður upp með tím- anum. Markmiðið er að safna saman upplýsingum um land- búnað og ESB fyrir bændur og almenning. Tilgangurinn er að kasta ljósi á umfang og eðli sameiginlegrar landbún- aðarstefnu ESB og afstöðu Bændasamtakanna í þeim efnum. Efnið verður fram sett með fjölbreyttum hætti, t.d. sem ítarefni á erlendum tungumálum, sjónvarpsupp- tökur, blaðagreinar, skýrslur og fyrirlestrar. Ábendingar um gagnlegt efni eru vel þegnar og óskast sendar á netfangið tb@bondi.is Aldrei meiri mjólk- urframleiðsla Innvigtun mjólkur hjá aðild- arfélögum Samtaka afurða- stöðva í mjólkuriðnaði sf. árið 2008 var 126.051.529 lítrar. Þetta er mesta innvigt- un sem skráð hefur verið hjá mjólkursamlögum landsins. Innvigtun mjólkur til mjólk- ursamlaganna jókst um 1% milli áranna 2007 og 2008. Frá árinu 1959 hefur mest innvigtun verið skráð á landinu eftirfarin ár: Árið 2008 126.051.529 lítrar Árið 2007 124.816.835 lítrar Árið 1978 120.172.100 lítrar Árið 1979 117.198.706 lítrar Árið 2006 117.062.454 lítrar Fjárhagsstaða íslenskra kúabúa Ekki eins slæm og óttast var

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.