Bændablaðið - 13.01.2009, Page 4

Bændablaðið - 13.01.2009, Page 4
4 Bændablaðið | þriðjudagur 13. janúar 2009 Allnokkur taugatitringur hefur myndast vegna mögulegra breyt- inga á Evrópustefnu Sjálfstæðis- flokksins á komandi landsþingi hans sem hefst 29. janúar næst- komandi. Ljóst er að mikil gerj- un hefur verið innan flokksins varðandi afstöðu flokksmanna til samskipta Íslands við Evr- ópusambandið. Bændur hafa al- mennt lagst eindregið gegn aðild að sambandinu og er því nokk- ur eftirvænting eftir niðurstöðu flokksþingsins þeirra á meðal. Bændur virðast þó eiga hauka í horni í Sjálfstæðisflokknum ef tekið er mið af afstöðu fulltrúa flokksins í sjávarútvegs- og land- búnaðarnefnd Alþingis, sem og for- manns landbúnaðarnefndar flokks- ins. Bændablaðið hafði samband við nefndarfólkið og innti það eftir afstöðu þess varðandi aðild að Evrópusambandinu. Aðild þjónar ekki hagsmunum okkar sem þjóðar A r n b j ö r g Sveinsdótt ir formaður sjáv- arútvegs- og landbúnaðar- n e f n d a r Alþingis segir að íslenskur l a n d b ú n a ð u r og framtíð hans skipti afar miklu máli varðandi af- stöðu hennar til aðildar að Evrópu- sambandinu. „Ég held að það sé ljóst að það mun hafa mjög mikil neikvæð áhrif á íslenskan land- búnað ef við göngum í sambandið. Maður þarf ekki annað en að horfa til landa eins og Svíþjóðar og Finnlands þar sem hefur orðið veru- leg breyting í landbúnaði. Störfum hefur fækkað og framleiðsla breyst sem og allt umhverfi landbúnaðar- ins. Það varð mikil breyting á til hins verra við inngönguna þrátt fyrir að mér hafi nú fundist ýmsir reyna að gefa annað í skyn. Ég tel að möguleg innganga væri mjög slæm fyrir landbúnaðinn.“ Arnbjörg segist vera búin að taka afstöðu til málsins. „Ég tel að við eigum ekki að sækja um aðild. Ég held að það þjóni ekki hags- munum okkar sem þjóðar, og nátt- úrulega sérstaklega ekki hagsmun- um grunnatvinnuvega okkar, land- búnaðar og sjávarútvegs.“ Arnbjörg segir að umræða um Evrópusambandið hafi verið mjög frjó í Sjálfstæðisflokknum að und- anförnu, sem og gagnleg. Hún seg- ist eiga vona á því að málið verði leitt til lykta á skynsamlegan hátt. „Ég hef ekki stórar áhyggjur af því að þjóðin almennt muni óska eftir aðild þegar allar staðreyndir máls- ins verða komnar upp á borðið.“ Arnbjörg segist mögulega geta sætt sig við tvöfalda þjóðaratkvæða- greiðslu um málið því það sé leið til að fá niðurstöðu í málið. Það sé mikilvægt til að skapa vinnufrið um önnur mál sem meiri þörf sé á að taka á. „Harðna bara í andstöðunni“ Kjartan Ólafs- son, sem bæði situr í sjávar - útvegs- og land- búnaðarnefnd Alþingis sem og landbúnað- arnefnd Sjálf - stæðisflokks ins segir að hann hafi í gegnum tíðina ekki verið því fylgjandi að ganga eigi í Evr- ópusambandið. Hann telur þó fulla þörf á umræðunni enda sé nauðsyn- legt að skoða kosti og galla aðildar á hverjum tíma og telur það hollt fyrir þjóðina. „Ég hef núna kynnt mér í enn meiri þaula en áður allt það sem viðkemur mögulegri aðild að sambandinu í aðdraganda flokks- þingsins, og ég verð að segja það að ég harðna bara í minni andstöðu gegn inngöngu í sambandið. Ég fæ ekki séð að það sé í samræmi við hagsmuni samfélagsins, hvað þá landbúnaðarins að ganga þarna inn. Þar ber hæst sjávarútvegs- og land- búnaðarstefna sambandsins sem á engan hátt samrýmist okkar hags- munum. Ég styrkist bara í minni afstöðu eftir því sem á líður.“ Kjartan segir að það verði að vera kalt hagsmunamat manna sem ræður för í því hvort gengið verði til viðræðna. „Ég hef trú á að menn meti það sem svo að hagsmunum okkar sé ekki þjónað með því að fara þarna inn. Fiskveiðiauðlindin sem hefur verið aðalgjaldeyrisupp- spretta okkar um áratugaskeið, henni má ekki fórna fyrir nokkurn mun. Hvað verður um stærstan hluta landsbyggðarinnar ef land- búnaðurinn hverfur og fiskveiðarn- ar, byggðir munu leggjast í auðn. Þetta eru okkar grunnatvinnuvegir og þeim má ekki fórna.“ Sannfærður um að ekki takist að ná ásættanlegum samningi Jón Gunnars- son þingmaður S j á l f s t æ ð i s - flokksins tekur ekki jafn djúpt í árinni og þau Arnbjörg og Kjartan varð- andi andstöðu við inngöngu í Evrópusambandið. Jón sem situr einnig í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd er þó nokk- uð efins um að takast muni að ná fram þeim markmiðum sem hann telur nauðsynlegt að ná ef farið verður í aðildarsamninga. „Ég tel alveg ljóst að ef tekin verður ákvörðun um að sækja um aðild að Evrópusambandinu verður það að vera skýlaus krafa að þjóðin haldi yfirráðum yfir auðlindum sínum, hvort sem er á landi eða sjó. Ég verð að segja það að ég hef enga trú á að það takist að semja við sambandið um slíkt. Ég tel að landbúnaður- inn sé gríðarlega mikilvægur fyrir okkur sem þjóð. Ég hef litið á hann sem mjög mikilvæga atvinnugrein og ákaflega mikilvæga stoð í því að halda byggð úti um land. Í grund- vallaratriðum tel ég að við eigum að verja til hins ítrasta hagsmuni okkar í landbúnaði. Það er alveg ljóst að matvælaöryggi er farið að skipta þjóðin verulegu máli. Ég mun leggja mitt af mörkum til að standa vörð um landbúnaðinn, bæði almennt og í aðildarviðræðum við Evrópusambandið.“ Jón segist telja að nauðsynlegt sé að menn nái þverpólitískri sátt um þá hagsmuni sem eru ríkast- ir í mögulegum aðildarviðræð- um. „Ef menn ná slíkri samstöðu tel ég að það sé full ástæða til að láta reyna á samningaviðræður við Evrópusambandið. Þá er það líka ljóst í mínum huga að það þarf að standa vörð um þá hagsmuni. Í framhaldi af því ætti að leggja samningana fyrir þjóðina. Ég mun styðja þá leið vegna þess að ég held að það verði aldrei friður í landinu fyrr en að þessu loknu. Það mun aldrei fást nein niðurstaða í það hvað er um að ræða. Menn geta haldið öllu fram, að það séu gull og grænir skógar í sambandinu eða að það sé skrattinn í hverju horni. Við fáum hins vegar aldrei almennilega niðurstöðu í þetta fyrr en búið er að sjá hvað um semst og leggja það fyrir þjóðina. Ég er hins vegar alveg sannfærður um það að við munum aldrei geta sætt okkur við þau skilyrði sem út úr þessum við- ræðum koma. Það er mín skoðun að það sé óskhyggja að við náum á þessu stigi málsins ásættanlegri niðurstöðu í samningaviðræðum þegar kemur að yfirráðarétti yfir auðlindunum og eigin ákvörðunar- rétti um stýringu á nýtingu þeirra. Ég hef miklar efasemdir um það og þar af leiðandi tel ég afar ólíklegt að við munum gerast aðilar. Ég spái að út úr þessu komi niðurstaða sem þjóðin geti ekki sætt sig við. Ég tel hins vegar að til þess að hægt sé að koma þessu máli út af borðinu þá þurfi að láta reyna á samninga og að þjóðin fái að hafa um það síð- asta orðið.“ Alls ekki verjandi að fórna landbúnaðinum fyrir aðild „Íslenskur land- búnaður á enga samleið með E v r ó p u s a m - bandinu,“ seg- ir Jóhanna Pá lmadót t i r formaður land- búnaðarnefndar Sjálfstæðis flokksins. Jóhanna seg- ist telja að landbúnaður sé svo gríðarlega mikilvæg stoð í atvinnu- lífi þjóðarinnar að alls ekki sé verj- andi að fórna honum fyrir aðild að sambandinu, það sem myndi ávinnast myndi aldrei mæta því þunga höggi sem landbúnaðurinn yrði fyrir. „Við erum nú nýbúin að upplifa það hvernig það er þegar kreppa ríður yfir landið, og það er nú ekki enn fram úr henni séð. Ég tel að matvælaframleiðsla sé eitt af þeim grunnatriðum sem verður að vera tryggt ef við eigum að teljast sjálfstæð þjóð. Ég sé ekki að land- búnaður geti staðið óhaggaður ef að við göngum í Evrópusambandið og þess vegna sýnist mér að grundvöll- urinn fyrir inngöngu sé ekki fyrir hendi. Það er mikið atriði í mínum huga að við getum brauðfætt okkur sjálf sem þjóð og það hefur komið berlega í ljós að það er styttra í þá vitund þjóðarinnar heldur en margur hélt. Landbúnaðurinn er ekki bara prívatmál bænda, við höfum hér hreinan og góðan landbúnað vísan eins og er, en ég tel minni líkur en meiri að hann haldi ef gengið verð- ur inn í Evrópusambandið. Það er barnaskapur að hægt sé að byggja upp landbúnað seinna ef það þarf; kunnátta, verksvit, ræktunarstarf- semi og búsetumenning mun glat- ast og verður ekki auðveldlega reist við.“ Jóhanna segist ekki sjá ástæðu til að fara neinar millileiðir í samskipt- um Íslands við Evrópusambandið. „Ég sé enga ástæðu til að fara inn í þessa aðildarumræðu. Ég sé enga þörf á því að búa til ein- hverja millileiki eins og tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu. Ef við horfum út í heim þá sést að íbúar Evrópusambandsins eru ekkert síður í kreppu heldur en við. Þó að það kreppi að eins og er hjá okkur þá er það engin lausn að ganga í Evrópusambandið. Við eigum að taka á þeim málum sem eru í gangi hér og vinna okkur út úr þeim sem sjálfstæð þjóð en ekki leggjast flöt fyrir öðrum þjóðum.“ Sala afurða Norðlenska gekk vel allt árið 2008, en aldrei þó eins og í desember síðastliðn- um. Sigmundur Ófeigsson fram- kvæmdastjóri segir að desember hafi verið stærsti sölumánuður Norðlenska til þessa – bæði í magni og krónutölu. Hann segir að neytendur hafi verið jákvæðir í garð íslenskrar framleiðslu fyrir jólin og augljóst að þeir skynjuðu það í fyrsta skipti í langan tíma að samhengi sé á milli þess að kaupa íslenskar vörur og stuðla að atvinnu í landinu. Þetta kemur fram í viðtali við Sigmund á vef Norðlenska. Hann segir að í kjölfar bankahrunsins í október hafi neytendur leitað í rík- ari mæli eftir ódýrari kjötvörum og þeirri eftirspurn verið svarað. Í desember keypti fólk hins vegar hinn hefðbundna íslenska jólamat og sparaði að því er virðist ekki við sig. Í desember fóru yfir hundrað tonn af hangikjöti frá Norðlenska og var lambið í heiðurssæti fyrir þessi jól. Einnig seldist vel af ham- borgarhryggjum og öðrum tegund- um af svínakjöti. Fjármagnsliðir hækkuðu umtals- vert á síðasta ári og á síðari helm- ingi ársins hækkuðu ýmsir kostn- aðarliðir upp úr öllu valdi. Í því sambandi nefnir Sigmundur flutn- ingskostnaðinn en einnig hækk- aði plast og ýmis önnur innflutt aðföng í verði í takti við hraðlækk- andi gengi krónunnar. Þá hækkaði fóðurkostnaður upp úr öllu valdi og sömuleiðis áburðarverð og til við- bótar er spáð enn frekari hækkun á áburði í vetur, að sögn Sigmundar. „Ástæðan er fyrst og fremst veik staða krónunnar. Þetta er graf- alvarlegt mál, enda er áburðurinn langstærsti kostnaðarliður í rekstri sauðfjárbúa.“ Sigmundur segir að rekstur Norðlenska fyrir fjármagns- liði hafi gengið vel á árinu 2008 og verið í takti við áætlanir. Hann segir þó ekkert launungarmál að mjög erfitt sé að gera rekstraráætl- anir fyrir árið 2009. Starfsemi Norðlenska framfleytir 3-4 þúsund manns Sigmundur segir að bankahrunið í október sl. og afleiðingar þess hafi opnað augu margra fyrir mik- ilvægi innlendrar framleiðslu. Svo alvarlega kollsteypu hafi þurft til þess að ýmsir, sem hafi í alltof langan tíma haft augun lokuð, hafi opnað þau aftur og séð hversu mik- ilvægt sé að hafa trausta og öfl- uga úrvinnslu landbúnaðarafurða í landinu. „Samanlagður fjöldi innleggjenda og starfsmanna sem þiggja árslaun sín hjá Norðlenska er sjö til átta hundruð. Og við þetta bætist síðan mikill fjöldi óbeinna starfa vegna aðkeyptrar þjónustu. Þegar allt er talið má ætla að starf- semi Norðlenska framfleyti beint á bilinu 3-4 þúsund manns. Ég er ekki viss um að fólk hafi almennt áttað sig á því hversu viðamikil starf- semi þetta í raun er. Fyrir nokkru reyndum við að gera okkur grein fyrir hversu stór úrvinnsluiðnaður landbúnaðarafurða, bæði kjöt- og mjólkurvinnsla, hér á Norðurlandi væri og niðurstaðan var um tíu þús- und störf.“ Bændur eiga sér fáa málsvara og eru vinsælt skotmark Sigmundur segist óttast að áður en langt um líði muni margir bændur hreinlega gefast upp í sínum rekstri, enda sé vegið að bændastéttinni úr ýmsum áttum. „Bændur eiga sér því miður fáa málsvara og eru að því er virðist vinsælt skotmark. Núna er ráðist að bændum með nýju mat- vælafrumvarpi og einnig er talað fullum fetum um ESB-aðild án þess að menn hafi sett sér samn- ingsmarkmið eða greint hvaða áhrif aðild að Evrópusambandinu hafi á íslenskan landbúnað. Íslenska stjórnkerfið hefur til þessa lítið til- lit viljað taka til Akureyrar, hvað þá Raufarhafnar eða Þórshafnar. Er þá líklegt að Brussel vilji taka tillit til okkar hér norður í Atlantshafi? Ég vil hins vegar ekki útiloka að menn skoði hvað felist í aðild Íslands að Evrópusambandinu, en það er grundvallaratriði að lagt verði fram greinargott yfirlit um bæði kosti og galla ESB-aðildar fyrir íslenskan landbúnað og þá atvinnustarfsemi sem byggir á honum.“ Sigmundur segir að í gegnum tíðina hafi ófáum dálksentímetrum og ófáum mínútum í ljósvakamiðl- um verið varið í að agnúast út í rík- isstyrki til íslensks landbúnaðar. „Ég fæ hins vegar ekki annað séð en að bankahrunið núna í haust, sem er að öllu leyti af manna völd- um, hafi kostað okkur skattgreið- endur jafn mikið og ríkisstyrkir til landbúnaðar í meira en eina öld. Ég held að ástæða sé til þess að hafa þessa staðreynd í huga,“ segir Sigmundur. Sigmundur Ófeigsson, framkvæmdastjóri Norðlenska Bankahrunið kostar skattgreiðendur jafn mikið og ríkisstyrkir til landbúnaðar í meira en öld Bændur eiga hauka í horni í Sjálfstæðisflokknum Sjálfstæðismenn í landbúnaðarnefnd mjög efins um Evrópusambandsaðild Sveitarstjórn Grýtubakka- hrepps ákvað rétt fyrir áramót að hækka álagningarprósentu útsvars í 13,28%. Í byrjun desember var ákveð- ið að álagningarprósentan fyrir árið 2009 yrði 13,03% og um miðjan desember kom sveit- arstjórn saman og ákvað að nýta ekki þá nýfengna heimild í lögum til hækkunar á útsvari. Nú, vegna breyttra forsenda, er sveit- arstjórn nauðugur sá einn kostur að hækka álagningarprósentu útsvars í 13,28%, þar sem fram- lög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga skerðast ef sveitarfélög nýta sér ekki hámarks álagningu. Mikill tími fór í gerð fjárhags- áætlunar, enda í mörg horn að líta þegar tekjur lækka um 11% en allir kostnaðarliðir hækka. Með því að snúa við hverjum steini var þó mögulegt að skila áætluninni með afgangi á A-hluta sveitarsjóðs upp á rúmlega 1,2 milljónir króna að sögn Guðnýjar Sverrisdóttur sveitarstjóra, en hún telur ánægju- legt að skila þessari niðurstöðu án þess að þurfa að segja upp fólki. Ýmsir starfsmenn sveitarfélags- ins hafa þó tekið á sig launaskerð- ingu og launahlutfall verið lækkað og segir Guðný að allir hafi tekið þessu með miklum skilningi sem beri að þakka fyrir. Nauðugur einn kostur

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.